Sportbíll ársins hjá Auto Bild Á hverju ári velja lesendur bílatímaritsins Auto Bild bíl ársins í hverjum flokki. Í flokki fjöldaframleiddra sportbíla fyrir árið 2012 völdu þeir Porsche Panamera GTS . Það merkilegasta við kosninguna er að um er að ræða fjögurra sæta fjölskyldubíl, eða forstjórabíl, sem telst óvenjulegt í sportbílaflokki. Það voru 72.500 lesendur sem nýttu rétt sinn til að kjósa og var þetta í ellefta sinn sem lesendaverðlaun Auto Bild Sportscars eru veitt. Porsche Panamera GTS er semsagt fernra dyra sportbíll. Í tungutaki Porsche stendur GTS fyrir Gran Turismo Sport og þessi merking hefur staðið fyrir ofuraflmiklum Porsche bílum allt frá hinum goðsagnakennda 904 Carrera GTS árið 1963. Panamera GTS er með aflmikilli 4,8 lítra, V8 vél sem er án forþjöppu en skilar 430 hestöflum. Hámarkstogið er 520 Nm. Veghæð bílsins er 10 mm lægri en hefðbundinn Panamera og sérhannaður sportundirvagninn er með stillanlegri loftpúðafjöðrun og Porsche Active Suspension Management (PASM). Þessi búnaðurinn gerir hann að hæfum keppnisbíl á keppnisbrautum án þess að nokkru þurfi að fórna í þægindum í daglegri notkun innan og utan borga og bæja. Bílar 10. janúar 2013 17:45
Mazda6 frumsýndur Nýr Mazda6 verður kynntur á laugardaginn, kl. 12-16 hjá Brimborg í Reykjavík og hjá Brimborg á Akureyri. Fjölmargar nýjungar í spartækni og öryggi eru kynntar með nýjum Mazda6. Má þar nefna snjallhemlunarkerfi, blindspunktsaðvörunarkerfi og nýja og þýða sjálfskiptingu. Mazda notar um 20% meira af hástyrktarstáli í nýjan Mazda6 en í forvera hans og þrátt fyrir að vera stærri en fyrirrennarinn þá er nýi bíllinn léttari og öruggari. Nýr sjálfskiptur Mazda6 með nýjustu SkyActiv bensínvélinni er ríflega 20% sparneytnari en fyrri kynslóð. Það teljast góðar fréttir fyrir Íslendinga að bíllinn er hærri á vegi en fyrri Mazda6 þrátt fyrir að þyngdarpunkturinn hafa færst neðar. Bíllinn hefur hlotið góða dóma og erlendir bílablaðamenn hafa lofað aksturseiginleika og fádæma sparneytni nýja bílsins. Mazda6 er einnig í boði með nýjustu SkyActiv dísilvélinni frá Mazda. Bílar 10. janúar 2013 16:00
Finnur auð bílastæði Einn notadrýgsti búnaður sem hugsast getur í bíl er vafalaust upplýsingar um hvar má finna laus bílastæði í fjölmennum borgum. Líklega er ekki langt að bíða slíks búnaðar í nýjum bílum því fyrirtækið Inrix hefur þegar þróað hann fyrir 18.000 bílastæði í Bandaríkjunum og 42.000 í 36 Evrópulöndum. Öll eru þessi stæði í bílastæðahúsum. Ekki er nóg með að búnaðurinn láti vita af hvar auð bílastæði er að finna heldur fylgja með upplýsingar um hve mörg þau eru, hvað það kostar að leggja í þau og hver opnunartími húsanna eru. Lausnin byggir á WiFi tengingu bílsins við gagnabanka Inrix sem fær rauntímaupplýsingar frá bílastæðahúsunum. Það fylgir ekki sögunni hvort einhver bílaframleiðandi hafi keypt þennan búnað nú þegar en vonandi verður það sem fyrst. Bílar 10. janúar 2013 13:55
Brynvarin lúxuskerra Toyota Sequoia jeppi er ekki líklegast bíllinn til að vera brynvarinn og þola handsprengjur, jarðsprengjur og öflugustu rifla. Líklegra er að slíkir bílar séu þýskir eða bandarískir eðalvagnar. Eigandi þessa bíls vill einmitt ekki að það standi stórum stöfum utan á honum að þar fari einhver sem efni hefur á því að gæta fyllsta öryggis með eigið líf og annarra farþega. Ekki var þó meiningin að láta sér líð illa um borð í Toyotunni og því var bíllinn innréttaður á þennan boðlega hátt. Þar má finna vínkæla, stóran LCD flatskjá og inní bílnum má fylgjast með öllu umhverfinu kringum bílinn gegnum mýmargar faldar myndavélar. Sætin eru úr hágæða leðri og innréttingin alsett fallegum viði. Það læðist að sú tilfinning að eigandi bílsins sé með vott af ofsóknarbrjálæði. Það er fyrirtækið Lexani Motorcars sem fengið var til verksins og sérhæfir sig í svona breytingum. Herlegheitin má betur virða fyrir sér í meðfylgjandi myndbandi. Bílar 10. janúar 2013 10:37
Tvöföld ánægja...eða hvað? Hver sá sem velt hefur fyrir sér hvernig Síamstvíburabíll lítur út getur virt það fyrir sér hér. Þessi tvöfaldi Jeep Wrangler jeppi var settur saman úr tveimur slíkum í Marokkó og er þar staddur. Var það gert fyrir erlendan sendiráðsstarfsmann, en ekki fer sögum af því hvort hann notar bílinn daglega. Það gæti reynst þrautin þyngri því hann er hátt í fjögurra metra breiður og passar því seint á venjulegar götur. Skyldi hann vera með eina vél eða skila vélar beggja bílanna afli til hjólanna? Hvernig skildi vera að stýra honum? Engin svör eru við þessum spurningum en það eitt er víst að góðum torfærueiginleikum Jeep Wrangler bílanna hefur verið fórnað, því þessi kemst ekkert nema á marflötu malbiki. Myndbandið sem hér fylgir er af litlum gæðum en sýnir þó að hægt er að aka bílnum á tveggja akreina götum. Bílar 9. janúar 2013 16:45
Engar léttklæddar takk! Gestir á komandi bílasýningu í Brussel sem hefst 11. janúar verða að sætta sig við að beina augum sínum aðallega að fallegum bílum, en ekki léttklæddum fljóðum. Stjórnendur sýningarinnar hafa beint þeim tilmælum til sýnenda að starfsstúlkur á sýningarbásum þeirra séu tilhlýðilega klæddar. Ástæða þessa er sú að í fyrra bar nokkuð á lostafullri hegðun sumra gesta sýningarinnar og telja aðstandendur sýningarinnar að kenna megi að hluta um glannalegum klæðnaði stúlknanna. Að baki þessari ákvörðun sýningarhaldara liggja reyndar einnig hressileg skilaboð frá jafnréttismálaráðherra Belgíu þar sem segir að bílasýning sem þessi sé fjölskylduviðburður og það sé engan vegin viðeigandi skilaboð til barna og unglinga að þar vappi um léttklæddar konur. Bílar 9. janúar 2013 11:30
Saab fær aukið fjármagn Hinir núverandi kínversku eigendur Saab hafa gert fjárfestingarsamning við borgina Qingdao. Fjárfestingasjóður í Qingdao borg greiðir með honum 40 milljarða króna, eignast 22% í Saab og byggð verður Saab verksmiðja í borginni. Áform eigenda Saab eru að búa til rafmagnsbíla úr núverandi 9-3 bíl Saab og breyta honum ekki í útliti í fyrstu. Koma fyrstu bílarnir á markað eftir um eitt ár. Qingdao telur að mikill markaður verði fyrir rafmagnsbíla í Kína í nánustu framtíð og stjórnvöld þar greiða götu þess með öllum ráðum og verja til þess miklu fjármagni. Núverandi eigandi Saab er National Electric Vehicle Sweden en stofnandi þess og stærsti eigandi er kínversk-sænskur auðmaður að nafni Kai Johan Jiang. Þetta samkomulag sem tryggir Saab umtalsvert meira fjármagn eykur líkurnar á því að merkið muni lifa og að brátt fari að sjást aftur Saab bílar á götunum. Bílar 9. janúar 2013 09:00
Audi SQ5 – 345 hestöfl Á bílasýningunni í Detroit sem hefst eftir tvær vikur mun Audi sýna Q5 jepplinginn í S-útfærslu. Að sjálfsögðu er hann knúinn bensínvél, það þýðir ekki að bjóða Bandaríkjamönnum annað. Í Evrópu er hann boðinn með díselvél. Þessi lúxusútgáfa jepplingsins sem þeim vestra býðst er snarpur í meira lagi, enda með 345 hestöfl undir húddinu. Þau koma frá sömu 6 strokka og þriggja lítra vél og finnst í Audi S5 bílnum. Sjálfskiptingin í bílnum er 8 gíra og sendir aflið til allra hjólanna. Hann er ekki nema 5,2 sekúndur í hundraðið og hámarkshraðinn er takmarkaður við 250 km. S-útgáfan er 3 sentimetrum lægri en venjulegur Q5 og fjöðrunin öll stífari. Hann verður á 20 tommu álfelgum og aðeins boðinn í tveimur litum, svartur og Estoril blár. Efnisnotkun í innanrými einkennist nokkuð af áli og sætin eru úr Nappa leðri og Alcantara efni. Sala bílsins hefst á haustmánuðum. Bílar 8. janúar 2013 17:00
