Svíþjóð

Svíþjóð

Höfuðborg: Stokkhólmur. Mannfjöldi: 10,6 milljónir (2025). Flatarmál: 450.295 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Norlén tekinn aftur við og boðar for­menn á fund

Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var í gær endurkjörinn sem forseti sænska þingsins. Norlén fundar á morgun með formönnum flokka til að afhenda nýjum leiðtoga stjórnarmyndunarumboðið. 

Erlent
Fréttamynd

Segist hafa gefist upp á stjórnar­myndun í Sví­þjóð

Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun til vinstri eftir að Vinstriflokkurinn á sænska þinginu hafnaði tillögu Jafnaðarmanna að þingforseta. Þess í stað ákvað flokkurinn að styðja tillögu hægriflokka að þingforseta.

Erlent
Fréttamynd

Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair

Heart Aerospace, fyrirtæki sænska frumkvöðulsins Anders Forslund, hefur kynnt breytta hönnun tvinn-rafmagnsflugvélar sinnar. Núna er fyrirhugað að hún verði með 36 farþegasæti og tuttugu prósentum meiri burðargetu en hin 30 sæta ES-30 flugvél sem áður var stefnt að og Icelandair hafði skráð sig fyrir.

Erlent
Fréttamynd

Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun

Formaður Vinstriflokksins í Svíþjóð telur að rannsókn á kosningasvindli sem gagnaðist nýkjörnum þingmanni flokksins hafi ekki áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Þetta er í fyrsta skipti sem formaðurinn tjáir sig um rannsóknina.

Erlent
Fréttamynd

„Þetta snýst um líf og dauða“

Sænsk-samíska kvikmyndagerðarkonan Amanda Kernell er meðal erlendra gesta Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík (RIFF). Hún kemur til landsins beint frá Toronto eftir heimsfrumsýningu á nýjustu kvikmynd sinni Með frost í hjarta þar sem hún fékk dómnefndarverðlaun. Aðspurð segir hún að þó umfjöllunarefnið sé nýtt hverju sinni þá tengi dramatískir þræðir myndir sínar; leyndarmál innan fjölskyldunnar, og konur sem taka róttækar ákvarðanir koma oftar en ekki við sögu.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Í leyfi á meðan kosninga­svik eru til rann­sóknar

Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð sem virðist hafa notið góðs af kosningasvindli segist ætla í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann segist ekki hafa komið nálægt svindli og engar upplýsingar hafa enn bendlað hann persónulega við það.

Erlent
Fréttamynd

Grunur um al­var­legt kosninga­svindl í Sví­þjóð

Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöldum í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að merkja við sig á kjörseðlinum.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lensk ung­menni drekka minnst af orku­drykkjum

Fimmtungur íslenskra ungmenna á aldrinum fimmtán til nítján ára drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar. 36 prósent drekka orkudrykk vikulega eða oftar. Töluvert fleiri íslensk ungmenni drekka aldrei orkudrykk en ungmenni á öðrum Norðurlöndum. 

Innlent
Fréttamynd

Glæpahópurinn 764: Á­tján ára í tíu ára fangelsi fyrir til­raunir til manndráps og nauðgun á netinu

Átján ára piltur hefur verið dæmdur til tíu ára fangelsis í dómstóli í Umeå í Svíþjóð fyrir tvær tilraunir til manndráps gegn ungmenni í Þýskalandi og fjölmörg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn ástralskri stúlku. Brotin áttu sér stað á netinu og pilturinn hefur verið kallaður „Chai“ í sænskum miðlum og var hluti af glæpahópnum 764.

Erlent
Fréttamynd

Anders­son fær stjórnarmyndunarumboðið

Magdalena Andersson, leiðtogi Sósíaldemókrata í Svíþjóð, hefur fengið umboð til þess að mynda nýja ríkisstjórn Svía eftir að flokkurinn sigraði í þingkosningum um síðustu helgi. Ulf Kristersson sagði af sér sem forsætisráðherra í gær.

Erlent
Fréttamynd

Vill fara með Sví­þjóð í nýja átt

Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, segist vilja fara með Svíþjóð í nýja átt sem kjósendur völdu í kosningum um helgina. Hún leggur áherslu á loftslags-, mennta-, heilbrigðis- og öldrunarmál.

Erlent
Fréttamynd

Sænskur stórglæpon hand­samaður í Marokkó

Fulltrúar Interpol handtóku Ali Namdar, einn leiðtoga Foxtrot-glæpasamtakanna í Svíþjóð, í Marokkó í gær. Hann er grunaður um að hafa lagt á ráðin um fjölda ofbeldisverka, þar á meðal sprengju- og skotárásir á Norðurlöndunum.

Erlent
Fréttamynd

Hafna við­ræðum til hægri

Á morgun verður lokaniðurstaða þingkosningana í Svíþjóð ljós en óformlegar þreifingar formanna flokka eru þó þegar hafnar. Miðflokkurinn hafnaði í gær viðræðum við flokk núverandi forsætisráðherra og sagði hann hafa tapað kosningunum.

Erlent
Fréttamynd

Stjórnar­myndunar­maraþon fram­undan í Sví­þjóð

Allt útlit er fyrir að ríkisstjórn hægri manna í Svíþjóð sé fallin en endanleg niðurstaða þingskosninganna í gær verður þó ekki ljós fyrr en síðar í vikunni. Stjórnmálafræðingur við Háskólann í Malmö segir að framundan sé stjórnarmyndunarmaraþon. 

Erlent
Fréttamynd

Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng

Niðurstöður þingkosninga í Svíþjóð eru enn óráðnar en flest bendir þó til þess að ríkisstjórn hægri manna sé fallin. Óljóst er þó hvernig stjórnarandstaðan ætlar að setja saman ríkisstjórn og stjórnmálaskýrandi sænska ríkissjónvarpsins segir að framundan sé langt pólitískt haust.

Erlent
Fréttamynd

Mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku

Enn er afar mjótt á munum milli hægri og vinstri blokkanna í sænsku þingkosningunum nú þegar búið er að telja 91 prósent atkvæða. Fylking stjórnarandstöðunnar leiðir með örlitlum meirihluta en aðeins eitt þingsæti skilur að fylkingarnar tvær sem berjast um stjórnartaumana.

Erlent
Fréttamynd

Munurinn minnkar í nýrri spá

Forskot stjórnarandstöðunnar minnkar samkvæmt nýrri spá SVT í Svíþjóð um úrslit þingkosninga þar í landi. Aðeins 0,2 prósentustig skilja hægri og vinstri blokkina að. 

Erlent
Fréttamynd

Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám

Samkvæmt útgönguspám SVT og TV4 í Svíþjóð er fylking Magdalenu Andersson og stjórnarandstöðunnar með naumt forskot á fylkingu núverandi forsætisráðherra, Ulf Kristersson. Svíþjóðardemókratar tapa fylgi miðað við skoðanakannanir síðustu daga.

Erlent
Fréttamynd

„Það er mjög jafnt á milli blokkanna“

Útlit er fyrir afar spennandi þingkosningar í Svíþjóð í dag en mjótt er á munum á milli blokkanna tveggja til hægri og vinstri. Dósent í stjórnmálafræði við Háskólann í Malmö segir að myndun stjórnar gæti orðið erfið bæði til hægri og vinstri og fjarhægriflokkur eygir von um sæti við ríkisstjórnarborðið.

Erlent
Fréttamynd

„Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“

Jón Þórðarson og Rikka Sigríksdóttir eru á leið til Svíþjóðar með dóttur sína í aðgerð. Dóttir þeirra fæddist eftir aðeins rúmlega hálfa meðgöngu og var rúmt hálft kíló þegar hún fæddist. Jón og Rikka eru bæði í fæðingarorlofi og eru á um helmingi lægri tekjum en venjulega. Þau segja álagið gífurlegt og erfitt hversu tekjur þeirra eru skertar í fæðingarorlofi. 

Innlent
Fréttamynd

Að­eins um 28 prósent inn­flytj­enda með grunn­færni í les­skilningi

Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði.

Innlent
Fréttamynd

Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF

Sænski stórleikarinn Alexander Skarsgård verður heiðursgestur á setningu RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, í ár sem sett verður í Háskólabíói fimmtudaginn 24. september. Skarsgård tekur við heiðursverðlaunum RIFF í ár fyrir framúrskarandi listfengi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Af­þakkar Grammy-tilnefningu

Sænska poppstjarnan Zara Larsson vill ekki vera tilnefnd sem besti nýliðinn á Grammy-verðlaunahátíðinni 2027. Ástæðan er einföld, hún er enginn nýgræðingur í tónlistinni.

Tónlist