Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Ég, fréttabarnið

Í nóvember var ég fenginn sem gestur í Kastljós ásamt kollega mínum til að tjá mig um dómsmál sem var þá áberandi í fréttum. Þessi heimsókn varð gamalli blaðakonu tilefni til vangaveltna á Facebook um það hvort "aldursmörk“ íslenskra fjölmiðlamanna væru almennt lægri en gerist erlendis. Við vorum þá 28 og 33 ára.

Bakþankar
Fréttamynd

Ósýnilegir vinir ASÍ

Ég ferðast oft með strætó. Það gera, sem betur fer, æ fleiri. Sumir þeirra ferðast reyndar með ósýnilegan vin með sér. Þeir sjálfir sitja þá við ganginn en ósýnilegi vinurinn tyllir sér gjarnan við gluggann. Bæði sætin eru því frátekin: Gangsætið fyrir þann holdi klædda, en gluggasætið fyrir hinn ósýnilega. Auðvitað dettur engum í hug að reyna að troða sér fram hjá raunmanninum og setjast í gluggasætið. Þá myndi maður setjast á vininn ósýnilega. Og það er dónaskapur að setjast á fólk, þótt ósýnilegt sé.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kosmískir kraftar

Reykingafólk er varnarlausasti hópur þjóðfélagsins. Það er án málsvara. Það hata það allir. Það sættir sig við allt sem hinir ákveða. Reykingaaðstaða færist fjær húsakynnum, rettur hækka í verði og nú á að banna mentólsígarettur. Enginn segir neitt við því – einhverjir Danir umluðu, það var hlegið að þeim.

Bakþankar
Fréttamynd

Meðsekt ráðherra

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga á síðasta ári er að sumu leyti endurtekið efni. Bent er á sömu veikleikana í ríkisrekstrinum og sömu stofnanirnar fara fram úr fjárlögum ár eftir ár.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ekki vera fávitar

Ég var á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi á Neskaupstað um síðustu helgi, en þar komu á annað þúsund manns saman til að misbjóða bæði hljóðhimnum og lifur.

Bakþankar
Fréttamynd

Dólgakapítalismi?

Mikið er búið að skamma Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fyrir ummæli hans á Bylgjunni á laugardag, þar sem hann sagði koma til greina að fleiri en ríkið tækju að sér rekstur heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisráðuneytið ætti að vera stefnumótandi en aðrir kynnu að vera færari um að annast reksturinn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vegabréf fyrir álfa

Einu sinni spurði bandarísk kona sem ég hitti í flugvél á leið til Bandaríkjanna mig að því hvort við Íslendingar gæfum út vegabréf fyrir álfa og huldufólk. Hún hafði dvalið á Íslandi í fáeina daga, ferðast svolítið um landið og hafði kynnst landi og þjóð nokkuð vel, taldi hún. Henni virtist full alvara með spurningunni.

Bakþankar
Fréttamynd

Má drepa svarta í hettupeysum?

Niðurstaða kviðdóms í máli George Zimmerman fyrir rétti í Flórída á dögunum hefur vakið hörð viðbrögð og mikla reiði. Zimmerman var sýknaður af því að hafa skotið ungan svartan pilt, Trayvon Martin, til bana á þeim forsendum að það hefði verið í sjálfsvörn. Engu að síður hafði margkomið fram í málflutningi fyrir dómi að Zimmerman, sem er sjálfboðaliði í nágrannavörslu í hverfinu sínu, hefði tekið það upp hjá sjálfum sér að veita Martin eftirför á þeim forsendum að honum hefði þótt Martin grunsamlegur. Hvað síðan gerðist er Zimmerman einn til frásagnar um en hann bar fyrir dómi að Martin hefði ráðist á sig og hann því átt þann kost einan að skjóta hann, jafnvel þótt Martin væri óvopnaður. Þessi rök sættist kviðdómurinn á og sýknaði Zimmerman af öllum ákærum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Úrelt lög um ríkisstarfsmenn

Niðurskurðarhópur ríkisstjórnarinnar, sem var skipaður í síðustu viku, á að "fara yfir stóra útgjaldaliði ríkisins s.s. fjölda stöðugilda, skipulag, rekstur, innkaup og skoða hvort gera megi kerfisbreytingar sem leiða til aukinnar framleiðni og betri nýtingar fjármuna“.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ég var rænd!