Hinn fullkomni kvikmyndatökubíll Ekkert er ómögulegt í Hollywood og þar er sjaldan sparað. Þegar útbúa skal myndatökubíl sem tekur á ferð er Porsche Panamera af dýrustu gerð fenginn til verksins. Hann hefur þó sýnilega kosti til verksins því bíllinn þarf að vera með mjög öfluga vél, frábæra fjöðrun, gríðargóðar bremsur, vera stór og svo sterkbyggður að hann geti borið þunga myndavélabómu á þakinu. Þá er líka keyptur bíll sem kostar 160.000 dollara eða ríflega 20 milljónir króna. Bíllinn er mattlakkaður svo hann skemmi ekki tökur með endurkasti ljóss. Bíllinn hefur ennfremur verið þannig útbúinn að á skotti hans hefur verið settur myndavélagluggi svo taka megi myndir afturúr bílnum. Svona hlutir gætu bara gerst í henni Hollywood! Bílar 8. janúar 2013 14:00
Þriggja strokka BMW Þýski bílaframleiðandinn BMW mun bráðlega kynna til leiks fyrstu þriggja strokka vél sína. Mun hún birtast fyrst í BMW 1-línunni. Var þessi vél kynnt fyrst í öðrum bíl BMW á bílasýningunni í París í fyrra, Concept Active Tourer tvinnbíl. Vélin smáa hefur 1,5 lítra sprengirými og styðst við forþjöppu. Þrátt fyrir smæð sína skilar þessi vél 175 hestöflum og hendir þessum smáa bíl í hundraðið á 7 sekúndum. Ekki slæmt fyrir þriggja strokka bíl. BMW áformar einnig að smíða 1,2 lítra þriggja strokka vél. Þessi nýja vél BMW hefur fengið framleiðslunafnið B38. Hún er ein af nýrri röð véla sem framleiddar eru undir merkjum Efficient Dynamics, en þar undir eru einnig fjögurra og sex strokka vélar sem notaðar verða í bíla með undirvagni gerða fyrir framhjóladrif og einnig í tvinnbíla sem hlaða má með heimilisrafmagni. Bílar 8. janúar 2013 11:31
Tíu óvinsælustu bílarnir í BNA Þrátt fyrir að bílar hafi mokselst í Bandaríkjunum á liðnu ári eru ekki allir bílar vinsælir þar vestra. Tekinn hefur verið saman forvitnilegur listi yfir þær 10 bílgerðir sem seldust verst í fyrra. Bílarnir á listanum mega ekki kosta yfir 13 milljónir króna, þeir þurfa að hafa verið í sölu allt árið og framleiðslu þeirra ekki hætt á árinu 2012. Eftirfarandi listi sýnir bílgerðirnar og fjölda seldra bíla: 1. Mitsubishi i-MiEV - 588 2. Mitsubishi Lancer – 702 3. Acura CDX – 772 4. Nissan GTR – 1.188 5. Cadillac Escalade EXT – 1.934 6. Suzuki Equator – 1.966 7. Subaru Tribeca – 2.075 8. Audi TT – 2.226 9. BMW Z4 – 2.751 10. Volvo C30 – 2.827 Bílar 8. janúar 2013 10:04
Mega ekki sitja klofvega á mótorhjólum Í Achehéraði í Indónesíu hafa verið tekin upp Sharialög. Með þeim fylgja margsháttar boð og bönn sem oft beinast aðeins að konum. Eitt þeirra er að þegar konur sitja fyrir aftan menn á mótorhjólum mega þær ekki sitja klofvega, heldur eins og þær séu í söðli, líkt og íslenskt kvenfólk gerði lengi á Íslandi. Þar segir ennfremur að kona sem sitji í söðli líti út eins og kona en ef hún sitji klofvega særi hún blygðunarkennd fólks og kvenleg gildi. Sharialögin sem fylgt er eftir með sérstakri Sharia lögreglu bannar einnig þröngar gallabuxur, heimilar að grýta konur sem halda framhjá eiginmönnum sínum og kveður á um að fólk með óviðurkvæmilega klippingu, eins og hanakamb, of sítt hár og annað “óeðli” í hárburði skuli klippt á réttan hátt. Ache er eina hérað Indónesíu sem tekið hefur upp Sharialög. Bílar 7. janúar 2013 16:15
Volt ekið yfir 160 milljónir km á rafmagni Eigendur Chevrolet Volt bíla í Bandaríkjunum hafa ekið yfir 100 milljónir mílna á rafmagni eða 160 milljónir kílómetra samanlagt frá því bíllinn kom á markað fyrir tveimur árum. Að meðaltali gengur Volt fyrir rafmagni 65% aksturstímans og nýtir bensínvélina til að framleiða rafmagn inn á rafgeyminn einungis á lengri leiðum. Á þessu tímabili hafa eigendur Volt sparað um 20 milljónir lítra af bensíni. Reiknað yfir í krónur jafngildir þessi sparnaður tæplega 5 milljörðum króna. Verið er að kynna Chevrolet Volt um þessar mundir hér á landi og hefur Bílabúð Benna, umboðsaðili Chevrolet á Íslandi, fengið fyrstu bílana. Með því að endurhlaða rafgeyminn reglulega komast eigendur Volt alls um 1.449 km leið og geta ekið í um einn og hálfan mánuð á milli þess sem bensíntankurinn er fylltur. Margir hafa hins vegar fljótlega farið yfir þetta meðaltal, þ.