Íslenski boltinn

Íslenski boltinn

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Fréttamynd

„Hefði átt að stela þessu í lokin“

Margrét Árnadóttir, leikmaður Þór/KA upplifði blendnar tilfinningar eftir 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni í þriðju umferð Bestu deildar kvenna. Margrét jafnaði leikinn í uppbótartíma og fékk færi til að sigra leikinn í blálokin.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Sem betur fer slapp þetta“

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sagði að lið sitt gæti prísað sig sæla að hafa tekið öll stigin úr viðureign sinni gegn Keflavík í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Þá hafi hann einnig sloppið með að hafa klárað skiptingar sínar þegar hálftími var eftir af leiknum. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum

Stjarnan og ÍA áttust við í fimmtu umferð Bestu deildar karla á Samsung-vellinum í dag. Skagamenn voru sterkari aðilinn og uppskáru verðskuldaðan sigur. Stjarnan braut ísinn með marki frá Benedikt Warén og leiddi í hálfleik en Markús Páll Ellertsson jafnaði metin í síðari hálfleik og skömmu fyrir leikslok bætti Viktor Jónsson öðru marki Skagamanna við. Lokastaðan 1-2 fyrir ÍA og fyrsti sigur þeirra gulklæddu staðreynd.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðar­enda

KR vann 4-1 sigur á Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í gær og treysti þannig stöðu liðsins á toppi deildarinnar, þar sem liðið er með fullt hús stiga. KA vann þá 1-0 sigur á Þór í Akureyrarslag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Eins og stúdentsprófin í MR“

„Ég er auðvitað bara mjög ánægður. Þetta var mjög öflug frammistaða. Það er fátt betra í fótboltalífinu manns en að vinna Val á Hlíðarenda,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 4-1 sigur hans manna á Val í Bestu deild karla í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Gerist eigin­lega ekki betra“

KA vann dramatískan sigur á nágrönnum sínum í Þór þegar liðin mættust á VÍS-vellinum í Þopinu í fimmtu umferð Bestu deildar karla.Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu undir lok leiks og var gripinn í viðtal að leik loknum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Þór Ak. - KA 0-1 | Hall­grímur tryggði sætan sigur

KA tryggði sér montréttinn á Akureyri með dramatískum 1-0 sigri á nágrönnum sínum í Þór þegar liðin mættust á VÍS-velli Þórsara í fimmtu umferð Bestu deildar karla. Hallgrímur Mar skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu undir lokin við mikinn fögnuð gulklæddra gesta í stúkunni.

Íslenski boltinn