Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin Kjartan Kjartansson skrifar 17. september 2026 11:39 Ulf Kristersson, verðandi fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Vísir/EPA Sigur stjórnarandstöðunnar í Svíþjóð var endanlega staðfestur þegar lokið var við að telja öll atkvæði í dag. Ulf Kristersson, forsætisráðherra, tilkynnti um afsögn sína í kjölfarið.
Engar breytingar urðu á þingstyrk fylkinganna þegar lokið var við að teljast síðustu atkvæðin eftir þingkosningarnar á sunnudag um klukkan 13:15 að staðartíma í dag. Alls fengu stjórnarandstöðuflokkarnir fjórir 176 þingsæti gegn 173 sætum stjórnarflokkanna. Aðeins munaði 50.539 atkvæðum á fylkingunum. Niðurstöður þingkosningaþegar 100% atkvæða hafa verið talin Jafnaðarmannaflokkur Magdalenu Andersson hlaut flest atkvæði, 28 prósent en Moderatarna, flokkur Ulfs Kristersson forsætisráðherra, 19,8 prósent. Kristersson stýrði minnihlutastjórn Moderatarna, Kristilegra demókrata og Frjálslynda flokksins sem Svíþjóðardemókratar vörðu falli. Stjórnarflokkarnir þrír bættu við sig mönnum en Svíþjóðardemókratar töpuðu ellefu þingmönnum. Kristersson lagði fram afsagnarbréf sitt til forseta þingsins eftir að niðurstaðan varð ljós í dag. Í samfélagsmiðlafærslu sagði hann það nú í höndum þingforsetans að taka næstu skref að myndun nýrrar ríkisstjórnar. Búist er við að stjórnarmyndun verði flókin og að Miðflokkurinn verði í oddstöðu. Þá hefur Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, sagst ætla að taka sér hlé sem flokksleiðtogi ef hann verður í stjórnarandstöðu. Það gerði hann einnig eftir þingkosningar árið 2014. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna Amanda Lind Talsmaður Græningja. Daniel Helldén Talsmaður Græningja. Ebba Busch Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra. Elisabeth Thand Ringqvist Formaður Miðflokksins. Jimmie Åkesson Formaður Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson Formaður Sósíaldemókrata. Nooshi Dadgostar Formaður Vinstriflokksins. Simona Mohamsson Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra. Ulf Kristersson Formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Fréttin verður uppfærð.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira