Leitin að upprunanum - Hélt hún væri fyrsta barn foreldra sinna
Kolbrún Sara Larsen kom fram í þriðja þætti af Leitinni að upprunanum á Stöð 2. Kolbrún var ættleidd frá Tyrklandi tveggja ára gömul og hefur öll sín 36 ár staðið í þeirri trú að hún hafi verið fyrsta barn mjög ungra foreldra. Upplýsingar frá manni í Tyrklandi, sem samþykkti að hjálpa henni við leitina, kollvörpuðu því litla sem hún taldi sig vita um fortíð sína, en hann færði henni þær fréttir að hún væri yngst fimm systra. Leitin að upprunanum er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöldum.
 
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                         
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                 
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                     
                                                    