Algjör óvissa um stöðu tryggingataka: „Við höfum haft áhyggjur af þessu félagi lengi“ Seðlabankastjóri segir að fjármálaeftirlit bankans hafi lengi haft áhyggjur af starfsemi slóvakíska tryggingafélagsins Novis. Slóvakíski seðlabankinn hefur afturkallað leyfi félagsins og farið fram á að því verði skipaður skiptastjóri. Stjórnarmaður Trygginga og ráðgjafar, sem hefur selt vörur Novis hér á landi, segir félagið geta staðið við skuldbindingar sínar og hvetur viðskiptavini til að halda að sér höndum. 7.6.2023 15:30
„Þeir þurfa bara að bakka og segja já“ Kröftug mótmæli voru haldin fyrir framan húsnæði Samtaka íslenskra sveitarfélaga í morgun. Lúðrar voru þeyttir og „Sömu laun fyrir sömu störf“ var hrópað síendurtekið. Skipuleggjendur mótmælanna segja að Sambandið þurfi einfaldlega að mæta kröfum BSRB, sem muni ekki slá af kröfum sínum. 7.6.2023 12:06
Vöruviðskiptahalli jókst mikið milli ára Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands var vöruskiptajöfnuður neikvæður um 33,9 milljarða króna í maí síðastliðnum. Á sama tíma í fyrra var jöfnuðurinn neikvæður um 26,8 milljarða, eða 7,1 milljarði minna en í ár. 7.6.2023 11:21
Stærsti mánuður Play frá upphafi Farþegar Play voru 128.894 í maí síðastliðnum. Um er að ræða 26 prósent fjölgun milli mánaða og metfjölda hjá flugfélaginu unga. 7.6.2023 09:46
Björguðu ferðamanni í sjálfheldu í Þakgili Björgunarsveitir frá Vík í Mýrdal og Álftaveri voru kallaðar út á níunda tímanum í kvöld vegna ferðamanns, sem hafði villst út af gönguleið í Þakgili undir Mýrdalsjökli og var kominn í sjálfheldu. 6.6.2023 23:46
Dr. Gunni genginn út Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er ávallt kallaður, og myndlistarkonan Helena Hansdóttir Aspelund eru nýtt par. 6.6.2023 23:37
Árás á stífluna „umhverfislegt gjöreyðingarvopn“ Úkraínuforseti hefur sakað Rússa um að hafa sprengt stíflu í Kherson-héraði af ásettu ráði og segir þá hafa beitt „umhverfislegu gjöreyðingarvopni“ og framið stríðsglæp. 6.6.2023 23:05
Varð döpur þegar hún sá kynningu ríkisstjórnarinnar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sagði á þingfundi í dag að hún hefði orðið döpur þegar hún kynnti sér boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í baráttunni við verðbólgudrauginn. 6.6.2023 21:26
Alfarið á móti styttingu ræðutíma: „Þetta er ólýðræðislegt“ Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins var harðorður í kvöld þegar hann ræddi fyrirhugaða styttingu ræðutíma á fundum Borgarráðs. Hann velti því meðal annars fyrir sér hvort meirihlutinn væri að reyna að þagga niður í minnihlutanum. 6.6.2023 20:37
Tilnefna óháðan aðila til að staðfesta fullnægjandi endurvinnslu Úrvinnslusjóður og Sorpa ætla í sameiningu að fá fullvissu fyrir því að sá endurvinnsluaðili, sem mun héðan í frá taka við fernum frá Sorpu, skili þeim árangri sem til er ætlast. Stefnt er að því að fernurnar verði sendar til fyrirtækisins Fiskeby Board í Svíþjóð. 6.6.2023 18:42