á m. Andrew Byrne frá Los Angeles. "Ég kaupi einungis bensín þegar framundan eru lengri ferðir því í öllum daglegum akstri gengur bíllinn fyrir rafmagni,“ segir Byrne. "Síðast ók ég 3.057 km á einni tankfyllingu.“ Samkvæmt útreikningum Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna spara eigendur Volt um 1.370 dollara á ári í eldsneytiskostnað, nálægt 180.000 ÍSK, í samanburði við eigendur hefðbundinna bensínbíla í Bandaríkjunum. Fyrir dæmigerðan ökumann jafngildir sparnaðurinn við notkun Volt innkaupum á matvörum í níu vikur þegar keypt er inn fyrir 151 dollara í hvert sinn, 228 skiptum í bílþvott sem kostar 6 dollara hvert skipti eða 137 bíómiðum sem hver kostar 10 dollara. Bílar 7. janúar 2013 14:11
Hyundai/Kia spá minnsta vexti í 7 ár Forsvarsmenn Hyundai og Kia bílaframleiðendanna S-kóresku eru ekkert ýkja bjartsýnir fyrir þetta ár. Vöxtur Hyundai og systurfyrirtækisins Kia hefur verið ævintýralegur á síðustu árum, en nú spá þeir minnsta vexti í sölu fyrirtækjanna í 7 ár. Áætlanir þeirra hljóða uppá 4,1% vöxt og að þau muni selja 7,41 milljónir bíla á þessu ári. Það yrði minnst vöxtur þeirra frá árinu 2006, er salan minnkaði um 1,2%. Ein af meginástæðum lágrar vaxtaspár er of sterkur S-kóreskur gjaldmiðill sem hamlar útflutningi bíla beggja framleiðendanna. Dræm sala í Evrópu og efnahagsástand þar mun heldur ekki hjálpa til. Hlutabréf í Hyundai féllu um 1,6% á miðvikudaginn og þar fór stór hluti þess 2,6% vaxtar sem á þeim voru í fyrra. Hlutabréf í Kia féllu um 15% í fyrra og enn frekar um 0,9% í síðustu viku. Hyundai og Kia spáðu 8% aukinni sölu fyrir árið í fyrra og fóru rétt framúr sínum áætlunum og seldu 7,12 milljón bíla á árinu, en spáin hljóðaði uppá 7 milljón bíla. Því er spáin nú fyrir þetta ár helmingur af vextinum í fyrra, en fyrirtækin verða ekki skömmuð fyrir óraunhæfa spá fyrir síðast ár. Þeir markaðir sem halda muni uppi vexti fyrirtækjanna eru Kína og Bandaríkin en búist er við talsvert aukinni sölu þar á árinu. Bílar 7. janúar 2013 10:54
Fyrirtæki kaupa 32% þýskra bíla Þrátt fyrir slæmt efnahagsástand í Evrópu og dræma bílasölu mun sala BMW, Benz og Volkswagen á nýliðnu ári verða mjög góð, þökk sé miklum kaupum evrópskra fyrirtækja á bílum fyrir starfsmenn sína. Sem dæmi um það á þýska símafyrirtækið Deutsche Telecom 38.000 bíla, eða einn bíl á hverja tvo starfsmenn og fyrirtækið er eitt margra sem nýttu sér skattaafslátt við kaup á bílum fyrir áramótin. Í Bandaríkjunum eru 20% bíla keyptir af fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Porsche seldi 71% bíla sinna til fyrirtækja árið 2011 sem eru svo til afnota fyrir starfmenn þeirra, væntanlega háttsettra starfsmanna. Það er til mikils að vinna fyrir starfsmenn að njóta þessara fríðinda, sem byggir á skattalegri meðferð bíla í eigu fyrirtækja. Ef starfsmaður hefur afnot af nýjum BMW 520i þarf starfsmaðurinn að greiða af honum 45% skatt af 1% af kaupvirði hans í hverjum mánuði. Það gerir 181 Evrur á mánuði. Ef hann hefði hinsvegar keypt bílinn sjálfur frá BMW hefði hann þurft að greiða 440 Evrur í rekstrarleigu af bílnum. Þarna munar miklu. Bílar 6. janúar 2013 16:26
Tjónabílar þekja heilan flugvöll Tjón af völdum náttúruhamfara eru oft á tíðum lengi fyrir augum þolendanna. Flestir bílar sem urðu illa fyrir barðinu á fellibylnum Sandy eru þó farnir af götunum og bílasölunum. En hvar skildu þeir þá vera? Fjöldi þeirra var svo mikill að ekki dugar minna en heilu flugvellirnir, sem eru ekki í notkun fyrir vikið. Alls er talið að 230.000 bílar hafi skemmst í fellibylnum ógurlega og 15.000 þeirra eru til að mynda geymdir á þessum flugvelli í New York fylki. Þar bíða þeir eftir því að tryggingafyrirtæki ráði úr tjónamálum sínum og búast má við því að margir af þessum bílum birtist síðan á bílasölum sem selja notaða bíla. Þar verða þeir að vera sérmerktir sem flóðabílar og verð þeirra mun væntanlega endurspegla það. Margir vilja þó meina að slíkir bílar eigi allir að fara í endurvinnslu og að þeir séu í raun tifandi tímasprengjur með ónýtt rafkerfi. Bílar 5. janúar 2013 19:15
Mini fer heljarstökk Bílaframleiðendur eru sífellt frumlegri að ná athygli fólks að nýjum bílum sínum. Mini er þar engin endurtekning með nýjan Countryman bíl sinn og teflir svo djarft að gera “backflip”, eða undirheljarstökk á bílnum á gámasvæði. Meðfylgjandi myndskeið sýnir stökkið, en bara hluta þess, þar sem áhugasamir verða að bíða eftir öðru myndbandi til að finna út úr því hvort lendingin hafi tekist. Allt er þetta hluti af því að búa til spennu kringum þennan bíl. Nokkrir Mini Clubman bílar munu taka þátt í París-Dakar rallinu sem hefst eftir nokkra daga. Einn af ökumönnunum þar, Guerlain Chicherit frá Frakklandi, er einmitt við stýrið á bílnum í myndskeiðinu. Bílar 5. janúar 2013 15:00
Fiat eykur enn hlut sinn í Chrysler Enn frekari hlutafjáraukning Fiat í Chrysler hefur verið samþykkt. Eign Fiat eykst um 3,3% og á Fiat eftir hana 65% hlut í Chrysler. Fyrir þennan 3,3% hlut greiðir Fiat 25,5 milljarð króna. Aðeins eru liðin tvö og hálft ár síðan Fiat eignaðist 20% í Chrysler en þá var bandaríski bílasmiðurinn kominn á hnén og gjaldþrot blasti við. Fiat eignaðist þennan hlut með því skilyrði að fyrirtækið útvegaði sparneytnar vélar í Chrysler bíla, efldi sölu Chrysler bíla utan heimalandsins og kæmi að smíði nýs Chrysler bíls sem ekki eyddi meira eldsneyti en 6 lítrum á hundraðið. Allt þetta uppfyllti Fiat og hefur í kjölfarið aukið stórlega við hlut sinn. Óvíst er þó hvort Fiat muni auka af sama krafti við hlut sinn í Chrysler á næstunni . Ástæða þess er ástandið í Erópu og dræm sala á Fiat bílum í álfunni, sem eðlilega hefur mikil áhrif á fjárhagsstöðu Fiat. Líklegt er að hægjast muni á “samrunaferlinu”, eins og Sergio Marchionne forstjóri Fiat orðar yfirtöku fyrirtækisins á Chrysler. Engu að síður er búist við því að Fiat eignist Chrysler að fullu innan nokkurra ára. Bílar 5. janúar 2013 13:15
Hekla seldi fjórða hvern bíl Við áramót er forvitnilegt að skoða hvaða nýju bílar höfðuðu mest til Íslendinga og hvaða breytingar hafa helst orðið milli ára. Söluhæsta einstaka bílamerkið var sem fyrr Toyota með 1.329 bíla. Í öðru sæti er hástökkvari ársins, Volkswagen með 1.065 bíla selda og í því þriðja er Kia með 752 bíla. Ef skoðuð er sala eftir umboðum er Hekla langsöluhæst með 2.007 bíla, Toyota og Lexus með 1.356 og BL með 1.299. Árið 2011 var Hekla með 1.170 bíla selda, Toyota og Lexus með 778 og BL með 890 bíla. Hekla heldur því fyrsta sætinu annað árið í röð en Toyota nær öðru sætinu af BL. Mestur hlutfallslegur vöxtur í sölu milli ára var hjá Öskju, sem selur Kia- og Mercedes bíla og nam hann 102%. Salan jókst um 94% hjá Brimborg, 74% hjá Toyota, 72% hjá Heklu og 65% hjá Bernhard. Mestur vöxtur hinsvegar í bílum talið milli áranna 2012 og 2011 var hjá Heklu sem seldi 837 bílum meira. Næst mesta aukningin í bílum talið var 578 hjá Toyota, þá 448 hjá Öskju, 418 hjá Brimborg og 409 bílar hjá BL. Hæstu markaðshlutdeild á Íslandi árið 2012 hafði Hekla með 25,5% hlut, sem óx frá árinu 2011 um 2%. Því seldi Hekla ríflega fjórða hvern nýjan bíl sem keyptur var á liðnu ári. Næstmesta hlutdeild hefur Toyota, eða 17,2% og óx hún um 1,6% milli ára. Í þriðja sæti er BL með 16,5% hlutdeild sem fellur um 1,4% milli ára. Í fjórða sæti er Askja með 11,3% og óx hún um 2,5% frá 2011. Mikill umsnúningur hefur orðið á hlut Heklu á markaði fyrir nýja bíla, en árið 2009 hafði Hekla aðeins 7,3% markaðarins. Það stórjókst strax árið 2010 í 19,8%, í 23,4% árið 2011 og 25,5% í fyrra. En hvað er það sem helst skýrir sterka stöðu Heklu nú og fjórðungshlutdeild? Að sögn Friðberts Friðbertssonar forstjóra Heklu eru skýringarnar nokkrar. Hekla