Meint hópslagsmál reyndust gamnislagur Á sjöunda tímanum í morgun barst lögreglu tilkynning um slagsmál þriggja manna í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að mennirnir þrír voru vinir að gantast, eins og það er orðað í dagbók lögreglu. 28.5.2023 17:40
Sóttu slasaða hestakonu á Valahnúka Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til upp úr klukkan tíu í kvöld vegna konu sem hafði fallið af hestbaki við Valahnúka í Hafnarfirði. Verið er að flytja konuna á bráðamóttöku en hún er ekki alvarlega slösuð. 27.5.2023 23:44
Ekkert eðlilegt við að sjá verðhækkanir samhliða hagnaði fyrirtækja Verðbólgan heldur áfram að bíta en hún stendur nú í 9,5 prósentum. Verð á öllum neysluvörum heldur áfram að hækka. Ný úttekt Alþýðusambands Íslands sýnir gríðarlega hækkun á matvöruverði. Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir fyrirtæki verða að gyrða sig í brók. 27.5.2023 23:05
Fár hlaut sérstaka viðurkenningu í Cannes Íslenska stuttmyndin Fár í leikstjórn Gunnar Martinsdóttur Schlüter hlaut í kvöld sérstaka viðurkenningu í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni í Cannes. 27.5.2023 22:36
Elda ofan í flugstöðvargesti Veitingastaðurinn Elda Bistro hefur verið opnaður á annarri hæð í norðurbyggingu Keflavíkurflugvallar, beint á móti útganginum úr Fríhöfninni. Um er að ræða annan af tveimur veitingastöðum nýs rekstraraðila veitingastaða í Leifsstöð. 27.5.2023 22:21
Ríflega 1500 loftslagsmótmælendur handteknir Lögreglan í Haag í Hollandi handtók í dag 1579 aðgerðarsinna sem reyndu að teppa hraðbraut í nafni loftslagsaðgerða. Flestum þeirra var að lokum sleppt en líklegt er að fjörutíu þeirra verði sóttir til saka fyrir aðgerðir sínar í dag. Meðal mótmælenda var þekkt hollensk leikkona. 27.5.2023 21:54
Anatomie d'une chute hlaut Gullpálmann Kvikmynd franska leikstjórans Justine Triet, Anatomie d'une chute, sem mætti útleggja sem Anatómía falls, hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í kvöld. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem kvikmynd í leikstjórn konu hlýtur verðlaunin, sem eru ein þau eftirsóttustu í kvikmyndabransanum. 27.5.2023 20:03
Lögmaður hjá Skattinum hlaut verðlaun fyrir árangur í skipstjórn Fjölmennasta útskrift í sögu Tækniskólans fór fram í gær. Meðal útskrifaðra var Thelma Þorbjörg Sigurðardóttir, sem hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í skipstjórnargreinum. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, með lögmannsréttindi og starfar hjá Skattinum. 27.5.2023 18:48
Buðu ferðamanni gistingu í fangageymslu Laust fyrir klukkan 06 í morgun barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregluþjónar ræddu við manninn kom í ljós að um erlendan ferðamann var að ræða, sem gat með engu móti gefið upp hvar hann dveldi. Brugðist var á það ráð að bjóða honum gistingu í fangageymslu. 27.5.2023 17:48
Fékk 10 í meðaleinkunn í MH: „Ég reyndi bara alltaf að gera mitt besta“ Tómas Böðvarsson, nýsleginn stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, hlaut í gær hreina tíu í meðaleinkunn, fyrstur allra í sögu skólans. Hann vissi ekkert um afrekið fyrr en á útskriftarathöfninni í gær. 27.5.2023 07:01