Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Alls sóttu 26 um stöðu bæjarstjóra Suðurnesjabæjar sem auglýst var laus til umsóknar á dögunum, en tveir drógu umsókn sína til baka. Innlent 24.6.2026 13:43
Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur samþykkt að ráða Írisi Eddu Jónsdóttur sem sveitarstjóra. Íris var oddviti framboðsins Sterkrar stoðar í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfkjörið var í hreppnum þar sem aðeins einn listi var í framboði. Innlent 22.6.2026 21:54
Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Rúmur helmingur Reykvíkinga hefði verið óánægður ef Hildur Björnsdóttir hefði valið að mynda tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Væntingar til Hildar sem borgarstjóra eru þónokkrar en liðlega helmingur hefur fremur miklar eða mjög miklar væntingar til hennar. Hildur leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum. Innlent 22.6.2026 19:40
Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri Norðurþings, verður ráðinn sveitarstjóri sveitarfélagsins í næstu viku. Hann tekur við af Katrínu Sigurjónsdóttur, sem var einnig fagráðin. Fjögurra flokka meirihluti var myndaður í sveitarfélaginu eftir síðustu kosningar. Innlent 6. júní 2026 17:51
Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Ásta Stefánsdóttir hefur verið endurráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Ásta hefur gegnt stöðunni síðastliðin átta ár. Ný sveitarstjórn kom í vikunni saman á sínum fyrsta fundi. Innlent 6. júní 2026 14:29
Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi sínu í Kópavogi. Innlent 6. júní 2026 14:00
Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Ný bæjarstjórn í Fjallabyggð fundaði í fyrsta sinn í gær. S-listi Jafnaðarfólks og H-listi Fyrir heildina í Fjallabyggð mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn. Innlent 5. júní 2026 14:19
Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Hilmar Gunnarsson hefur tekið við sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynduðu nýjan meirihluta í sveitarfélaginu eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar en Hilmar er oddviti Sjálfstæðismanna. Innlent 4. júní 2026 23:26
Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Nýr meirihluti tók við á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði fyrr í dag. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar kynntu á fundinum nýjan meirihlutasáttmála fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Innlent 3. júní 2026 16:37
Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Vilhjálmur Árnason tók formlega til starfa sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar í gær, 2. júní, á fyrsta bæjarstjórnarfundi nýs meirihluta. Hann er því samtímis þingmaður Suðurkjördæmis og bæjarstjóri Reykjanesbæjar í fáeina daga. Innlent 3. júní 2026 14:40
Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri Reykjavíkur í gær en hún hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðustu fjögur ár og borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Það er þó ýmislegt sem ekki allir vita um nýja borgarstjórann sem á fjögur börn, er með þrjár háskólagráður og ber sérkennilegt gælunafn. Lífið 3. júní 2026 07:00
Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Norðurþings. Málefnasamningur var undirritaður í dag. Innlent 2. júní 2026 23:43
Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Lilja Björg Ágústsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar. Hún fer til Dalanna úr Borgarbyggð þar sem hún vann sem sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu. Innlent 2. júní 2026 20:51
Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fara með formennsku í sjö af átta fagráðum borgarinnar. Kjörið var í ráðin á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag. Þar var ráðum einnig fjölgað. Innlent 2. júní 2026 20:28
Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri í dag. Hún segir starfinu fylgja mikil ábyrgð og að hún muni skera niður í stjórnkerfinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð. Í tillögum nýs meirihluta er gert ráð fyrir að lengja opnunartíma sundlauga um helgar á sumrin til miðnættis og afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Innlent 2. júní 2026 19:32
Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi þingkona Sjálfstæðisflokks og forseti þingsins, verður sveitarstjóri í sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Tilkynnt var um ráðningu hennar í dag á sama tíma og nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlistans undirritaði málefnasamning sinn. Innlent 2. júní 2026 18:38
Ari missti af fyrsta fundinum Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, var fjarverandi á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag þar sem hann var erlendis. Hann segist eiga eftir að ákveða hvort hann þiggi boð nýs borgarstjórnarmeirihluta um að gerast stjórnarformaður í Orkuveitu Reykjavíkur, en hann væntir þess að taka þá ákvörðun í næstu viku, þegar búið verður að tilnefna í stjórn. Innlent 2. júní 2026 16:31
„Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Þakklæti er efst í huga hjá Heiðu Björgu Hilmisdóttur sem lét af embætti borgarstjóra í dag. Hún stefnir á að gegna embætti borgarfulltrúa næstu fjögur árin enda sé enn margt sem hægt er að bæta. Innlent 2. júní 2026 15:55
Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Mikill áhugi var á umfjöllun fréttastofu Sýnar um nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar samkvæmt rafrænum ljósvakamælingum Gallup. Kappræðurnar á miðvikudagskvöldi fyrir kosningar náði til tæplega 73 þúsund manna hér á landi. Innlent 2. júní 2026 13:48
Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Hildur Björnsdóttir var kjörin borgarstjóri Reykjavíkur á fyrsta fundi nýs kjörtímabils í dag. Hún tekur við lyklunum af Heiðu Björgu Hilmisdóttur á skrifstofu borgarstjóra klukkan 13:30. Beina útsendingu frá athöfninni má sjá á Vísi. Innlent 2. júní 2026 13:20
Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík furðar sig á því að flokkarnir sem hafi lofað því að minnka báknið í borginni láti það verða sitt fyrsta verk að fjölga nefndum í borgarstjórn. Hann segir Samfylkingu munu styðja góð mál. Innlent 2. júní 2026 11:28
Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Nýr meirihluti í Reykjavík mun leggja fram tólf tillögur á fyrsta borgarstjórnarfundi eftir kosningar, sem hefst í hádeginu í dag. Þá verður lagt til að stofnuð verði þrjú ný ráð í borginni. Innlent 2. júní 2026 06:33
Afsögn enn ódagsett Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, oddviti flokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og verðandi bæjarstjóri, segir ekki komna fasta dagsetningu á hvenær hann muni segja sig frá þingmennsku. Innlent 31. maí 2026 16:07
Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og tilvonandi forseti borgarstjórnar, segir nýjan meirihluta ekki ætla að banna hinsegin fánann. Honum, og erlendum fánum, verði flaggað þegar tilefni sé til. Hún segir að utanríkismálum eigi að sinna í utanríkisráðuneytinu. Borgarfulltrúar eigi að vera með fókus á Reykjavík. Innlent 31. maí 2026 13:19