Tilboð í nafla alheimsins Það kemur margt gott frá útlöndum. Ég er til dæmis þakklátur fyrir að hafa IKEA á Íslandi, mér finnst leiðinlegt að McDonald's hafi farið, ég vona að Bauhaus opni einn daginn og mig dreymir um H&M-búð á ofanverðum Laugaveginum. Ég myndi fátt vilja frekar en að hingað kæmu fleiri vondar erlendar keðjur til að græða á Íslendingum. Þeir sem verslað hafa beggja vegna hafsins, og víðar, vita að þar er oft gaman að láta græða á sér. Fastir pennar 2. september 2011 06:00
Hagsmunir okkar allra Heildarendurskoðun á stjórn laga um fiskveiðar stendur nú yfir og hefur frumvarpið sem lagt var fram í vor verið í umsagnarferli. Nú mun sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd skila frá sér áliti ásamt umsögnunum til ráðherra en ekki kalla til umsagnaraðila á septemberþingi að ósk stjórnarandstöðunnar við þinglok í vor. Mikil gagnrýni hefur komið fram á frumvarpið af hálfu margra hagsmunaaðila og telja menn því helst til foráttu að framsal sé bannað og veðsetning aflaheimilda ekki leyfð og þar með sé komið í veg fyrir enn meiri hagræðingu í fækkun skipa og vinnslustöðva um landið, einnig að nýtingarsamningar séu til of skamms tíma þ.e. allt að 23 ár. Skoðun 31. ágúst 2011 06:00
Of rangt til hægri Hafa Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn færst lengra til hægri á undanförnum mánuðum? Það fer dálítið eftir því hvaða skilning menn leggja í hægri. Skilji menn hægri sem dálæti á hinu þekkta og liðna ásamt efasemdum um ágæti þess nýja og óþekkta þá er svarið já. Skoðun 26. ágúst 2011 06:00
Hverjir eru frjálslyndastir? Upp á síðkastið hefur mörgum orðið tíðrætt um frjálslyndi – hverjir séu það og hverjir ekki. Ýmsir hafa haldið því fram að þeir séu frjálslyndir en "hinir“, þ.e.a.s. þeir sem ekki aðhyllast sömu skoðun og þeir "frjálslyndu“, séu þar af leiðandi öfgafullir og afturhaldssamir, jafnvel ofstopafullir þjóðernissinnar. Það sérkennilegasta við þessa nýjustu "pissukeppni“ í frjálslyndi er að mælikvarði þeirra sem telja sig hafa einkarétt á frjálslyndinu virðist vera áhugi þeirra á að Ísland gerist aðili að tolla- og viðskiptabandalagi Evrópuþjóða – ESB. Skoðun 26. ágúst 2011 06:00
Lausnin á skuldum heimilanna er forgangsmál Nú í lok vikunnar kemur Alþingi saman á ný. Ég hef reyndar mælst til þess nokkrum sinnum í sumar að þingið yrði kallað saman til að ræða ýmis mál sem tæplega þoldu bið. Þeirra á meðal er ríkisskuldakrísa Evrópuríkjanna, sem aðeins er spurning hvenær en ekki hvort mun hafa áhrif hér á landi. Mikil umræða hefur eðlilega skapast um Evrópumál í sumar vegna þess vanda sem nú steðjar að fjármálalífi ESB-ríkjanna og skoðanir manna eru ákaflega mismunandi. Svo mismunandi að Framsókn hefur nú orðið að sjá á eftir Guðmundi Steingrímssyni. Skoðun 26. ágúst 2011 06:00
Kolbeinn Proppé og Landspítalinn Kolbeinn Óttarsson Proppé, núverandi blaðamaður og fyrrverandi varaborgarfulltrúi R-listans og oddviti VG í Suðurkjördæmi, skrifar um mig í Fréttablaðinu sl. fimmtudag. Ég kemst ekki hjá því að leiðrétta rangfærslur í grein hans. Skoðun 20. ágúst 2011 06:00
Ríkið mun hjálpa Sumir leigja þær íbúðir sem þeir búa í. Aðrir eiga þær íbúðir sem þeir búa í. Flestir þeirra sem eiga íbúðirnar eiga þær þó einungis í þeim skilningi að þeir hafa skuldbundið sig til að greiða einhverjum öðrum stóran hluta tekna sinna nær alla starfsævi fyrir að fá að búa þar. Þú átt íbúðina en bankinn á þig. Snilldarfyrirkomulag. Fastir pennar 19. ágúst 2011 06:00
Reikningsskapur Þegar þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar birtist loks eftir dúk og disk lét oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík hafa eftir sér að hann skildi ekki upphlaup minnihlutans og þætti það reyndar vandræðalegt. Áður en Dagur Eggertsson og Jón Gnarr tóku höndum saman hefðu áætlanir aðeins verið framreikningar og því líklega ekki merkilegir pappírar. Þeir kumpánar kynnu hins vegar til verka og myndu ekki afgreiða neinar áætlanir nema allt væri komið upp á borðið varðandi kostnað. Skoðun 16. ágúst 2011 07:00
Ökufantagerði Þeir ökunemar sem ljúka námi í dag þurfa að fá þjálfun í svokölluðum ökugerðum þar sem bílar eru látnir lenda í ýmsum ævintýrum eins og að renna til í hálku. Þetta hljómar skemmtilegt og gagnlegt þótt ekki sé víst að hið síðarnefnda sé rétt. Í handbókinni Handbook of Road Safety Measures sem mælir árangur af ýmsum ráðstöfunum í umferðaröryggismálum er þannig vitnað til tveggja rannsókna á fylgni milli hálkuþjálfunar og slysatíðni. Báðar rannsóknirnar sýndu að slysatíðni ungra ökumanna sem fóru í gegnum slíka þjálfun jókst. Fastir pennar 12. ágúst 2011 06:00
Sjónarspil á þingi Á fyrsta nefndarfundi Alþingis eftir sumarfrí var það val ríkisstjórnarflokkanna að kalla saman þrjár nefndir, utanríkismálanefnd, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og umhverfisnefnd. Málefnið var fundur í Alþjóðahvalveiðiráðinu sem haldinn var fyrr í sumar. Skoðun 12. ágúst 2011 06:00
Öfugþróun snúið við Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins, skrifaði á dögunum ágæta grein í Fréttablaðið um miðbæ Reykjavíkur. Það heyrir til undantekninga að íslenskir þingmenn láti sig borgina einhverju varða. Þeir sem fylgst hafa með öflugri og málefnalegri umræðu um þróun borgarinnar, og borga yfirleitt, undanfarin misseri, vita þó að Sigmundur Davíð hefur lagt til hennar mikilvægan skerf. Hann hefur fært okkur sannfærandi, hagfræðileg rök fyrir því að það er óskynsamlegt að rífa niður gömul hús í gömlum miðbæjum í stórum stíl, hvað þá að leyfa þeim að grotna niður. Skoðun 11. ágúst 2011 11:00
Þar sem ábyrgðin liggur Tilkynnt hefur verið um óvenju margar nauðganir eftir síðustu verslunarmannahelgi. Það er viðbúið að þegar viðbjóðslegir glæpir eiga sér stað verði fólki umhugað um hvernig megi koma í veg fyrir þá. Umræðan síðustu daga hefur því einkennst af vangaveltum um hvort gæsla og aðbúnaður á útihátíðum sé nægileg og hvort þjónusta við þolendur sé góð. Það er skiljanlegt og sjálfsagt að velta við öllum steinum í svo mikilvægri umræðu til að reyna að gera betur. Skoðun 6. ágúst 2011 06:00
Lýðræðið ógn við lýðræðið? Nái tillögur stjórnlagaráðs um kosningakerfi fram að ganga mun kjósandi á kjördag standa frammi fyrir kjörseðli sem er svipaður þeim sem notast er við nú, að öðru leyti en því að fyrir neðan listann með frambjóðendum hvers flokks í kjördæminu verður annar listi, svokallaður landslisti, þar sem verður að finna frambjóðendur flokksins á landsvísu. Þannig munu allir landsmenn geta lýst skoðun sinni á helstu leiðtogum flokkanna og kosið frambjóðendur sem búsettir eru utan þeirra kjördæmis, bjóði þeir sig fram á landslista. Fastir pennar 5. ágúst 2011 12:30
