Úðuðu piparúða yfir saklausa gesti Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal þeirra sem bökuðu vandræði í nótt voru tveir drengir sem hjóluðu um á rafmagnshlaupahjóli og úðuðu piparúða á fólk sem beið í röð til þess að komast inn á skemmtistað í miðborginni. 16.4.2023 07:45
Björn Leví sver af sér ásakanir um gerendameðvirkni Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur í þrígang þurft að uppfæra færslu um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, sem hann birti á Facebook í gærkvöldi, eftir að fjöldi fólks sakaði hann um gerendameðvirka orðræðu. 15.4.2023 15:29
Skoðar hvort tilefni sé til að leita réttar síns Gylfi Þór Sigurðsson er sagður liggja undir feldi nú þegar lögreglan í Manchester hefur ákveðið að fella niður rannsókn á máli hans. Hann muni á næstu dögum leita sér lögfræðilegrar ráðgjafar um hvort tilefni sé til þess að hann leiti réttar síns fyrir breskum dómstólum. 15.4.2023 12:25
Sagður neita að mæta múlbundinn á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingi kemur saman aftur eftir páskafrí á mánudag og stjórnskipunar og eftilitsnefnd þingsins tekur upp þráðinn í Lindarhvolsmálinu svokallaða. Leynd sem hvílir á greinargerð setts ríkisendurskoðanda er áfram steinn í götu nefndarinnar 15.4.2023 12:00
Sprengju kastað að forsætisráðherra Japans Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, slapp með skrekkinn þegar sprengju var kastað í átt til hans á kosningafundi í Wakayama í dag. Aðeins níu mánuðir eru síðan fyrrverandi forsætisráðherra landsins var ráðinn af dögum. 15.4.2023 08:59
Slökktu fjölda gróðurelda síðastliðinn sólarhring Töluverður erill var hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðastliðinn sólarhring. Dælubílar fóru í fimm útköll vegna gróðurelda, sem flestir kviknuðu miðsvæðis. 15.4.2023 08:24
Þjóðþekktum flett upp í lyfjagátt án tilefnis Dæmi eru um það að starfsfólk apóteka fletti upp þjóðþekktu fólki í lyfjagáttinni, miðlægum gagnagrunni sem heldur utan um lyfjaávísanir fólks, án nokkurs tilefnis. 15.4.2023 07:54
Meintur fíkniefnasali reyndist hárgreiðslumaður Tilkynnt var um sölu fíkniefna í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið í Grafarholti í gærkvöldi. Þegar laganna verði bar að garði reyndist meintur fíkniefnasali vera blásaklaus hárgreiðslumaður. „Átti málið því ekki við rök að styðjast,“ segir í dagbók lögreglu. 15.4.2023 07:17
„Þetta þarf að vera faglegt mat“ Heilbrigðisráðherra segir að notkun lyfs við taugahrörnunarsjúkdómnum spinal muscular athrophy (SMA) verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati. Nauðsynlegt sé að tryggja bæði öryggi notkunar lyfsins og að nytsemi hennar sé óyggjandi. 14.4.2023 23:45
Hótaði að myrða börn lögregluþjóns Karlmaður á fertugsaldri var á dögunum dæmdur til níutíu daga óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað tveimur lögregluþjónum líkamsmeiðingum og börnum þriðja lögregluþjónsins lífláti og líkamsmeiðingum. 14.4.2023 22:23
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti