Hef unnið fyrir ríkisborgararéttinum Justin Shouse hefur sett svip sinn á íslenskan körfubolta síðastliðin átta ár. Fátt benti til þess að Bandaríkjamaðurinn 23 ára, sem renndi blint í sjóinn í Vík í Mýrdal haustið 2004, yrði kjörinn besti leikmaður efstu deildar sjö árum síðar. Í dag er hann óumdeildur leiðtogi Stjörnunnar sem margir reikna með að tryggi sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil áður en apríl er allur. 13.4.2013 10:00