Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Einn er látinn og tveir drengir alvarlega slasaðir eftir að maður réðst inn í framhaldsskóla vopnaður sverði í Fagersta í Svíþjóð. Árásarmaðurinn grunaði hefur verið handtekinn og er sagður fyrrum nemandi skólans. 21.8.2026 21:44
Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. 21.8.2026 21:09
Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga segir gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna ekki vera sökudólg vaxtahækkana. Launafólki hafi þó fjölgað í opinberri þjónustu sveitarfélaganna fyrr á árinu. Sveitarfélögin séu jafnframt reiðubúin í að taka þátt í baráttu gegn verðbólgu og vandamálið verði ekki leyst nema með samvinnu. 21.8.2026 20:13
Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Jónas Már Torfason segir upphrópanir bæjarráðs Kópavogsbæjar vera „algjörlega ótímabærar.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi. 21.8.2026 18:26
Svona verður dagskráin á Menningarnótt Haldið verður hátíðlega upp á afmæli Reykjavíkurborgar á Menningarnótt laugardaginn næstkomandi, 22. ágúst. Gestir og gangandi geta sótt ríflega fjögur hundruð viðburði á borð við bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð. 20.8.2026 09:01
Eldur kviknaði við Stálhellu Eldur kviknaði við Stálhellu í Hafnarfirði í kvöld. Slökkvilið var sent á vettvang til að ráða niðurlögum eldsins. 20.8.2026 00:28
Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Ísraelsher hefur í fyrsta sinn viðurkennt að hafa, árið 2024, hafið skotárás á bíl sem í var sex manna palestínsk fjölskylda, þar á meðal fimm ára gömul stúlka, Hind Rajab, sem lést seinna af sárum sínum. Ísarelsher greindi frá því í dag að hefja ætti rannsókn á atvikinu. 19.8.2026 23:46
Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Harry Bretaprins og Meghan, hertogahjónin af Sussex, hyggjast flytja aftur til Bretlands ásamt börnum sínum tveimur, Archie prins og Lillíbet prinsessu. Þau fluttu til Bandaríkjanna árið 2020. 19.8.2026 22:34
Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, er efst á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu sveitarstjórnarmenn á síðasta ári. Hún var þá með rúmlega þrjár og hálfa milljón króna í laun á mánuði. 19.8.2026 22:04
Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og bjóða öllum grunnskólabörnum í Reykjavík upp á aðstoð við heimanám á bókasöfnum í borginni skólaárið 2026-2027. Verkefnið nýtur styrks úr Velferðarsjóði barna. 19.8.2026 20:57