Jóladagatal Skoppu og Skrítlu - sýnishorn
Skoppa og Skrítla, opna glænýjan glugga á jóladagatalinu á hverjum degi frá og með 1. desember og fram að jólum á Stöð 2. Úr dagatalinu draga þær fram orð sem tengjast jólunum og jólaundirbúningi. Skoppa og Skrítla vita alls ekki hvað öll þessi orð þýða svo þær fá aðstoð frá Barnaorðabókinni og að sjálfsögðu frá vinkonu sinni henni Lúsí. Bakari Svakari lætur sig ekki vanta í jólabaksturinn, jólasveinninn gægist mjög líklega inn um gluggann, Snæfinnur snjókarl tekur lagið og jólaenglar svífa um svell. Jóladagatal Skoppu og Skrítlu er á dagskrá Stöðvar 2 á hverjum degi fram að jólum fyrir fréttir.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    