Dómsmál

Dómsmál

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame

Hæstiréttur hafnaði beiðni stéttarfélagsins Matvís um að áfrýja dómi  um að það væri skaðabótaskylt gagnvart eigendum veitingastaðarins Flame. Ummæli starfsmanna Matvís við eftirlitsferð var talið hafa leitt til þess að hópur starfsfólks gekk út af vinnustaðnum.

Innlent
Fréttamynd

Kom fyrir hlerunarbúnaði en var sýknaður: „Úr­skurður græjaður núna hviss bamm búmm“

Lögreglumaður sem var ákærður fyrir að hafa komið hlerunarbúnaði fyrir í bifreið án heimildar var sýknaður á þeim grundvelli að hann hafi mátt telja að heimild lægi fyrir. Ekki var talið skipta máli að lögreglumaðurinn sem bað hann um að koma búnaðinum fyrir hefði sent honum skilaboð um að „tracker úrskurður [verði] græjaður núna hviss bamm búmm.“

Innlent
Fréttamynd

Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns

Aníta Rut Harðardóttir lögreglumaður fletti upp nöfnum fólks í skráningarkerfi lögreglunnar, LÖKE, í þeim tilgangi að ná í mann sem stofnað hafði kröfu í heimabanka fjölskyldumeðlims hennar vegna meintrar gamallar fíkniefnaskuldar. Hún var sektuð um hundrað þúsund krónur vegna athæfisins og þarf að borga tæplega 900 þúsund krónur í málskostnað.

Innlent
Fréttamynd

Fyrir­komu­lagið bein­línis til að komast fram hjá lögum

Fyrirkomulagi áfengissölu félaganna Kjútís ehf. og Icelandic Trading Company b.v., sem starfrækir vef Smáríkisins, var að mati dómara beinlínis komið á til þess að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis. Engu breyti þótt alþingismenn og ráðherrar segi slíkt fyrirkomulag löglegt. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þrettán ár fyrir í­trekuð brot gegn stjúp­dóttur

Karlmaður hefur verið dæmdur til þrettán ára fangelsisvistar fyrir að hafa ítrekað beitt stjúpdóttur sína kynferðisofbeldi þegar hún var sex til níu ára gömul. Brotin framdi hann meðan hann sætti skilorðsbundnum fangelsisdómi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn móður stúlkunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Hafi ó­vart tekið símann með sér en ekki rænt honum

Gabríel Douane Boama, sem sætir ákæru fyrir fjölda brota sem hann játar að mestu, tjáði sig aðeins um tvo ákæruliði af tíu þegar skýrsla var tekin af honum við aðalmeðferð í dag. Í þeim er honum gefið að sök að hafa hótað konu með hnífi og rænt síma af manni á sama tíma. Hann kveðst ekki hafa verið með hníf á sér og hafa óvart tekið símann af manninum en ekki rænt honum.

Innlent
Fréttamynd

Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaín­smygl

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá erlenda karlmenn í fimm á fangelsi hvern fyrir að flytja inn mikið magn af kókaínklóríðs til landsins. Efnin voru falin í bifreið sem kom til landsins með ferjunni Norrænu í nóvember.

Innlent
Fréttamynd

Gabríel Douane játaði ó­vænt að hafa barið fangaverðina

Gabríel Douane Boama játaði óvænt að hafa barið þrjá fangaverði á Litla-Hrauni og notað við það armbandsúr í ágúst árið 2024, þegar aðalmeðferð í máli hans hófst í morgun. Hann vildi þó að ákærunni yrði breytt á þann veg að orðið hnúavopn yrði fellt á brott, sem ákæruvaldið féllst á.

Innlent
Fréttamynd

Ein belja varð Vil­hjálmi í Smá­ríkinu að falli

Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, hefur verið sakfelldur fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay í lok maí í fyrra. Hann hlýtur 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Greiði hann ekki innan fjögurra vikna þarf hann að sæta fangelsisvist í átta daga. Þá var hann dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, 4,9 milljónir króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ætla að fara fram á frá­vísun málsins

Héraðssaksóknari hefur ákveðið að ákæra Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi vegna andláts 73 ára konu sem var í hans umsjá á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Verjandi hans ætlar að fara fram á frávísun í málinu. Uppkomin börn konunnar sem er ákært vegna gagnrýna harðlega að Skúli Tómas hafi starfað við Landspítalann meðan mál hans var til rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Fær vægari dóm en greiðir hærri miska­bætur

Karlmaður var nýlega dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundins fangelsis fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Árásin átti sér stað árið 2021 og var upprunalegur dómur ómerktur í Landsrétti vegna ummæla dómara héraðsdómara í tölvupósti. Maðurinn fær nú vægari dóm en þarf að greiða brotaþola hærri miskabætur.

Innlent
Fréttamynd

SKE gert aftur­reka með ógnarlanga stefnu og kærir til Lands­réttar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum frá dómi á þeim grundvelli að stefna í málinu fæli í sér skriflegan málflutning. Stefnan var heilar 135 blaðsíður, sem er um fimmföld hámarkslengd stefna, sem reglur Dómstólasýslunnar kveða á um. Samkeppniseftirlitið telur að nauðsynlegt hafi verið að reifa málið ítarlega í stefnu og hefur því ákveðið að kæra frávísunarúrskurðinn til Landsréttar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi

Grískur karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður hefur verið fyrir að stinga annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, neitar sök í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vett­vangi

Lögregla telur framburð mannsins, sem grunaður er um að hafa stungið annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, ótrúverðugan en rökstuddur grunur er um að hann hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans. Blóðug skóför og DNA hins grunaða á hnífum sem fundust á vettvangi auk lokaniðurstöðu krufningar eru meðal gagna sem benda til sektar hins grunaða.

Innlent