Viðræðum Kviku og Íslandsbanka slitið: „Það kom mér á óvart hvernig þessar niðurstöður voru“ Forstjóri Kviku banka segir Íslandsbanka eftir sem áður gott fyrirtæki og að hann sjái vel fyrir sér að hægt verði að taka upp þráðinn í viðræðum um sameiningu félaganna tveggja, að loknum hluthafafundi Íslandsbanka. 29.6.2023 20:10
Greiddi sína skatta af hundrað milljóna króna hagnaði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, greiddi um 25 milljónir króna í skatt vegna 101 milljónar króna hagnaðar af áskriftarréttindum í Kviku banka. Hún hafði þegar greitt um 22 milljónir í fjármagnstekjur af hagnaðinum en það var mat Ríkisskattstjóra að greiða ætti tekjuskatt af honum. 29.6.2023 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í nýjum bankastjóra Íslandsbanka, sem segir bankann þurfa að efla menninguna innan bankans. Kviku banki ákvað í dag að slíta viðræðum um sameiningu við Íslandsbanka þótt samruni þeirra gæti falið í sér ávinning, en er reiðubúinn að taka upp viðræður á ný að loknum hluthafafundi Íslandsbanka. 29.6.2023 18:00
Maður sem er sagður hafa brotið á stúlku vinnur enn í kringum börn Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, vinnur í dag í reiðskóla þar sem börn sækja námskeið. 28.6.2023 23:28
Ráðgátan um dýra málverkið leyst Málverk eftir óþekktan listamann, sem metið var á þrjátíu þúsund krónur, seldist flestum að óvörum á tæpar fjögur hundruð þúsund krónur á uppboði í gær. Ástæðan er talin vera tilfinningalegt gildi efnistaka óþekkta listamannsins. 28.6.2023 22:10
Knattspyrnupar trúlofað Glódís Perla Viggósdóttir greindi frá því fyrir skömmu að hún hefði trúlofast Kristófer Eggertssyni, kærasta sínum til margra ára. Það skammt milli fagnaðarefna hjá parinu en Glódís Perla varð 27 ára gömul í gær. 28.6.2023 21:07
Hagar högnuðust um tæplega 700 milljónir Hagnaður Haga á fyrsta fjórðingi ársins var 653 milljónir króna, tæplega þrjú hundruð milljónum króna minni en á síðasta ári. Forstjórinn segir starfsemi félagsins heilt yfir hafa gengið vel. 28.6.2023 19:29
Þurfa að endurgreiða skíðaferðir: „Þessi dómur er okkur með öllu óskiljanlegur“ Forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands segir fyrirtækið harma dóma Hæstaréttar þess efnis að því beri að endurgreiða pakkaferðir sem afpantaðar voru skömmu fyrir brottför. 28.6.2023 18:39
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í formanni bæjarráðs Reykjanesbæjar sem segir mál fjölskyldu í bænum, sem bera á út úr húsi sínu á föstudag, vera harmleik. Bærinn hafi fyrst heyrt af málinu í fréttum í gær. Útgerðarmaður sem keypti húsið fyrir níu mánuðum hefur staðið undir öllum kostnaði við eignina frá því hann keypti hana á uppboði fyrir níu mánuðum á einungis þrjár milljónir. 28.6.2023 18:05
Gjaldskrá sundlaugarinnar í Grímsnesi er ólögmæt Innviðaráðuneytið hefur úrskurðað að gjaldskrá sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir sundlaug og íþróttamiðstöðina Borg sé ekki í samræmi við jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar og þar af leiðandi ólögmæt. 27.6.2023 16:48