Tómlæti er ekki í boði Frá því á föstudaginn langa 22. júlí hef ég fylgst af vaxandi aðdáun með því hvernig Norðmenn hafa brugðist við ólýsanlegum hörmungum af reisn, yfirvegun og mannkærleika. Á Íslandi getur engum dulist að hryðjuverkin í Noregi færa illskuna sem þrífst í sálum fjöldamorðingja á borð við Anders Behring-Breivik óþægilega nálægt okkur. Skoðun 5. ágúst 2011 07:30
Moggalygi í Magmamáli Mér þótti merkilegt að lesa það á síðum Morgunblaðsins og á Víkurfréttavefnum, haft eftir sjálfstæðismanninum og bæjarstjóranum Ásmundi Friðrikssyni, að kaup lífeyrisjóðanna á hlut í HS Orku og greiðslur Alterra Power (Magma) til eiganda síns, væri lokahnykkurinn í svikamyllu Steingríms nokkurs Sigfússonar í þessu alkunna Magmamáli. Skoðun 5. ágúst 2011 07:00
Stjórnlögum náð Störfum stjórnlagaráðs lýkur í dag. Sem einn þeirra sem fengu að taka þátt í þeirri vegferð sem smíði nýs frumvarps til stjórnskipunarlaga er, get ég auðvitað ekki varist því að upplifa ákveðinn sjálfshátíðleika. Það er merkileg tilfinning að vera í þeim sporum sem fimm hundruð manna og kvenna vildu vera í. Seint verður það traust þakkað nóg. Fastir pennar 29. júlí 2011 09:00
Góða umferðarhelgi! Við upphaf mestu umferðarhelgar ársins er ekki úr vegi að ökumenn hugleiði helstu orsakir alvarlegra umferðarslysa áður en lagt er út á þjóðvegi landsins. Hver og einn getur síðan metið með sjálfum sér hvort hann þurfi að breyta aksturslagi sínu. Skoðun 29. júlí 2011 06:00
Miðbær Reykjavíkur Þótt áhrif loftbóluhagkerfisins sírædda hafi verið mikil voru þau að mörgu leyti ekki sýnileg eða áþreifanleg. Öðru mál gegnir um miðbæ Reykjavíkur. Þar blasa áhrifin við í niðurníddum og yfirgefnum húsum, auðum lóðum, gleri, stáli og steinsteypu. Loftbólumyndun í efnahagsmálum hefur oft skelfilegar afleiðingar fyrir umhverfið og skynsemi í skipulagsmálum fer oft út um gluggann. Auk þess getur skipulag verið til þess fallið að blása lofti í bóluna. Skoðun 28. júlí 2011 07:00
Samfylkingin í afneitun Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi skrifar grein í Fréttablaðið á föstudag þar sem hún reynir að réttlæta slæleg vinnubrögð borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingar og Besta flokksins vegna fjárhagsáætlunargerðar. Greinin sýnir að borgarfulltrúar Samfylkingar láta sér í léttu rúmi liggja að Reykjavíkurborg er komin rúmum fimm mánuðum fram yfir lögbundinn frest vegna skila á þriggja ára fjárhagsáætlun til innanríkisráðuneytisins. Skoðun 26. júlí 2011 11:00
Upplausn í Ráðhúsi Reykjavíkur Við núverandi aðstæður í efnahagsmálum skiptir miklu máli að Reykjavíkurborg haldi þeirri sterku fjárhagslegu stöðu, sem byggð var upp á síðasta kjörtímabili undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Minnstu veikleikamerki geta hæglega rýrt traust borgarinnar gagnvart fjárfestum, en gott traust er forsenda þess að hún og fyrirtæki hennar geti sótt sér lánsfé á hagstæðum kjörum. Skoðun 21. júlí 2011 09:00
