Óku um Laugardalinn í sófa á Hopphjólum
Þeir sem halda því fram að unga kynslóðin sitji bara heima hjá sér í símanum geta tekið gleði sína því tveir ungir menn í Reykjavík brugðu á leik nýverið og skelltu sófa á tvær rafskútur og rúntuðu um Laugardal öðrum til mikillar gleði og kátínu. Dana Rún náði myndbandinu skemmtilega sem vakið hefur lukku á TikTok.