Ísland í dag - Enn ástfangin eftir 20 ár með nýtt sveitahótel og veitingastað

Völli Snær og Þóra Sigurðar eru enn ástfangin og eiga í dag 20 ára brúðkaupsafmæli og nú slá þau í gegn með nýju sveitahóteli og veitingastað fyrir norðan. Matreiðslumeistarinn Völundur Snær Völundarson og fjölmiðlakonan Þóra Kolbrá Sigurðardóttir halda upp á tímamótin þar sem þau eru búin að skapa eitthvað algjörlega einstakt á norðurlandi, hótelið Áróra Farm á Stóru Laugum í Reykjadal í hjarta hins svokallaða Demantshrings með Mývatn og Goðafoss við túnfótinn og þar er jafnframt að finna einn af bestu veitingastöðum landsins enda Völli einn af bestu kokkum landsins. En á veitingastaðnum er risa eldofn þar sem Völli bæði eldar og bakar allt við miklar vinsældir.

1297
17:24

Vinsælt í flokknum Ísland í dag