Orlando fjárfestir fyrir 12 milljarða Forráðamenn NBA liðsins Orlando Magic hafa ekki setið auðum höndum undanfarna daga og fjárfesta nú grimmt. Í dag skrifaði miðherjinn Dwight Howard undir nýjan samning við félagið sem sagður er vera til fimm ára og upp á um 85 milljónir dollara. Körfubolti 12. júlí 2007 19:33
Oden spilar ekki meira í sumardeildinni Miðherjinn Greg Oden getur ekki spilað meira í sumardeildinni í NBA því hann þarf að fara í aðgerð til að láta taka úr sér hálskirtlana. Oden var valinn númer eitt af Portland í nýliðavalinu á dögunum og þykir mikið efni. Hann hefur alls ekki náð sér á strik í sumardeildinni til þessa og kennir veikindum sínum um úthaldsleysi sitt. Körfubolti 11. júlí 2007 17:06
Francis keyptur út hjá Portland Fjölmiðlar í Bandaríkjunum greina frá því í morgun að bakvörðurinn Steve Francis muni verða keyptur út úr samningi sínum hjá Portland Trailblazers fyrir um 30 milljónir dollara. Francis var skipt til Portland frá New York á dögunum, en félagið hefur ekki í hyggju að nota leikstjórnandann. Körfubolti 11. júlí 2007 15:15
Vopnaðir menn rændu Antoine Walker Framherjinn Antoine Walker hjá Miami Heat í NBA deildinni lenti í óskemmtilegri reynslu í gærkvöldi þegar vopnaðir ræningjar stálu öllu steini léttara í íbúð hans í Chicago. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Walker er rændur á ferli sínum í NBA. Körfubolti 10. júlí 2007 16:45
Nýliðarnir ryðgaðir í byrjun Nýliðarnir Greg Oden hjá Portland og Kevin Durant hjá Seattle voru boðnir velkomnir í NBA deildina á dögunum þegar þeir spiluðu sína fyrstu leiki í sumardeildinni. Oden og Durant voru valdir númer 1 og 2 í nýliðavalinu um daginn og eru miklar vonir bundnar við þá á næstu árum. Körfubolti 7. júlí 2007 13:30
Nocioni gerir fimm ára samning við Bulls Argentínumaðurinn Andres Nocioni hjá Chicago Bulls hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið upp á um 38 milljónir dollara, en samningurinn verður ekki tilkynntur formlega fyrr en 11. júlí. Nocioni skoraði 14 stig og hirti 5,7 fráköst fyrir Chicago í vetur. Hann er 27 ára gamall framherji og spilar með landsliði Argentínu. Körfubolti 7. júlí 2007 13:18
Billups nær samningum við Detroit ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í nótt að leikstjórnandinn Chauncey Billups hafi náð samkomulagi við Detroit Pistons um að framlengja samning sinn við félagið um 5-6 ár og fái fyrir það 60 milljónir dollara. Umboðsmaður Billups hafði áður vísað svipuðum fréttum á bug. Körfubolti 7. júlí 2007 13:13
Kobe Bryant baðst afsökunar Stórstjarnan Kobe Bryant hjá LA Lakers segist hafa beðið framkvæmdastjóra félagsins afsökunar á ummælum sínum fyrir fimm vikum þegar hann heimtaði að fara frá félaginu. Bryant hefur ekki dregið ósk sína til baka, en segist hafa hlaupið aðeins á sig vegna óþolinmæði í garð forráðamanna félagsins. Körfubolti 7. júlí 2007 12:57
Grant Hill semur við Phoenix Framherjinn Grant Hill sem leikið hefur með Orlando Magic í NBA deildinni síðustu ár skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Phoenix Suns. Hill var með lausa samninga hjá Orlando en gengur nú til liðs við Steve Nash og félaga þar sem hann mun spila fyrir algjör lágmarkslaun næstu tvö árin. Körfubolti 5. júlí 2007 20:30
Stórskyttan Navarro á leið til Washington Spænska stórskyttan Juan Carlos Navarro hjá körfuboltaliði Barcelona hefur fengið sig lausan undan samningi við félagið og hefur ákveðið að ganga í raðir Washington Wizards í NBA deildinni. Washington átti réttinn á hinum 27 ára gamla Navarro sem segir það draum fyrir sig að fá að reyna sig meðal þeirra bestu. Körfubolti 4. júlí 2007 20:48
Carlesimo tekur við Seattle Supersonics Seattle Supersonics í NBA deildinni virðist nú loksins hafa tekist að ráða sér þjálfara ef marka má fréttir frá Bandaríkjunum. Félagið hefur enn á ný leitað í raðir NBA meistara San Antonio til að ná sér í mannskap því í nótt gengur það frá ráðningu PJ Carlesimo, sem verið hefur aðstoðarþjálfari Spurs síðustu fimm ár. Körfubolti 4. júlí 2007 20:07
Grant Hill tekur ákvörðun í vikunni Framherjinn Grant Hill ætlar að taka ákvörðun um framtíð sína í NBA deildinni fyrir helgi, en hann er með lausa samninga eftir að hafa leikið með Orlando undanfarin ár. Phoenix þykir líklegasta félagið til að landa Hill en Detroit, San Antonio, Miami og Dallas hafa einnig borið víurnar í þennan reynda kappa. Körfubolti 4. júlí 2007 20:01
Darko úti í kuldanum Umboðsmaður Darko Milicic hjá Orlando Magic er ekki sáttur við forráðamenn NBA-liðsins eftir að þeir drógu til baka fyrirhugað tilboð um framlengingu á samningi hans. Orlando hefur boðið Rashard Lewis svo háan samning að óvíst er hvort félagið nær að halda Milicic í kjölfarið. Körfubolti 4. júlí 2007 19:54
Rashard Lewis samþykkir að fara til Orlando Magic Framherjinn Rashard Lewis hjá Seattle Supersonics hefur tjáð forráðamönnum Orlando Magic að hann vilji skrifa undir samning við félagið. Lewis er með lausa samninga hjá Seattle í sumar eftir að hafa skorað yfir 22 stig að meðaltali fyrir Seattle síðasta vetur. Körfubolti 3. júlí 2007 12:44
Carter leysir sig undan samningi við Nets Rod Thorn, forseti New Jersey Nets, tilkynnti í gær að körfuboltakappinn Vince Carter hafi nýtt sér ákvæði í samning sínum og sé búinn að leysa sig undan samningi við liðið. Körfubolti 1. júlí 2007 14:48
Portland valdi Oden í nýliðavali NBA Nýliðavalið í NBA körfuboltanum fór fram í gærkvöldi sem er það sterkasta í mörg ár. Portland Trail Blazers, sem höfðu fyrsta valrétt, veðjuðu á miðherjann Greg Oden sem var valinn besti varnarleikmaðurinn í háskólakörfuboltanum í vetur. Hann er sagður besti stóri maðurinn til að koma inn í NBA deildina síðan Tim Duncan árið 1997. Körfubolti 29. júní 2007 12:36
Portland ætlar að velja Greg Oden ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í dag að hún hafi heimildir fyrir því að Portland Trailblazers ætli að nota fyrsta valrétt sinn í nýliðavali NBA í nótt til að velja miðherjann Greg Oden frá Ohio State háskólanum. Fastlega er reiknað með því að Seattle Supersonics muni þá taka Kevin Durant frá Texas með öðrum valrétti sínum. Körfubolti 28. júní 2007 11:28
Wallace með lausa samninga Framherjinn Gerald Wallace hjá Charlotte Bobcats verður með lausa samninga hjá liðinu á sunnudaginn eftir að hann ákvað í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við félagið. Wallace verður væntanlega eftirsóttur á næstu dögum eftir frábært tímabil í fyrra. Körfubolti 26. júní 2007 22:00
Chauncey Billups á markaðnum Leikstjórnandinn Chauncey Billups hjá Detroit Pistons kaus í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við Detroit Pistons í NBA deildinni og verður því með lausa samninga um mánaðarmótin. Tvö lið eru talin hafa mikinn áhuga á að fá Billups í sínar raðir en Detroit er í bestu aðstöðunni til að bjóða honum góðan samning. Körfubolti 25. júní 2007 16:43
Kirilenko beðinn að taka sig saman í andlitinu Larry Miller, eigandi Utah Jazz í NBA deildinni, hefur farið þess á leit við framherjann Andrei Kirilenko að hann hætti að væla og fari að spila eins og maður. Kirilenko olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili og Miller upplýsti áhugaverða hluti um Rússann í útvarpsviðtali á dögunum. Körfubolti 23. júní 2007 20:15
Garnett sagði nei við Boston Celtics ESPN sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum hefur eftir heimildamanni sínum í nótt að Boston Celtics og Minnesota Timberwolves hafi verið komin að samkomulagi um leikmannaskipti sem hefðu þýtt að stórstjarnan Kevin Garnett hefði farið til Boston. Ekkert varð þó af skiptunum því Garnett sagði nei takk. Minnesota er nú sagt í viðræðum við Phoenix um að taka við Garnett, en þangað er hann sagður vilja fara ofar öllu. Körfubolti 22. júní 2007 00:58
Reggie Theus tekur við Sacramento Kings NBA lið Sacramento Kings hefur ráðið fyrrum leikmann liðsins Reggie Theus sem næsta þjálfara félagsins. Theus spilaði með Kings þegar liðið var í Kansas City á sínum tíma en er nú að taka við þjálfun NBA liðs í fyrsta sinn á ferlinum. Hann var áður þjálfari New Mexico State í Háskólaboltanum og leysir Eric Musselman af hólmi eftir að hann vann aðeins 33 leiki með Sacramento í vetur. Körfubolti 20. júní 2007 13:48
Baron Davis er liðtækur rappari Þeir eru ekki ófáir NBA-leikmennirnir sem hafa reynt fyrir sér í rappinu með misgóðum árangri. Menn á borð við Shaquille O´Neal, Allen Iverson, Tony Parker og Ron Artest hafa sent frá sér lög og skífur sem hafa fengið vægast sagt misjafna dóma. Í myndbandinu sem sjá má með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan má heyra framlag Baron Davis til rappsins, en þar er hann að ríma með vini sínum Mr Drastick. Körfubolti 19. júní 2007 12:45
Jackson á ekki von á að Bryant fari frá Lakers Engin frétt hefur stolið senunni jafn rækilega í NBA deildinni síðustu vikur eins og yfirlýsing Kobe Bryant um að hann vilji fara frá liði LA Lakers. Bryant virðist harður á því að vilja fara frá félaginu, en þjálfari hans Phil Jackson á ekki von á því að liðið verði án hans þegar keppni hefst á ný í deildinni í haust. Körfubolti 19. júní 2007 10:52
Formsatriði - San Antonio NBA meistari 2007 San Antonio tryggði sér í nótt fjórða NBA titil félagsins síðan árið 1999 þegar liðið lagði Cleveland 83-82 á útivelli og vann því úrslitaeinvígið örugglega 4-0. Franski leikstjórnandinn Tony Parker var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna eftir að hafa verið óstöðvandi í einvíginu. Körfubolti 15. júní 2007 04:18
San Antonio getur orðið NBA meistari í nótt Fjórði leikur Cleveland og San Antonio í úrslitaeinvíginu í NBA deildinni fer fram klukkan eitt í nótt og verður sýndur beint á Sýn. Þar getur San Antonio orðið meistari í þriðja sinn á fimm árum með sigri þar sem liðið er með 3-0 forystu í einvíginu. Körfubolti 14. júní 2007 20:34
Kobe Bryant mætti á æfingu hjá Barcelona Körfuboltastjarnan Kobe Bryant er nú í sumarfríi í Evrópu og í dag lét hann gamlan draum rætast þegar hann fékk að fylgjast með æfingu hjá spænska stórliðinu Barcelona. Bryant ólst upp á Ítalíu og var Frank Rijkaard þjálfari Barcelona uppáhaldsleikmaður hans á sínum tíma. Körfubolti 14. júní 2007 18:48
Grant Hill til Phoenix eða San Antonio? Framherjinn Grant Hill sem leikið hefur með Orlando Magic undanfarin ár hallast að því að ganga í raðir San Antonio eða Phoenix á næsta tímabili. Hann er með lausa samninga og langar mikið að ganga í raðir liðs sem hefur möguleika á að vinna meistaratitilinn næsta sumar. Hill segir sjálfur að það myndi líklega henta sínum leikstíl best að ganga í raðir Phoenix. Körfubolti 14. júní 2007 18:00
Houston og Minnesota að skipta á leikmönnum ESPN sjónvarpsstöðin greindi frá því í gærkvöld að Houston Rockets og Minnesota Timberwolves væru búin að samþykkja skipti á leikmönnum sem færu væntanlega fram á næstu dögum. Minnesota mun senda bakvörðinn Mike James til Houston í skiptum fyrir hinn reynda framherja Juwan Howard. Til greina kemur að fleiri leikmenn skipti um heimilisfang í viðskiptunum þegar að þeim kemur. Körfubolti 14. júní 2007 17:00
LeBron James orðinn faðir á ný Stórstjarnan LeBron James hjá Cleveland Cavaliers í NBA deildinni hefur ekki haft mikla ástæðu til að fagna undanfarna daga þar sem lið hans er undir 3-0 í úrslitaeinvíginu við San Antonio Spurs. Hann gat þó leyft sér að brosa í nótt þegar kona hans ól honum sitt annað barn. Nafnið sem strákurinn fékk er ekki af ódýrari gerðinni frekar en nafn frumburðarins. Körfubolti 14. júní 2007 15:47