Múgurinn spurður II Ögmundur vill hafa flugvöll í Vatnsmýrinni. Hann má þó eiga það að þrátt fyrir þessa afstöðu þá hefur hann gefið hina misráðnu hugmynd um samgöngumiðstöð upp á bátinn. Fastir pennar 15. júlí 2011 06:00
Múgurinn spurður Í þeim fræðum sem snúa að beinni þátttöku almennings í töku ákvarðana er stundum gerður greinarmunur á þeim þjóðaratkvæðagreiðslum sem stofnað er til að kröfu kjósenda, eða vegna þess að þeirra er krafist samkvæmt lögum, og svo þeim sem stjórnmálamennirnir sjálfir setja í gang. Á ensku kalla sumir fræðimenn þær fyrrnefndu „referendum“ en nefna þær síðarnefndu „plebiscite“. „Referendum“ er gjarnan þýtt sem þjóðaratkvæði. „Plebiscite“ mætti þýða sem „múgspurningu“. Fastir pennar 8. júlí 2011 07:30
Dómskerfi nr. 2 Það fyrirkomulag sem viðhaft er við ákærur og dómsmál á hendur ráðherrum hérlendis og í nokkrum nágrannalanda virkar hvorki sérlega rökrétt né raunar sérlega geðslegt. Hvorki ákæruferlið né dómsferlið samræmast hugmyndum um hvernig best skuli staðið að slíkum málum innan réttarkerfisins. Betra væri að hafa eitt dómskerfi í landinu en tvö. Fastir pennar 1. júlí 2011 07:00
Er þetta nýja Ísland? Nú eru nærri þrjú ár frá hruni – meira en tvö og hálft ár frá því að ríkisstjórn VG og Samfylkingar tók við stjórnartaumum og sagðist ætla að breyta öllu til hins betra. Hver er staðan í raun? Skoðun 28. júní 2011 05:00
Allt annað mál Sú yfirlýsing RÚV að stöðin myndi ekki sýna barnaþætti þar sem erlendum orðum er skotið í samræður, gjarnan í kennsluskyni, er án efa með fýlupúkalegri fréttum á þeim hluta ársins 2011 sem er að líða. Fastir pennar 24. júní 2011 09:00
Sumarbústaðagettó Það ríkir einstök og merkileg aðskilnaðarstefna í ferðamálum á Íslandi. Innfæddir keyra allt sjálfir, tjalda og gista í bústöðum. Útlendingarnir eru keyrðir og látnir gista á hótelum. Það þykir sérstakt markmið að bjóða hinum erlendu gestum sem dýrasta gistingu en hinum innlendu sem ódýrastan valkost við hana. Fastir pennar 10. júní 2011 00:00
Læknasmók Menn segja stundum að frelsið glatist sjaldnast allt í einu heldur hægt og í smáum skrefum. Það er ekki alltaf satt. Stundum eru skrefin stór, hröð og endatakmarkið ljóst. Tillögur nokkurra þingmanna um því sem næst allsherjarbann á sölu, neyslu og umræðu um tóbak hafa fengið verðskuldaða athygli almennings. Þingmönnunum er það raunar til hróss að sýna okkur endastöðina í þessum leiðangri sínum. Hún liggur fyrir. Fastir pennar 3. júní 2011 09:00
Laugavegur: Aðlaðandi sumargata Laugavegurinn er ekki sérlega aðlaðandi fyrir fótgangandi þegar bílaumferðin er sem mest. Það er til að mynda ekkert gaman að vera þar á gangi með lítil börn. Skoðun 3. júní 2011 09:00
Enn er beðið eftir lausn á skuldavandanum Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar féll veitti Framsókn minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna vernd fram að kosningum gegn því að hún uppfylltri þrjú skilyrði. Skoðun 1. júní 2011 06:00
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun
Haukur Arnþórsson og misskilningur hans um hæfi Sigurjóns Þórðarsonar Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun