Hjálpuðu Reyni að gera hina fullkomnu piparsveinaíbúð
Í síðustu viku hóf göngu sína ný þáttaröð af heimilis- og lífstílsþættinum Bætt um betur á Stöð 2. Í þáttunum aðstoða innanhússarkitektarnir Ragnar Sigurðsson og Hanna aðstoða fólk sem langar að breyta til heima hjá sér og vantar góð ráð frá fagfólki. Að þessu sinni var litið við hjá Reyni Ómarssyni sem býr í tveggja hæða smekklegri íbúð með miklum möguleikum.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    