Víkingur býður í tvo leikmenn Blika
Samkvæmt heimildum hlaðvarpsþættinum Þungavigtin hefur Víkingur lagt fram tilboð í Davíð Örn Atlason og Karl Friðleif Gunnarsson bakverði Breiðabliks. Arnar Gunnlaugsson mun ætla sér að gera Davíð Örn að miðverði. Kristján Óli Sigurðsson telur að Blikar muni að öllum líkindum samþykkja bæði tilboðin þar sem Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðabliks er fyrsti kostur liðsins í hægri bakvarðarstöðuna.