Ölfusárbrú lokað í viku
Umferð um Ölfusárbú við Selfoss verður lokað klukkan fjögur í dag og mun lokunin standa yfir í vikutíma. Ástæðan er sú að það á að steypa nýtt brúargólf en það tekur steypuna nokkra daga að harðna. Um sautján þúsund bílar aka á hverjum degi yfir brúnna.