Klaufar reyna að kveikja í krá
Amir Ali og félagi hans báru sig ekki sérlega faglega að þegar þeir ákváðu að brenna hverfiskrána í bænum Crawley í Sussex í Bretlandi. Planið var að Amir Ali myndi fleygja tveim múrsteinum í gegnum rúðu á kránni. Félaginn stóð svo tilbúinn með bensínsprengju sem átti að fylgja á eftir múrsteinunum. Sjón er sögu ríkari.