Framhaldið óljóst eftir að viðræðum við flugfreyjur lauk í dag Fundi samninganefnda Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands lauk á þriðja tímanum í dag án niðurstöðu. Icelandair segir að nú þurfi að kanna aðra möguleika. Innlent 20. maí 2020 21:00
Lokatilboðið ekkert lággjaldaflugfélagstilboð að sögn Boga Forstjóri Icelandair Group segir að lokatilboð félagsins til FFÍ hefði fært flugfélagið nær keppinautum sínum á Norðurlöndum, eins og SAS og Finnair. Starfskjör flugliða væru áfram með þeim bestu á Vesturlöndum. Viðskipti innlent 20. maí 2020 17:03
Ósáttar flugfreyjur láta ekki beygja sig í duftið Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsir yfir miklum vonbrigðum með það sem félagið lýsir sem einarðri og óbilgjarnri afstöðu Icelandair í árangurslausu samningaviðræðum sem staðið hafa yfir milli aðila síðustu vikur. Samningaviðræðum var slitið í dag og nýr fundur ekki í sjónmáli. Viðskipti innlent 20. maí 2020 16:49
Flugvirkjar gengu að samningnum við Icelandair Er þarna um að ræða fyrsta kjarasamninginn af þremur sem Icelandair þarf að ljúka fyrir hluthafafund á föstudag. Viðskipti innlent 20. maí 2020 15:17
Viðræðum slitið og Icelandair kannar aðra möguleika Fundi samninganefnda Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands lauk á þriðja tímanum í dag, án niðurstöðu. Viðskipti innlent 20. maí 2020 14:38
Icelandair segist ekki hafa átt í viðræðum við önnur stéttarfélög Icelandair segist vera í kjarasamningaviðræðum sínum við Flugfreyjufélag Íslands af heilindum. Ekki hafi komið til tals að semja við annað stéttarfélög um störf flugfreyja og þjóna. Viðskipti innlent 20. maí 2020 12:43
Flugfreyjur og Icelandair byrjuð að funda á ný Fundur samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Icelandair hófst núna klukkan hálf níu í húsakynnum ríkissáttasemjara í Karphúsinu í Borgartúni. Innlent 20. maí 2020 09:41
Icelandair sagt íhuga að semja við nýtt stéttarfélag flugfreyja Komið hefur til tals að setja á laggirnar nýtt stéttarfélag flugfreyja, hvers félagsmenn væru flugfreyjur sem ekki styðja stefnu samninganefndar Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) Viðskipti innlent 20. maí 2020 06:41
Samninganefndir boðaðar til fundar í fyrramálið Boðað hefur verið til fundar milli samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands annars vegar og Icelandair hins vegar klukkan 8:30 í fyrramálið. Innlent 19. maí 2020 23:26
Fundi með flugfreyjum frestað áður en hann hófst Fundi samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair sem til stóð að hæfist klukkan fimm hefur verið frestað. Innlent 19. maí 2020 17:22
Atkvæðagreiðslu flugmanna lýkur á sama tíma og fundur hluthafa hefst Viðskipti innlent 19. maí 2020 11:23
Flugliðar og Icelandair funda aftur á morgun Ríkissáttasemjari ákvað að boða til annars fundar klukkan fimm síðdegis á morgun sem þýðir, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, að einhver gangur hefur verið í viðræðunum í dag sem stóð í um ellefu klukkustundir. Innlent 19. maí 2020 02:00
„Á meðan við erum hér og á meðan við erum að vinna þá er von“ Samningaviðræður milli samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair standa enn yfir í húsakynnum ríkissáttasemjara en ríkissáttasemjari segir viðfangsefnið bæði erfitt og flókið Innlent 18. maí 2020 20:03
Hagar reiða fram 315 milljónir vegna starfsloka Finns og Guðmundar Hagar gera ráð fyrir að starfslok tveggja stjórnenda hjá félaginu, þeirra Finns Árnasonar og Guðmundar Marteinssonar, muni kosta félagið um 314,5 milljónir króna Viðskipti innlent 18. maí 2020 16:48
Boðað til fundar í kjaradeilu flugfreyja og Icelandair Boðað hefur verið til formlegs fundar í kjaradeilu Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hjá ríkissáttasemjara klukkan 14 í dag. Innlent 18. maí 2020 12:00
Staðan í kjaraviðræðum við flugliða endurmetin um hádegisbil Óformlegum fundi í kjaraviðræðum Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair, í húsakynnum Ríkissáttasemjara, lauk skömmu fyrir klukkan eitt í nótt án niðurstöðu. Staðan verður endurmetin í hádeginu á mánudag. Innlent 18. maí 2020 01:37
