JJ Gabriel mættur til Barcelona Leikmaðurinn ungi JJ Gabriel hefur mikið verið á milli tannanna á fólki eftir að hann tilkynnti að hann vildi fara frá Manchester United. Mikið hefur verið um hann rætt síðan þá en hann er nú staddur í Barcelona. 18.9.2026 22:32
Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Deilur Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA og FIFA virðast engan endi ætla að taka síðan Gianni Infantino, forseti FIFA, tilkynnti að hann hygðist selja hlut heimsmeistaramótsins til einkafjárfesta. Nú hefur UEFA í samvinnu við knattspyrnusamband Norður-Ameríku og eyja í Karíbahafinu, CONCACAF, krafist þess að öll 211 aðildarríki FIFA fái tíu milljónir dollara frá FIFA. 18.9.2026 21:47
Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Haukar og Selfoss mættust í úrslitaleik Gatorade-bikars Fótbolta.net sem er bikarkeppni fyrir neðri deildar lið á Íslandi. Leikurinn var spilaður á Laugardalsvelli og náði Selfoss að vinna leikinn 3-1 en Selfyssingar skoruðu öll fjögur mörk leiksins. 18.9.2026 21:11
Olise skoraði þrennu í stórsigri Bayern München Stórlið Bayern München tók á móti Union Berlin í fjórðu umferð þýsku úrvalsdeildar karla í fótbolta í kvöld. Union Berlin var fyrir leikinn að leita að sínum fyrsta sigri en liðið þarf að bíða lengur þar sem Bayern München vann leikinn 7-0. 18.9.2026 20:23
Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Martin Hermannsson var í liði Alba Berlin þegar liðið tók á móti Chemnitz í fyrsta leik þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Leikurinn var jafn í byrjun en Alba Berlin náði að vinna með frábærum lokaleikhluta 89-82. 18.9.2026 20:06
Hlín hafði betur í Íslendingaslagnum í Svíþjóð Hlín Eiríksdóttir og félagar í Malmö höfðu betur í Íslendingaslagnum í sænsku úrvalsdeild kvenna í kvöld. Liðið vann öruggan 3-0 sigur á Djurgarden. 18.9.2026 18:57
Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Brentford tók á móti Chelsea í fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Eftir bragðdaufan fyrri hálfleik náði Brentford að halda áfram taplausu gengi með því að skora þrjú mörk í seinni hálfleik og vann því leikinn 3-0. 18.9.2026 18:32
Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Mikill hiti hefur verið í herbúðum Ferrari eftir að liðið átti vægast sagt slæmar síðustu keppnir í Formúlu 1. Fréttir bárust að hann hafi viljað reka starfsmenn liðsins vegna slæms gengis en hann harðlega neitar þeim sögusögnum. 18.9.2026 07:02
Dagskráin í dag: Besta deildin og enski boltinn Föstudagur er genginn í garð og það er þétt dagskrá á sportrásum Sýnar til þess að fagna því. Umferð helgarinnar í enska boltanum hefur göngu sína ásamt þrem leikjum í Bestu deild kvenna. Svo er leikur í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta og golf á dagskrá. 18.9.2026 06:00
Keppa í róðri með krókódílum Búið er að ákveða í hvaða vatni verður keppt í siglingum á Ólympíuleikunum árið 2032 sem haldnir verða í Ástralíu. Vandamálið við vatnið er að þar búa yfir 500 krókódílar sem geta vafist fyrir keppendum. 17.9.2026 22:47