Norskir nei-sinnar bæta við sig Norðmenn fylgjast grannt með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti Norðmanna er enn andvígur því að sækja aftur um aðild að sambandinu. Erlent 11. ágúst 2026 16:47
Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS segir samtökin vilja skýrari samningsmarkmið og að rauð lína verði lögð um eignarhald á fiskveiðiauðlind áður en haldið er í samningsviðræður við Evrópusambandið. Sé það gert setji SFS og sjávarútvegsgrein sig ekki á móti því að það verði haldið áfram með viðræður. Viðskipti innlent 11. ágúst 2026 11:32
Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Landskjörstjórn hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem frétt Morgunblaðsins, um að orðalagi á upplýsingavef Landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok mánaðar hafi verið breytt, er sögð alfarið röng. Innlent 11. ágúst 2026 11:00
,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Formaður Sjálfstæðisflokksins sakar forsætisráðherra um að vera ósamkvæm sjálfri sér í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Segir hún fyrirhugaða hlustunarfundi forsætisráðherrans um landið ekkert annað en kosningaherferð. Innlent 10. ágúst 2026 21:09
Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Opinn fundur Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu er haldinn í Sjálfstæðissalnum í dag. Hægt er að horfa á hann í beinni útsendingu. Innlent 10. ágúst 2026 16:28
Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, segir sumartímann yfirleitt rólegan í fasteignaviðskiptum en það hafi gengið vel í sumar. Hún er bjartsýn fyrir komandi mánuðum þrátt fyrir mögulega riftingu á kjarasamningum og kosningu um Evrópusambandið. Fólk hafi trú á fasteignamarkaðnum og þurfi á honum að halda. Viðskipti innlent 10. ágúst 2026 10:17
Rósa Björk segir já Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, hyggst segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Í stefnu Vinstri grænna er því haldið fram að hagsmunum landsmanna sé best komið utan Evrópusambandsins en rúmlega áttatíu prósent kjósenda flokksins hyggjast þó segja já. Hún segist finna fyrir viðhorfsbreytingu innan flokksins. Innlent 9. ágúst 2026 16:06
Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Prófessor emerítus við lagadeild Háskóla Íslands fullyrðir að gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt. Það dragi þó úr framsalinu verði undantekningar fyrir Ísland miklar og skýrar. Innlent 9. ágúst 2026 15:39
Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Forsætisráðherra vill að þjóðin komi sameinuð út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst, sama hvernig fer. Hún hefur skipulagt ferð um landið í þeim tilgangi að hlusta á væntingar, þrár og áhyggjur fólks í sambandi við atkvæðagreiðsluna. Innlent 9. ágúst 2026 15:06
Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Bogi Ágústsson telur marga landsmenn vera að hluta til í afneitun varðandi breyttan heim og að sú vernd sem við höfum hlotið frá Bandaríkjunum blindi fólk fyrir því að Evrópa gæti verið valkostur. Neikvæð niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst myndi þýða að ekkert verði af framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fóru árin 2009-2013. Innlent 9. ágúst 2026 14:10
Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Ragnar Árnason, prófessor emerítus við Háskóla Íslands, sakar rektor um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar til þjóðarinnar um Ísland og Evrópusambandið með færslu fyrirhugaðs fyrirlesturs dr. Carls Baudenbacher. Rektor Háskóla Íslands segir að sérstakar reglur gildi um hátíðarsal háskólans en að fyrirlestrinum standi annar salur til boða. Innlent 8. ágúst 2026 12:27
Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Það er óskhyggja að vonast til að afgerandi stuðningur með eða á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið fáist upp úr kjörkössunum þann 29. ágúst. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði. Sagan í seinni tíð sýni að afar mjótt verði á munum þegar atkvæði verða talin. Innlent 8. ágúst 2026 12:00
Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Fyrirhuguðum fyrirlestri um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins á að halda 10. ágúst næstkomandi hefur verið færður úr hátíðarsal Háskóla Íslands. Ástæðan mun vera sú að fyrirlesturinn var álitinn of pólitískur. Innlent 7. ágúst 2026 20:54
Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Um sex til sjö hundruð Íslendingar sem búið hafa lengi erlendis munu ekki geta greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst þrátt fyrir að hafa óskað eftir því að komast aftur á kjörskrá. Ný kjörskrá tekur gildi 1. desember ár hvert. Þeirri dagsetningu var hnikað fyrir síðustu þingkosningar en ekki í þetta sinn. Innlent 7. ágúst 2026 19:02
ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill finna „skapandi lausnir“ fyrir báðar hliðar í hugsanlegum aðildarviðræðum vegna sérstöðu Íslands í sjávarútvegi og landbúnaði. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samt að „skapandi lausnir“ séu ekki endilega það sama og varanlegar undanþágur. Innlent 7. ágúst 2026 12:43
Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fór hörðum orðum um suma andstæðinga þjóðaratkvæðagreiðslunnar í erlendu fjölmiðlaviðtali. Hún sakaði þá um að afvegaleiða kjósendur með „kjaftæði“. Innlent 7. ágúst 2026 09:07
Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða yfir fiskveiðiauðlindinni og afleiðingunum af því, áður en kosið verði um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB. Innlent 7. ágúst 2026 06:02
„Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ „Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún segir vegferð ríkisstjórnarflokkanna dapurlega og að ESB-umræðan sé fyrst og fremst ætluð til að breiða yfir stöðu efnahagsmála. Innlent 6. ágúst 2026 23:54
Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Neikvæð mynd er dregin upp af áhrifum aðildaviðræðna og mögulegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið á landbúnað hér á landi, í nýrri skýrslu sem Búnaðarþing lét gera. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna telur að aðild fæli í sér valdaafsal og líkir málinu við sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld. Innlent 6. ágúst 2026 18:51
Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Kerfisbreyting yrði á íslenskum landbúnaði sem hefði áhrif á nær alla grunnþætti hans færi Ísland í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í skýrslu sem Búnaðarþing lét gera um möguleg áhrif aðildar á íslenskan landbúnað. Formaður skýrslunnar óttast að aðild hefði í för með sér valdaframsal á íslenskum landbúnaði. Innlent 6. ágúst 2026 14:40
Svandís segir nei Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra, ætlar að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Það er þvert á vilja flokksmanna hennar. Innlent 6. ágúst 2026 13:03
Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Íslenskum ríkisborgara í Danmörku var synjað um að vera tekinn á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst. Hann taldi að brotið hefði verið á stjórnarskrárvörðum kosningarétti sínum. Innlent 6. ágúst 2026 11:11
51 prósent sé nóg Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekkert geta fullyrt um hvort að Ísland fái undanþágur í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins og fara þurfi inn í viðræðurnar, sem eigi að kosta um tvo milljarða, með stolti. Segi 51 prósent kjósenda nei verði niðurstaðan virt. Innlent 6. ágúst 2026 10:02
Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Bændasamtök Íslands boða til blaðamannafundar þar sem kynnt verður skýrsla milliþinganefndar Bændasamtaka Íslands sem fjallar um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað. Fundinn má sjá í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 6. ágúst 2026 09:38
Hnífjafnt í nýrri könnun Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei. Innlent 5. ágúst 2026 22:10
Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Kristrún Frostadóttir var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun. Þar sat hún fyrir svörum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, stöðuna í efnahagsmálunum og margt fleira. Þá var opnað fyrir símann og hlustendur fengu tækifæri til að ræða við forsætisráðherra. Innlent 5. ágúst 2026 21:01
Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Lítið sem ekkert eftirlit er með fjármögnun þeirra félagasamtaka sem heyja nú kosningabaráttu í kringum atkvæðagreiðslu 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sem þau eru ekki skilgreind stjórnmálasamtök er ekkert þak á fjárframlögum til samtakanna og ekki þarf að birta bókhald þeirra opinberlega. Innlent 5. ágúst 2026 20:31
„Sá spyr sem ekki veit“ „Ég er döpur yfir því hve hatrömm orðaskipti maður hefur séð og ómakleg. Það kemur mér rosalega á óvart hvað lýðræðinu er sýnd mikil lítilsvirðing. Við erum búin að berjast í hundrað ár fyrir fullveldinu okkar og síðan fáum við lýðveldið okkar 1944. Fyrst og síðast byggir það á svipuðu þegar við erum að kjósa okkur valdhafa, í þetta skipti erum við að gefa þjóðinni kost á að segja já eða nei við samningaviðræðum.“ Innlent 5. ágúst 2026 17:12
Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Í nýju myndskeiði á Instagram-síðu samtakanna Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið í ágúst, segir Margrét Rós Sigurjónsdóttir að hún hafi greitt lægri vexti af húsnæðisláni í sænskum krónum, sem væri tengd evru. Sænsk króna er ekki tengd evru. Innlent 5. ágúst 2026 16:20
Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, telur að já-niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst verði túlkuð erlendis sem endurnýjuð ósk Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Innlent 5. ágúst 2026 11:32