búi að mjög sterkum bílamerkjum, svo sem Volkswagen, Skoda og Audi sem eigi mikilli velgengni að fagna nú. Hekla hafi átt bíla til þegar eftirspurn fór að aukast, en það hafi reyndar ekki átt við fyrst á árinu. “Við seldum mikið af bílum til bílaleiga og tilboð með sérútbúnum bílum hafi fallið viðskiptavinum vel, ekki síst á Skoda bílum”, nefndi Friðbert að auki. “Verð á bílum okkar er hagstætt , markaðsstarf gengur vel, starfsfólk okkar öflugt og þegar allt þetta kemur saman má líklega skýra sterka stöðu fyrirtækisins á markaði”, sagði Friðbert. Bílar 5. janúar 2013 10:51
Dacia er mjólkurkú Renault Engum hjá Renault datt í hug að Dacia yrði að gróðavænlegasta hluta Renault þegar franski bílaframleiðandinn keypti hið rúmenska Dacia árið 1999. Þá var aðeins einn bíll í framleiðslu hjá Dacia, Logan fólksbíllinn. Nú eru hinsvegar 5 bílar í framleiðslu hjá Dacia, meðal annars Dacia Duster jepplingurinn sem til sölu er hjá BL hérlendis. Þessar 5 bílgerðir eru til sölu í 36 löndum og seljast vel, enda ódýrir bílar sem hitta markaðinn vel fyrir nú á erfiðleikatímum í Evrópu. Velta Dacia nemur nú um 17% af heildarveltu Renault í vesturhluta Evrópu. Forstjóri Renault lét hafa eftir sér að Dacia væri nú helsta mjólkurkú fyrirtækisins, enda er hagnaðurinn af hverjum seldum Dacia bíl 9% á meðan hann er 0,4% af Renault bílum. Til stendur að fjölga bílgerðum Dacia, en Dacia bílar eru að stórum hluta byggðir með sömu íhlutum og eru í Renault bílum. Bílar 5. janúar 2013 09:00
Slitnu dekkin verða rauð Ekki gera allir sér grein fyrir því hvenær ráðlagt er að skipta um dekk á bíl sínum og mjög slitin dekk eru lífshættuleg. Því gæti hugmynd uppfinningamannanna Fenglin og Buyi verið sem guðsgjöf. Hún gengur út á það að dekk sem slitnar að ákveðnu marki skiptir um lit og verði til dæmis rautt eins og sést á myndinni. Blasir þá við eigandanum að tími sé kominn til að kaupa ný dekk. Hugmyndin er þó ekki flóknari en svo að í lagskiptu dekkinu er mislitt gúmmí. Miðað er við að dekk sem ekið hefur verið um 20.000 kílómetra litist, en ekkert er þó til fyrirstöðu að dekk úr sterkari efnum endist ekki lengur. Ef dekk framtíðarinnar verða framleidd á þennan hátt mun það einnig reynast löggæslumönnum og starfsfólki á skoðunarstöðvum auðveldara að benda bíleigendum á að rétt sé að skipta. Bílar 4. janúar 2013 15:00
1400 Mitsubishi bílar í hafið Ekki vildi betur til en svo að skip sem innihélt 1.400 bíla af Mitsubish-gerð sökk fyrir ströndum Hollands fyrir um mánuði síðan. Sex manns úr áhöfn skipsins er enn saknað en 18 manns var bjargað uppúr sjónum, en þeir höfðu komist í björgunarbáta. Bílar 4. janúar 2013 10:12
Peter Schreyer ráðinn forstjóri Kia Motors Þjóðverjinn Peter Schreyer hefur verið ráðinn sem einn af forstjórum Kia Motors. Schreyer hefur starfað sem yfirhönnuður Kia undanfarin sjö ár og átt stærstan þátt í mikilli velgengni Kia bíla á hönnunarsviðinu. Schreyer var kosinn maður ársins í bílaheiminum árið 2012 af bandaríska bílatímaritinu Automobile. Schreyer hefur ásamt hönnunarteymi Kia endurhannað allan bílaflota suður-kóreska bílaframleiðandans sem unnið hefur til fjölda hönnunarverðlauna um allan heim á undanförnum árum. Má þar nefna bílanna Sportage, Optima, Rio, Picanto, cee'd og pro_cee'd. Síðasta verkefni Schreyer sem yfirhönnuður fyrirtækisins var að hanna hinn nýja 7 manna fjölnotabíl Kia Carens sem kemur á markað hér á landi innan skamms. Schreyer verður einn af þremur forstjórum Kia Motors og fyrsti Evrópubúinn sem gegnir starfinu. Hann var áður hönnuður hjá þýsku bílaframleiðendunum Audi og Volkswagen og hannaði m.a. endurnýjuðu VW Bjölluna og Audi TT sportbílinn. Kia Motors hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarin misseri og hefur sala fyrirtækisins margfaldast. Á Íslandi er Kia Motors þriðja mest selda bíltegundin og var með hátt í 10% markaðshlutdeild á árinu 2012. Bílar 4. janúar 2013 10:00
