Hiti upp undir 25 stig á Norðausturlandi Spáð er að hitatölur verði með því hærra sem sjáist hér á landi í dag þar sem verður upp undir 25 stiga hiti á Norðausturlandi í dag. Spáð er hægum vindi en suðaustanstrekkingi á stöku stað á vestanverðu landinu. 9.8.2021 07:18
Fjórtán greindust í Færeyjum í gær Fjórtán greindust með kórónuveiruna í Færeyjum í gær. Á síðunni korona.fo kemur fram að tíu hafi greinst innanlands og fjórir á landamærum. 8.7.2021 14:08
Þrír greinst með veiruna innanlands síðan á mánudag Þrír hafa greinst með kórónuveiruna innanlands síðustu þrjá sólarhringa – tveir á mánudag og einn í gær, miðvikudag. Þeir sem greindust á mánudag voru í sóttkví, en sá sem greindist í gær var utan sóttkvíar. 8.7.2021 10:45
Lýsa yfir neyðarástandi í Tókýó fram yfir Ólympíuleikana Stjórnvöld í Japan hafa lýst yfir neyðarástandi í höfuðborginni Tókýó fram yfir Ólympíuleikana sem fram fara í borginni dagana 23. júlí til 8. ágúst. Þetta staðfesti forsætisráðherrann Yoshihide Suga í dag. 8.7.2021 09:14
Telja engar líkur á að finna fólk á lífi í rústunum Borgarstjóri í Miami-Dade á Flórída segir nú engar líkur vera á að finna fólk á lífi í rústum íbúðabyggingarinnar sem hrundi á Surfside í Miami 24. júní síðastliðinn. Því sé starfið þar nú ekki lengur skilgreint sem björgunaraðgerð heldur leitaraðgerð. 8.7.2021 08:35
Hafa reist hæsta sandkastala í heimi í Danmörku Búið er að reisa 21,16 metra háan sandkastala í Blokhus á norðvesturströnd Jótlands í Danmörku og ku hann vera sá hæsti í heimi. 8.7.2021 07:52
Zuma gefur sig fram og hefur afplánun Fyrrverandi forseti Suður-Afríku, Jacob Zuma, hefur gefið sig fram við lögreglu og hafið afplánun eftir að hafa verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi á dögunum. 8.7.2021 07:28
Hiti allt að 24 stigum norðaustantil Spáð er suðvestan átta til þrettán metrum á sekúndu norðvestan- og vestanlands, og einnig með suðausturströndinni, en hægari breytileg átt annarsstaðar. Skýjað og úrkomulítið verður á vesturhelmingi landsins en dálítil rigning norðvestantil. 8.7.2021 07:11
Sænska þingið gefur grænt ljós á nýja stjórn Löfvens Meirihluti sænska þingsins samþykkti í hádeginu tillögu þingforsetans um að Stefan Löfven verði áfram forsætisráðherra landsins. 7.7.2021 13:02
Víðir bólusettur: „Þetta er meiriháttar“ „Þetta er meiriháttar,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, eftir að hann var bólusettur með bóluefni Janssen í Laugardalshöllinni klukkan 11 í morgun. 7.7.2021 11:48