„Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 3. nóvember 2026 14:41 Þorgerður Katrín utanríkisráðherra er harðorð í garð fyrrverandi forseta Íslands. vísir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisáðherra segist hafa þurft að svara fyrir ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta um Rússa í samtölum við kollega hennar erlendis.
Þorgerður Katrín segir viðbrögð rússneska sendiráðsins á Íslandi við ummælum hennar í pontu Alþingis í gær vera tilraun Rússa til að beina athygli frá stríðsverkum þeirra í Úkraínu. Á Alþingi í gær sagði Þorgerður tíst Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, hafa verið alvarlegra en skrif Heimis Más, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Í viðtali við fréttastofu í dag segir Þorgerður Katrín að tíst Heimis Más sé í algjöru ósamræmi við íslenska utanríkisstefnu. „Hann hefur beðist afsökunar á þessu, dregið það til baka og er farinn út af X, þannig við skulum ekkert láta afvegaleiða okkur þangað.“ Þorgerður segir að ítrekað hafi birst tíst á samfélagsmiðlinum X þar sem tilgangurinn sé að kynda undir Rússum. „Meðal annars frá fyrrverandi forseta Íslands sem hefur rödd þarna úti í heimi vel að merkja. Það er verið að taka undir tíst frá utanríkisráðherra Rússlands sem meðal annars felur í sér að benda á að það sé ógn fólgin í því að NATO skuli vera með aðgerðir hér á Norður-Atlantshafi.“ Slíkar aðgerðir skipti Ísland og öryggi Íslands miklu máli. „Það finnst mér umhugsunarefni að við skulum ekki með sterkari hætti mótmæla þeim röddum hér heima sem eru óbeint að ýta undir Rússa og þeirra sjónarmið. Mér fellur það ekki. Við Íslendingar og þessi ríkisstjórn stendur mjög sterkt með Úkraínu í þessu blóðuga árásarstríði Rússa.“ Hefur þurft að svara fyrir ummæli fyrrverandi forseta Hún segir Ólaf Ragnar draga taum Rússa og hefur sjálf þurft að svara fyrir ummæli hans á erlendri grundu. „Fyrrum forseti Íslands hefur enn rödd. Ég hef fengið athugasemdir um það hvaða sýn hann hefur varðandi Rússa og þeirra aðkomu í Úkraínu og þurft að sitja undir því og jafnvel reyna að verja þessi orð sem hann hefur sett fram.“ Hverjir eru að gera athugasemdir við það? „Það eru bara ýmsir á erlendum vettvangi. Í persónulegum samtölum er lýst mikilli undrun á því hvað fyrrum forseti er að draga taum Rússa. Við sjáum það á mörgum tístum bara í kringum 2022 eftir árásarstríð Rússa... þessi rússneska narratíva sem hann dregur fram. Mér finnst miður að það haldi áfram.“ For all involved and interested in #Arctic - #geopolitical affairs this declaration by #Lavrov is a key document.— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) August 31, 2026 Vill ekki að Rússum sé hossað Frelsi og öryggi Úkraínu og Evrópu skipti máli og því sé ótækt að „hossa Rússum með einhverjum hætti“ eins og Þorgerður orðar það. Aðspurð hvort hún hafi sett sig í samband við Ólaf Ragnar segir Þorgerður að Ólafur viti alveg hvar hún standi og að hún sé óhress með hans nálgun þegar kemur að Rússum. „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin og ég er kannski ekki í sjálfu sér að gera athugasemd við það en ég er ekki sammála því og þá einfaldlega dregur maður það fram.“ Málið snúist um NATO. „Öryggi okkar allra í Evrópu felst í því að við stöndum saman gegn Rússum í þessu árásarstríði og það er líka alveg ljóst að þrátt fyrir að Rússar hafi verið með mikinn mannafla og sett mesta púðrið í Úkraínu þá eru þeir heldur ekki búnir að missa fókusinn á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi.“ Það kosti óþarfa orku að þurfa að svara fyrir það að fyrrum forseti lýðveldisins skuli að hennar mati ekki standa gegn stríði Rússa. Þorgerður er harðorð í garð Rússa. Aðspurð hvort tal hennar um Rússa ógni hagsmunum Íslands að einhverju leyti segir hún að svo sé ekki. Myndirðu vilja taka sterkar til orða eða ertu að taka of sterkt til orða eða eitthvað slíkt ef maður hugsar um hagsmuni Íslands? „Nei, alls ekki.“ Og bætir við að svipuð spurning og orðræða hafi komið fram þegar Bandaríkjaforseti beindi sjónum sínum að Grænlandi. „Þá var sagt við okkur: Nei, ekki tala hátt út af Grænlandi, ekki stíga fast þar til jarðar. Það er algjört lykilatriði fyrir okkur Íslendinga að standa með vinum okkar eins og Grænlandi, sem er næsti nágranni okkar, og standa með þeirra sjálfsákvörðunarrétti og friðhelgi landamæra og það skiptir þau miklu máli.“ Danir og Grænlendingar hafi haft orð á samstöðu Evrópuþjóða þegar það mál var uppi. „Ég er bara á svipuðum nótum og mínir kollegar á Norðurlöndum. Með þessu hef ég líka sagt að ég tel mikilvægt þrátt fyrir mína mjög hörðu afstöðu gagnvart Rússum. Þeir eru ógn við okkur, þeir eru ógn við Evrópu, þeir eru ógn við lýðræði, frelsi, mannréttindi og allt þetta. Við erum að sjá fjölþátta ógnir víða.“
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira