Sigrún ráðin aðalbókari Sigrún Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin aðalbókari Póstsins. Sigrún hlaut löggildingu til endurskoðunar árið 1998 og er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í fjármálum fyrirtækja. Viðskipti innlent 30.4.2026 09:57
Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ragnar Þór Jónsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Öryggismiðstöðvarinnar undanfarin tuttugu ár, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Ragnar Þór mun áfram koma að starfsemi félagsins með virkum hætti og taka sæti i stjórn þess á næsta aðalfundi. Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar. Viðskipti innlent 29.4.2026 12:17
Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Brunnur Ventures eflir fjárfestingateymi sitt með þremur nýjum ráðningum í kjölfar stofnunar Brunns III, nýs 7,1 milljarða króna vísisjóðs. Brunnur rekur jafnframt sjóðina Brunn I og Brunn II og stýrir þannig þremur vísisjóðum sem nema samtals yfir 20 milljörðum króna. Viðskipti innlent 29.4.2026 10:28
Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Helga Kristín Biering Auðunsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Um er að ræða nýja stöðu. Viðskipti innlent 21. apríl 2026 12:53
Sigríður Björk aftur færð til Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi Ríkislögreglustjóri, hefur þegar látið af störfum í dómsmálaráðuneytinu en hún varð sérfræðingur þar á bæ eftir að hafa sagt af sér embætti Ríkislögreglustjóra í nóvember. Hún er nú sérfræðingur á skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Innlent 21. apríl 2026 12:22
Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins María Kjartansdóttir hefur verið ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins. Viðskipti innlent 20. apríl 2026 09:03
Tekur við sem forstjóri S4S Ný stjórn var kosin á aðalfundi S4S ehf. nýverið, þar sem Pétur Þór Halldórsson, stofnandi S4S og einn af eigendum félagsins, var kjörinn stjórnarformaður. Samhliða var Runólfur Sanders ráðinn forstjóri S4S. Viðskipti innlent 17. apríl 2026 08:06
Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Lögmennirnir Árni Freyr Sigurðsson, Fjölnir Ólafsson og Hjalti Geir Erlendsson gengu til liðs við eigendahóp LEX lögmannsstofu þann 10. apríl síðastliðinn, en allir hafa þeir gegnt stöðu verkefnastjóra hjá stofunni frá árinu 2023. Viðskipti innlent 16. apríl 2026 10:24
Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins. Innlent 15. apríl 2026 16:52
Jóhann Ingi til Securitas Jóhann Ingi Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og þjónustu Securitas. Viðskipti innlent 14. apríl 2026 14:34
Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna. Hann tekur við starfinu af Davíð Þorlákssyni. Viðskipti innlent 14. apríl 2026 07:34
Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Valdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri auðlinda hjá HS Orku, var kjörin formaður Kvenna í orkumálum (KÍO) á síðasta aðalfundi félagsins í vikunni. Valdís tekur við keflinu af Selmu Svavarsdóttur. Viðskipti innlent 10. apríl 2026 16:00
Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Stefano Gabbana, tískuhönnuður og annar stofnenda Dolce & Gabbana, hefur sagt af sér sem stjórnarformaður tískuhússins sem hann stofnaði með Domenico Dolce. Hann verður áfram í hönnunarhlutverki hjá fyrirtækinu. Tíska og hönnun 10. apríl 2026 11:21
Nýr forstjóri Deloitte fundinn Lovísa Finnbjörnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri ráðgjafarfyrirtækisins Deloitte á Íslandi. Forstjórastaðan losnaði eftir að Þorsteinn Pétur Guðjónsson var ákærður fyrir kynferðisbrot. Viðskipti innlent 10. apríl 2026 09:26
Tekur við af dóttur kærastans Kolbrún Pálína Helgadóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hjá Slippfélaginu. Hún tekur við starfinu af Önnu Bergmann sem er dóttir kærasta Kolbrúnar og var ráðin markaðsstjóri hjá World Class og Laugum Spa í síðasta mánuði. Lífið 9. apríl 2026 14:51
Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Framkvæmdastjóri á Landspítalanum segir að rík aðhaldskrafa stjórnvalda á spítalann hafi valdið því að fækka þurfi stöðugildum. Ákveðið hafi verið að segja frekar upp fólki sem er með minni stöðugildi og því hafi staða Ragnars Freys Ingvarssonar læknis verið lögð niður. Ragnari verði hins vegar boðið hærra starfshlutfall. Ragnar Freyr er undrandi á uppsögninni. Innlent 9. apríl 2026 11:02
Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Freyr Gígja Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins til eins árs. Hann mun hefja störf næsta mánudag, þann 13. apríl næstkomandi. Innlent 9. apríl 2026 10:05
Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Ragnari Frey Ingvarssyni lækni hefur verið sagt upp störfum á Landspítala. Hann starfaði í um áratug sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á sjúkrahúsinu í Fossvogi. Ragnar er einn af þekktari læknum landsins og hefur gefið út bækur og sjónvarpsþætti undir heitinu Læknirinn í eldhúsinu. Innlent 8. apríl 2026 20:50
Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Ólafur Björn Sverrisson hefur verið ráðinn sem lögfræðingur í vöruþróunar- og söluteymi Jónsbókar, gervigreindar fyrir lögfræðinga. Viðskipti innlent 31. mars 2026 11:08
Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Mannabreytingar standa yfir í stóru leikhúsunum tveimur hérlendis. Matthías Tryggvi Haraldsson er hættur sem dramatúrg í Þjóðleikhúsinu og er búið að finna arftaka hans. Þá verður Maríanna Clara Lúthersdóttir ekki áfram dramatúrg Borgarleikhússins en það er hluti af stærri skipulagsbreytingu. Menning 31. mars 2026 09:00
Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Árni Sigurjónsson,framkvæmdastjóri hjá JBT Marel ehf., hefur tekið við sem stjórnarformaður Íslandsstofu. hann hefur starfað hjá Marel og síðar JBT Marel frá árinu 2009. Sigríður Mogensen kemur einnig ný inn í stjórn. Viðskipti innlent 31. mars 2026 08:43
Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Bergdís Ellertsdóttir tekur við stöðu sendiherra í Kína síðar á árinu. Hún hefur starfað við utanríkisþjónustu í hálfan fjórða áratug og var sendiherra í Bandaríkjunum áður en Svanhildur Hólm Valsdóttir tók við embættinu fyrir hálfu öðru ári. Innlent 29. mars 2026 13:18
Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Hluthafar Kemi og Fálkans Ísmars hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna. Sameinað félag verður í eigu Sjávarsýnar, Hermanns Guðmundssonar og Freyju framtakssjóðs. Viðskipti innlent 27. mars 2026 10:40
Breytingar á stjórn Sýnar Breytingar urðu á stjórn Sýnar á aðalfundi félagsins í dag. Páll Gíslason hefur lokið stjórnarsetu sinni og Rannveig Eir Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Reir verk, var kjörin í hans stað, þvert á tillögur tilnefningarnefndar. Viðskipti innlent 26. mars 2026 18:13
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent