Ísland í dag - Fyrrverandi eiginkona Paul McCartneys opin og einlæg

Fyrrverandi eiginkona bítilsins Paul McCartney Heather Mills er algjör töffari. Hún lenti í slysi og missti annan fótinn en gafst ekki upp og vann til dæmis eftir það til verðlauna á skíðum. Hún hefur verið að kljást við meltingarvandamál og uppþembdan maga og ákvað að finna lausn á því meðal annars með því að framleiða frostþurrkaða vegan hollustufæðu sem hægt er taka með sér við ýmis tækifæri kallað No Bloat. Og hefur það slegið þvílíkt í gegn. Heather kom til landsins fyrir nokkru og hélt hér áhugaverðan fyrirlestur um heilsu og næringu. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og spjallaði við Heather um hennar baráttu við ýmis heilsuvandamál og var hún alveg einstaklega opin og einlæg.

78
18:35

Vinsælt í flokknum Ísland í dag