Fótbolti

Þor­láki sagt upp í Sádi-Arabíu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þorláki Árnasyni hefur verið sagt upp.
Þorláki Árnasyni hefur verið sagt upp. Vísir/Diego

Þorlákur Árnason er ekki lengur þjálfari kvennaliðs Al-Ahli í Sádi-Arabíu. Greint var frá tíðindunum í gær og nýr þjálfari ráðinn í dag.

Þorlákur tók við Al-Ahli fyrir yfirstandandi leiktíð eftir að hafa síðast þjálfað karlalið ÍBV hér heima.

Al-Ahli hefur ekki farið vel af stað á leiktíðinni og er með fjögur stig í næstneðsta sæti deildarinnar eftir sex leiki.

Al-Ahli tapaði 4-0 fyrir Al-Ula í síðasta leik og hafði tapað 10-0 fyrir toppliði Al-Qadsiah.

Þorláki hefur því verið sagt upp eftir aðeins sex deildarleiki fyrir stjórnvölin og Serbinn Dragan Vukovic er tekinn við. Sá var þjálfari U17 ára liðs Al-Ahli en tekur nú við aðalliðinu.

Þorlákur hefur komið víða við á sínum ferli, meðal annars í Svíþjóð, Hong Kong og Portúgal auk Sádi-Arabíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×