Virðast ekki ætla að flykkjast til landsins í júní Ferðamenn virðast ekki ætla að flykkjast til landsins um leið og það verður opnað 15. júní. Meira er um fyrirspurnir síðsumars og í haust. Íslendingar virðast einnig áhugasamir um að komast út fyrir landsteinana seinna á árinu. Viðskipti innlent 17. maí 2020 19:30
Óformlegir fundir í kjaraviðræðum Icelandair og FFÍ Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair funda í dag á óformlegum vinnufundum. Eins og stendur hefur formlegur fundur í kjaradeilu FFÍ og flugfélagsins ekki verið boðaður. Innlent 17. maí 2020 10:40
Samið við Icelandair um lágmarksflugsamgöngur í sumar Til greina kemur að bæta flugferðum til Kaupmannahafnar og New York við ferðir til Boston, London og Stokkhólms með nýjum samningi sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert við Icelandair. Samningurinn er sagður tryggja lágmarksflugferðir til Evrópu og Bandaríkjanna fram undir lok júní. Innlent 15. maí 2020 19:48
Samherjabörnin fá hlutabréfin frá foreldrunum Fjórir aðaleigendur útgerðarfyrirtækisins Samherja, þar af forstjórinn Þorsteinn Már Baldvinsson, hafa framselt hlutabréfaeign sína í fyrirtækinu til barna sinna. Viðskipti innlent 15. maí 2020 13:41
Þakkar flugmönnum fyrir að leggjast á árar með Icelandair Nýr kjarasamningur felur í sér talsverðar breytingar og styrkir samheppnishæfi félagsins til lengri tíma, að sögn forstjóra Icelandair. Viðskipti innlent 15. maí 2020 13:25
Taka á sig kjaraskerðingu til að mæta ástandinu Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna kveðst vongóður um að samningurinn verði samþykktur. Viðskipti innlent 15. maí 2020 11:31
Flugmenn og Icelandair gerðu „tímamótasamning“ í nótt Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafa gert nýjan kjarasamning á milli félaganna til 30. september 2025. Viðskipti innlent 15. maí 2020 09:35
Skúli segir allt tilbúið og Play klárt í bátana Skúli Skúlason, stjórnarformaður og aðaleigandi Play, segir að flugfélagið muni fara í loftið. Það sé bara spurning um dagsetningu sem ráðist af ytri aðstæðum, frekar en hitt. Viðskipti innlent 15. maí 2020 08:09
Margir hafa hug á að ferðast hingað til lands Mikill áhugi er á Íslandi sem áfangastað meðal ferðafólks og þeim sem geta hugsað sér að ferðast á milli Evrópu og Norður-Ameríku fjölgar. Innlent 15. maí 2020 06:39
Hefur trú á að samningaviðræðum við flugfreyjur sé ekki lokið Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segist vongóður um að fulltrúar Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair geti sest að samningaborðinu á nýjan leik, þrátt fyrir að ekki hafi verið boðað til nýs fundar milli aðila eftir að slitnaði upp úr fundi þeirra í gær. Innlent 14. maí 2020 18:53
Flugmenn og Icelandair funda Samninganefndir Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair eru fundi þar sem samningaviðræður fara fram um hugsanlega kjarasamninga. Samninganefndirnar hittust klukkan hálf tvö í húsakynnum Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Viðskipti innlent 14. maí 2020 13:45
Telur að ef eitthvað fyrirtæki eigi inni aðstoð sé það Icelandair Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, skorar á íslensk stjórnvöld að horfa til þeirra tekna sem Icelandair hefur skapað ríkissjóði í gegnum árin. Hann fullyrðir að ef eitthvað fyrirtæki eigi inni aðstoð þá sé það Icelandair. Viðskipti innlent 14. maí 2020 10:42
„Grafalvarlegt ef Icelandair færi í þrot“ Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ef Icelandair yrði gjaldþrota myndi það þýða að batanum í efnahagslífinu hér á landi yrði seinkað um eitt til tvö ár. Viðskipti innlent 14. maí 2020 10:41
Fjármálaráðherra segir sams konar flugfélag verða að rísa á rústum Icelandair fari félagið í þrot Fjármálaráðherra segir verðmæti Icelandair felast í leiðarkerfi þess með Keflavíkurflugvöll sem miðstöð í norður Atlantshafsflugi. Takist ekki að bjarga félaginu verði að reisa annað sams konar félag á grunni þess. Innlent 13. maí 2020 19:20