Áhöfnin á Fiskabúrinu - 10 bestu bjórarnir
Áhöfnin fyllti öll fjögur trollinn í þessum tímamótatúr. Fastir dagskrárliðir eins og venjulega, Kristín Ruth kom hrikalega sterk inn af bekk í dagskrárliðinn Gella vikunnar. 10 bestu bjórarnir (ekki tegundir heldur var rýnt í ytri aðstæður) listinn var birtur og svo mætti Þórður Pálsson, nafni Þórðar Gunnarssonar og forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá um borð og ræddi við okkur um Crypto.
 
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    