Alvarlegt bílslys í Þrengslum Alvarlegt umferðarslys varð í Þrengslunum á Suðurlandi á níunda tímanum í dag. Einn hefur verið fluttur slasaður á bráðamóttöku í Reykjavík. 13.7.2023 11:03
Fær engar bætur eftir árekstur við barn Reiðhjólakona fær engar bætur eftir slys þegar fimmtán ára drengur ók hana niður rafhlaupahjóli. Drengurinn var á 25 kílómetra hraða á klukkstund á gangstétt þegar hann skall saman við konuna, sem var á tíu kílómetra hraða. 13.7.2023 10:49
Gríðarlegur halli á vöruviðskiptum í júní Vöruviðskipti við útlönd voru óhagstæð um 43,1 milljarð króna í júní. Það er 25,3 milljarða króna meiri halli en á sama tíma í fyrra. 10.7.2023 14:49
Frakki í fangelsi í fjórtán mánuði fyrir fíkniefnasmygl Franskur karlmaður var í síðustu viku dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Hann hafði rúmlega kíló af sterku metamfetamíni meðferðis til landsins frá París. 10.7.2023 14:05
Árekstur við Hellu Fólksbíll og flutningabíll skullu saman á Suðurlandsvegi við Hellu á þrettánda tímanum í dag. Veginum var lokað um stund á meðan hreinsunarstarf var unnið á vettvangi og nú er að greiðast úr töfum sem urðu vegna þesss. 10.7.2023 12:56
Þóttist vera starfsmaður ákæruvaldins og heimtaði gögn um eiginkonuna Karlmaður hefur verið fundinn sekur um margvísleg brot gegn eiginkonu sinni og barni, meðal annars með því að falsa pappíra og þykjast vera starfsmaður ákæruvaldsins til þess fá heilbrigðisgögn um eiginkonuna. Maðurinn var hins vegar sýknaður af refsikröfu vegna geðrænna vandamála sem hann glímir við. 10.7.2023 12:12
„Það þýðir bara að ríkisstjórnin er sprungin“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað kallað eftir því undanfarið að þing verði kallað saman. Þingflokksformaður Miðflokksins segir neitun stjórnarflokkanna þess efnis til marks um það að stjórnin sé hreinlega sprungin. 10.7.2023 11:00
Þriðjungur laxa í Breiðdalsá blandaður eldislaxi Niðurstöður rannsóknar Hafrannsóknastofnunar benda til þess að villtur íslenskur lax og eldislax af norskum uppruna hafi blandast saman í nokkrum mæli. Eldri erfðablöndun greindist til að mynda í 32 prósent seiða í Breiðdalsá. 10.7.2023 10:51
Viðkvæmir neytendur sjóði vatn vegna gruggs í vatnsbóli Í kjölfar jarðskjálftans í gærkvöldi hefur grugg aukist í vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni. Aukning gruggs getur minnkað vatnsgæði og því eru viðkvæmir neytendur beðnir um að sjóða neysluvatn til drykkjar í varúðarskyni. 10.7.2023 09:50
Segir jörðina liðast í sundur á Reykjanesi Bandarískur áhrifavaldur, sem er búsettur hér á landi, segir jarðskjálfta á Reykjanesi í gær vera það ógnvænlegasta sem hann hefur upplifað á landinu. Þá deilir hann mynd af stærðarinnar holu sem myndaðist á vegi á svæðinu. 10.7.2023 07:51