Til allrar hamingju búum við í samfélagi þar sem okkur mun aldrei skorta tilefni til að hræðast. Sérstaklega ef við ákveðum að gera eitthvað sem í fyrstu gæti virst skemmtilegt

Bakþankar
Fréttamynd

Þora þau?

Við sögðum frá því í fréttum okkar á Stöð 2 í fyrrakvöld að hinn svokallaði niðurskurðarhópur ríkisstjórnarinnar hefði umboð til að

Fastir pennar
Fréttamynd

Blessuð!

Í íslenskum kveðjum eru klassískar óskirnar um blessun guðs, en fallegasta kveðjan finnst mér vera vertu sæll.

Bakþankar
Fréttamynd

Lotningin fyrir véfréttinni

Engu var líkara en Alþingi breyttist í tilbeiðslumusteri þegar bollaleggingar hófust um hvort forseti lýðveldisins myndi staðfesta lög um breytingar á veiðigjöldum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Það kemur annað Nasa

Einu sinni var til eitthvað sem hét Nýja bíó. Svo hætti það að vera bíó. En fólk talaði áfram um að hitt og þetta væri við hliðina á Nýja bíói.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvers virði eru launin?

Eru launin ekki miklu lægri?“ er spurning sem ég fæ reglulega frá fólki þegar það heyrir að ég hafi sagt upp starfi mínu sem byggingaverkfræðingur og sinni nú íþróttafréttamennsku.

Bakþankar
Fréttamynd

Spurning um trúverðugleika

Fréttablaðið fjallaði í gær um þá staðreynd að engar sérstakar hæfiskröfur eru gerðar til þeirra sem Alþingi kýs í bankaráð Seðlabanka Íslands.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gróðinn og griðastaðirnir

Að undanförnu hefur fólk í vaxandi mæli áttað sig á þeim hættum og vandamálum, sem fylgja tækifærunum í örri uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Glaðasti hundur í heimi

Ég held maður eigi ekki að öfunda börn. Samt varð ég dálítið afbrýðisöm út í börnin sem grófu niður vangaveltur sínar fyrir framan Þjóðminjasafn Íslands á dögunum. Þau útbjuggu bæklinga þar sem þau sögðu frá sjálfum sér og spáðu í framtíðina.

Bakþankar
Fréttamynd

Hláturinn lengir lífið

Fyrir stuttu var hér staddur á landinu merkilegur læknir og trúður að nafni Patch Adams, en hann hefur eytt síðustu áratugum starfsævi sinnar í það að nota hláturinn sem meðal við þjáningu og í meðferð sjúkdóma til viðbótar við hefðbundna meðferð.

Fastir pennar
Fréttamynd

Moska í fjölmenningarborg

Eftir þrettán ára vandræðagang, þar sem annars sæmilega skipulögðu og skilvirku kerfi Reykjavíkurborgar hefur ítrekað mistekizt að verða við einföldum óskum Félags múslíma um lóð fyrir mosku, hillir loksins undir að úr málinu leysist.

Fastir pennar
Fréttamynd

Við erum byrjaðir

Ég heyrði sögina öskra gegnum símann svo skar í eyrun. Maðurinn á hinum enda línunnar heyrði ekkert í mér. "Hvað segirðu?“ hrópaði hann þegar ég kynnti mig. Ég hafði misst af símtali frá honum skömmu áður og var nú að hringja til baka.

Bakþankar
Fréttamynd

Þegar fingurinn bendir á tunglið

Þegar fingurinn bendir á tunglið horfir fíflið á fingurinn. Þessi setning rammar svona nokkurn veginn inn mál Edwards Snowden sem situr nú fastur á flugvelli í Moskvu eftir að hafa lekið upplýsingum um njósnir leyniþjónusta í Bandaríkjunum og víðar. Leki Snowdens leiðir í ljós að stofnanir í Bandaríkjunum og Evrópu hafa eftirlit með óbreyttum borgurum og athöfnum þeirra á internetinu. Spádómar hinna ýmsu vísindaskáldsagna eru veruleiki. Stóri bróðir lætur ekki að sér hæða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Af síld ertu kominn

Ég gekk um Síldarminjasafnið á Siglufirði á dögunum á miðjum rigningardegi – fáir á ferli – þögn yfir öllu. Þá er alltaf skemmtilegast að ganga um söfn, þegar maður þarf ekki að hlusta á eitthvert skvaldur og getur einbeitt sér að því að hlusta á hlutina þegja.

Fastir pennar