Auris frumsýndur á morgun Ný kynslóð Toyota Auris er fulltrúi nýrrar hönnunarstefnu Toyota og breytingarnar á bílnum leyna sér ekki enda er greinilega lögð áhersla á sportlegt og skemmtilegt útlit hans. Þá hefur verið kappkostað að gera innanrýmið bæði fallegt og notadrjúgt og vel til tekist. Ný kynslóð Toyota Auris verður kynnt hjá söluaðilum Toyota í Kauptúni í Garðabæ, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri á morgun laugardag, 5. janúar á bílasýningu á öllum stöðunum frá kl. 12 til 16. Nýir Auriseigendur geta valið á milli fjögurra véla og fengið bílinn með 1,33 lítra bensínvél, 1,6 l. bensínvél, Hybridútfærslu með 1.8 l. bensínvél eða 1.4 l. dísilvél. Nýr Auris kostar frá kr. 3.250.000 kr. en það er beinskiptur bensínbíll með 1,33 lítra vél. Sjálfskiptur bensínbíll með 1,6 lítra vél kostar 4.290.000 kr. og Auris Hybrid kostar 4.690.000 kr. Bílar 4. janúar 2013 09:32
Frakkar kveiktu í 1.193 bílum á gamlárskvöld Íslendingar kveikja í brennum á gamlárskvöld en Frakkar kveikja í æ fleiri bílum við sama tækifæri. Mjög margir bílar hafa orðið fyrir barðinu á brennuvörgum síðustu tvö gamlárskvöld, en örlítið færri bílar voru brenndir ári fyrr, eða 1.147. Þeir voru hinsvegar “aðeins” um 400 árin 2007 og 2008, en tölur um brennda bíla voru ekki birtar næstu tvö ár. Líkleg ástæða þess er talin sú að þáverandi stjórnvöld töldu brunana vera mótmæli og fjöldi þeirra væri ekki heppilegur til birtingar. Engu að síður liggja þessar tölur fyrir frá síðustu tveimur áramótum og litlu máli virðist skipta hver er við stjórnvölinn, Nicolas Sarkozy fyrir ári eða Francois Hollande nú. Mjög er deilt á birtingu þessara talna um bílabruna og er talið að þær hvetji til enn fleiri bruna við næstu áramót og espi hugsanlega hin ýmsu gengi til keppni í bílabruna. Bílar 4. janúar 2013 09:19
Volt er mættur Rafbíllinn Chevrolet Volt er kominn til landsins og verður bíllinn kynntur hjá Bílabúð Benna næstkomandi laugardag. Volt kemst um 60 km á rafhleðslunni einni saman og framleiðir auk þess eigin raforku sem lengir heildarökudrægi bílsins í allt að 500 km. "Volt er staðfesting á stöðu Chevrolet sem eins framsæknasta bílaframleiðanda heims", er haft eftir forsvarsmönnum Bílabúðar Benna. Segja þeir að stór orð hafi nú þegar verið höfð um hann og Volt hafi hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar á mörkuðum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. "Volt hefur verið á Bandaríkjamarkaði í tvö ár og eigendurnir þar hafa sett hann á topp ánægjulistans bæði árin. Volt var einnig útnefndur Bíll ársins 2011 af bæði Automobile Magazine og fagritinu Motor Trend. Hann hefur jafnframt hlotið sæmdarheitið "Umhverfisbíll ársins 2011“ hjá tímaritinu Green Car Journal. Nýjasta afrekið er afgerandi sigur á bílasýningunni í Genf þar sem hann hlaut titilinn "Bíll ársins 2012“. Dómnefndin var skipuð 59 leiðandi bílablaðamönnum frá 23 Evrópuríkjum.“ Chevrolet Volt verður frumsýndur gestum og gangandi laugardaginn 5. janúar, frá kl. 12 til 18 í Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8. Bílar 3. janúar 2013 16:00
Audi hættir við A2 rafbílinn Á bílasýningunni í Frankfurt árið 2011 kynnti Audi þessa útgáfu A2-bílsins, eingöngu drifinn áfram með rafmagni. Audi hafði þá uppi áform um að verða enginn eftirbátur annarra bílaframleiðenda í smíði rafbíla. Dræm sala á rafdrifnum bílum síðan þá hefur hinsvegar fengið fyrirtækið af þessum áformum og ekkert verður af smíði þessa bíls, sem keppa átti við BMW i3 og Mercedes Benz A-Class. Forsvarsmenn Audi létu hafa eftir sér að hönnun þessa bíls hafi verið ágætis verkfræðiæfing sem nýtist í framtíðinni, en lítil eftirspurn eftir rafmagnsbílum nú réttlæti hinsvegar ekki að þróuninni verði haldið áfram. Bíllinn átti að koma á markað árið 2014, bæði sem rafmagnsbíll og tvinnbíll. Hann var mjög léttur, eða ríflega 1.100 kg og mest smíðaður úr áli og koltrefjum. Hann var 114 hestöfl og átti að komast um 200 km á fullri hleðslu. Bílar 3. janúar 2013 13:45
