Gjóskugos hafið í eldfjallinu Etnu á Sikiley
Gjóskugos hófst í eldfjallinu Etnu á Sikiley í morgun og aska og grjót þeyttust marga kílómetra í loft upp. Etna er eitt virkasta eldfjall heims og er undir ströngu eftirliti vegna byggðar og ferðaþjónustu á svæðinu.