Samkomubann hér á landi hefur verið boðað í fyrsta sinn í lýðveldissögunni
Samkomubann hér á landi hefur verið boðað í fyrsta sinn í lýðveldissögunni og tekur það gildi á miðnætti næstkomandi sunnudagskvöld. Það nær til viðburða þar sem saman koma hundrað manns eða fleiri. Skólastarf mun raskast verulega, framhaldsskólum og háskólum verður lokað og takmarkanir settar á skólahald í grunn- og leikskólum. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, greindi frá þessu á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum klukkan ellefu í morgun.