Viðskipti innlent

Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið

Atli Ísleifsson skrifar
Fröken Selfoss er að finna í nýja miðbænum á Selfossi.
Fröken Selfoss er að finna í nýja miðbænum á Selfossi. Vísir/Egill

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að sekta Fröken Selfoss á Selfossi fyrir að birta ekki matseðil með verðupplýsingum og magnstærðum við inngang veitingastaðarins.

Neytendastofa sektaði á sínum tíma veitingastaðinn um 50 þúsund krónur og var ákvörðuninni áfrýjað af rekstraraðilanum, ÁB veitingum, til nefndarinnar sem staðfesti ákvörðunina.

Málið kom upp eftir að starfsmaður Neytendastofu var við eftirlit á Selfossi í janúar 2025 og setti út á ófullnægjandi verðmerkingar. Athugasemdir stofnunarinnar snéru að því að félagið hafi ekki fylgt skyldu til að birta verðlista fyrir utan veitingastaðinn enda þurftu neytendur að skanna QR-kóða til að nálgast verðupplýsingarnar.

Á vef Neytendastofu segir að rekstraraðilinn hafi kært ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála sem nú hefur staðfest sektina.

Athugasemdir rekstraraðila sneru að því að matseðill hafi frá upphafi verið aðgengilegur öllum gestum bæði á borði við inngöngudyr og í gegnum QR-kóða á fjórum vindskiltum fyrir utan staðinn. Drykkjarseðill hafi sömuleiðis ávallt innihaldið mælieiningar. „Fjöldi gesta nýti sér þetta aðgengi án vandkvæða og engar kvartanir hafi borist frá opnun veitingastaðar kæranda í október 2023. Kærandi hafi við meðferð málsins hjá Neytendastofu upplýst að mat- og drykkjarseðlar blöstu við uppi á barborði um leið og gengið væri inn á veitingastaðinn,“ segir í úrskurðinum.

„Í úrskurðinum fjallar áfrýjunarnefndin meðal annars um að framsetning með QR-kóða geti ekki talist jafngilt því að matseðillinn sjálfur sé sýnilegur eins og áskilið er í verðmerkingarreglum. Þá samræmist ekki skilyrðum reglnanna að matseðlar séu aðeins aðgengilegir inni á veitingastaðnum.

Félagið taldi Neytendastofu ekki hafa sinnt leiðbeiningarskyldu við meðferð málsins og að meðalhófs hafi ekki verið gætt. Áfrýjunarnefnd féllst ekki á þær athugasemdir félagsins og taldi stofnunina hafa sinnt stjórnsýslureglum með viðeigandi hætti. Staðfesti nefndin því ákvörðun Neytendastofu og sektarfjárhæð,“ segir á vef Neytendastofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×