VSÓ leigir rafbíl af Thrifty Rafbílavæðingin er augljóslega hafin á Íslandi þótt hún fari hægt af stað. Rafbílar eru boðnir til sölu hjá nokkrum bílaumboðum landsins. Auk þess eru þeir nú orðnir aðgengilegir fyrirtækjum og fólki landsins á annan hátt því bílaleigan Thrifty, sem rekin er af Brimborg, býður nú Citroën C-Zero rafbíl til leigu. Í tilkynningu frá Thrifty segir að bílaleigan gæti þess jafnan að bjóða bíla sem eru útbúnir nýjustu spartækni en líklega er ekki hægt að ganga lengra í spartækninni en að bjóða bíl sem notar ekkert innflutt eldsneyti. Sífellt fleiri leigutakar á íslenskum bílaleigumarkaði leggja áherslu á að leigja sparneytna bíla. Bílaleigumarkaðurinn hefur tekið töluverðum breytingum á síðustu árum enda hefur fall krónunnar á ýmsan hátt stutt við aukinn straum ferðamanna til Íslands. Veik króna þýðir einnig að íslensk fyrirtæki þurfa að leita ýmissa leiða til að ná markmiðum sínum í umhverfismálum, eins og að leigja rafbíl fremur en kaupa hann. Frá árinu 2010 hefur bílaleigan Thrifty boðið bíla sem fá frítt í stæði í 90 mínútur í Reykjavík. Bíll sem uppfyllir þau skilyrði getur verið mjög þægilegur fyrir fyrirtæki sem þurfa að sinna mörgum erindum innan dagsins í miðborginni. Af 412 bíla heildarflota Thrifty eru 273 bílar knúnir sparneytnum dísilvélum. Í íslensku samhengi er einnig áhugavert fyrir verkfræðistofu að ráða yfir ökutæki sem nýtir íslenska orku sem framleidd er af viðskiptavinum fyrirtækisins sem gerir rekstur bílsins eins umhverfisvænan og kostur er. Í samtali við Egil Jóhannsson, forstjóra Brimborgar sem flytur inn Citroën rafbílinn, kemur fram að töluvert rekstrarlegt hagræði náist með því að leigja rafbíl. Til að mynda er miklu fyrirsjáanlegra hver rekstarkostnaður bílsins er þar sem allur kostnaður bílsins, fyrir utan rafhleðsluna sjálfa, er innifalinn í leiguverðinu. Það má einnig horfa í kostnað á hverja ekna 100 kílómetra því þar er munurinn gríðarlegur. Á Citroën C-Zero kosta 100 kílómetrar aðeins um 170-260 krónur en til samanburðar kostar um 1920 krónur að reka sparneytinn bíl sem gengur fyrir hefðbundnu eldsneyti. Guðjón Jónsson, sviðsstjóri öryggismála og stjórnunar hjá VSÓ ráðgjöf, segir það jákvætt fyrir fyrirtækið að leigja rafbíl þar sem VSÓ ráðgjöf er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi og samgöngustefnu sem kalli á viðeigandi eftirfylgni. Slík eftirfylgni felst meðal annars í því að starfsmönnum fyrirtækisins standa til boða afnot af vespu, reiðhjóli og nú rafmagnsbíl auk þess sem starfsfólk fær frítt í strætó. Allt miðar þetta að því að draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins. Bílar 3. janúar 2013 10:16
Skíðalyftur fyrir almenningssamgöngur Af hverju eru skíðalyftur með lokuðum vögnum ekki notaðar fyrir almenningssamgöngur? Þessari spurningu velti Michael McDaniel fyrir sér þegar hann hann stakk uppá þeirri samgönguleið fyrir þéttustu byggð bandarísku borgarinnar Austin í Texas. Bílar 3. janúar 2013 09:57
Audi spreðar í baráttunni við BMW Audi, sem er í eigu Volkswagen, ætlar að eyða 2.200 milljörðum króna á næstu þremur árum í þróun nýrra bíla. Er þetta hluti af því aðgerðarplani Volkswagen að verða stærsti bílaframleiðandi heims árið 2018, en einnig í því augnamiði að Audi taki fram úr BMW í sölu bíla ekki seinna en í enda þessa áratugar. Audi ætlar að selja yfir tvær milljónir bíla á ári þegar áratugurinn er á enda. BMW áætlar að selja 1,54 milljón bíla á þessu ári. Fjármunirnir verða að stórum hluta settir í þróun á léttum yfirbyggingum bíla Audi, sem og þróun nýrra bílvéla. Þá verða settar upp nýjar verksmiðjur í Ungverjalandi, Kína og Mexíkó. Bílar 3. janúar 2013 09:49