Séra Aldís Rut ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakall Séra Aldís Rut Gísladóttir, prestur í Hafnarfjarðarkirkju, hefur verið ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakalls. Prestakallið þarnast nýs prests frá og með 1. júlí, þegar séra Guðrún Karls Helgudóttir verður vígð til embættis biskups Íslands. 29.6.2024 14:43
Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Borgarstjóri hefur ekki áhyggjur af því sem kallaður hefur verið lítill áhugi landsmanna á parísarhjólinu við Miðbakka í Reykjavík. Fimmtán prósent þjóðarinnar reiknar með að fara hring í hjólinu í sumar. 29.6.2024 13:51
Stútar á rafhlaupahjólum handteknir og mega búast við sektum Tveir voru handteknir vegna gruns um að hafa stjórnað rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis í gærkvöldi. Leiða má líkur að því að þeir verði með þeim fyrstu sem þurfa að reiða fram sektagreiðslu vegna slíks athæfis. 29.6.2024 11:13
Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Um helgina verður fyrstu gestunum hleypt ofan í nýjan baðstað í Kerlingarfjöllum. Í böðunum eru meðal annars heitar setlaugar, kaldur pottur og glæsileg sauna með útsýni yfir fjallgarðinn. 29.6.2024 10:38
Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Allir 28 sakborningar í peningaþvættismáli sem tengist Panamaskjölunum hafa verið sýknaðir. Þeirra á meðal eru þeir Jurgen Mossack og Ramón Fonseca Mora, eigendur lögmannstofunnar alræmdu Mossack Fonseca. Fonseca lést í maí síðastliðnum. 29.6.2024 09:19
Allt að tuttugu stiga hiti sunnanlands Veðurstofa Íslands spáir rjómablíðu sunnanlands í dag en að rigna byrji sunnan- og vestanlands strax á morgun. 29.6.2024 08:13
Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Ölgerðin tilkynnti í gær að staða aðstoðarforstjóra hafi verið lögð niður og Gunnari B. Sigurgeirssyni, sem gegnt hefur þeirri stöðu, hafi verið sagt upp störfum. Daginn áður birti félagið ársfjórðungsuppgjör og lækkaði afkomuspá. 29.6.2024 07:55
Gamla fólkið þarf að greiða fyrir sundferðina Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni. Stakt gjald fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkurborgar er 1.330 krónur. Breytingin tekur gildi frá og með 1. ágúst. 28.6.2024 14:31
Þórkatla tekið við 400 eignum Fasteignafélaginu Þórkötlu hefur borist umsóknir 900 Grindvíkigna um sölu á eignum til félagsins. Gengið hefur verið frá nærri 740 þinglýstum kaupsamningum, um 82 prósent þeirra sem sótt hefur verið um. Þegar hefur verið tekið við 400 eignum. 28.6.2024 14:03
Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Philip Westh, 33 ára Dani, hefur verið dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða hina sautján ára Emilie Meng árið 2016 og fjölda kynferðisbrota. 28.6.2024 13:09