Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Agnar Már Másson skrifar 18. september 2026 13:06 Sævar Örn Hilmarsson og Viðar Örn Kjartansson. Sá síðarnefndi gaf þeim fyrrnefnda Louis Vuitton-tösku. Viðar Örn skoraði fjögur mörk í 32 A-landsleikjum á hátindi knattspyrnuferilsins. Hann skorar enn mörk en nú fyrir uppeldisfélagið Selfoss. Vísir Vinir Sævars Arnar Hilmarssonar, sakbornings í Dettifossmálinu, báru skýrslu fyrir dómi í dag til þess að svara fyrir ýmsan varning sem lögreglan lagði hald á, meðal annars Rólex-úr, Louis Vuitton-tösku og Kawasaki-mótorhjól. Meðal vitna var þjóðþekktur knattspyrnumaður.
Það hefur sætt gagnrýni af hálfu verjanda Sævars að lögreglan hafi lagt hald á lúxusmuni á heimili Sævars. Einn vinur Sævars bar vitni fyrir dómi vegna Rolex-úrs sem vinurinn kvaðst hafa sótt fyrir Sævar í skartgripaverslun til Amsterdam. Þegar verjandi spurði hvers vegna hann bæri skýrslu fyrir dómi svaraði hann að hann hefði sjálfur haft samband við Stefán Karl, verjanda Sævars, eftir að hann frétti að þessi tiltekni munur væri á meðal gagna málsins. „Ég er mjög gjafmildur“ Síðan bar annar vinur Sævars, Viðar Örn Kjartansson, fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður í knattspyrnu sem nú spilar með uppeldisfélaginu Selfossi, vitni fyrir dómi þar sem hann var spurður út í Louis Viutton-tösku sem lögregla lagði hald á við húsleit heima hjá Sævari. Hann sagði að um gjöf til Sævars hefði verið að ræða sem hann hefði fært honum fyrir um þremur árum. Hann hefði keypt töskuna erlendis. „Ég er mjög gjafmildur maður og hef gefið vinum mínum ótrúlega mikið í gegnum tíðina.“ Spurður hvernig taskan liti út svaraði hann að hún væri ferköntuð og hörð. Þegar hann lýsti því að þetta væri í raun eins og kvenmannstaska mátti heyra fliss í dómsalnum. Viðar Örn stendur í stórræðum í dag en Selfoss mætir Haukum á Laugardalsvelli í kvöld í úrslitaleik Gatorade-bikarsins, bikarkeppni neðrideildarliða. „Ég hvet alla Selfyssinga til þess að fjölmenna á völlinn, þetta er síðasti leikur sumarsins og vonandi förum við alla leið í þessu og tökum bikarinn. Það skiptir miklu máli fyrir næsta tímabil að enda þetta á góðum nótum. Ég held að strákarnir í liðinu eigi skilið smá klapp á bakið eftir þetta sumar. Ég vil sjá ykkur sem flest á vellinum í kvöld og vonandi náum við að koma með bikarinn yfir brúna,“ er haft eftir honum á Facebooksíðu knattspyrnudeildar Ungmennafélags Selfoss. „Widowmaker“ Að lokum bar enn annar vinur Sævars vitni fyrir dómi og gerði grein fyrir mótorhjóli sem lögregla lagði hald á. Um var að ræða Kawasaki Ninja mótorhjól. Vitnið sagðist sjálft ekki hafa haft neitt við bifhjólið að gera og leyfði honum að eiga það. Fyrir „dellukarl eins og hann Sævar“ væri slíkt hjól mikils metið. Bifhjól af gerðinni Kawasaki Ninja, þó ekki það sem gert var upptækt af Sævari.John Keeble/Getty Images Hann útskýrði að hjólið væri kallað „the Widowmaker“. „Ég held að fá mótorhjól hafi drepið fleiri menn,“ sagði hann og uppskar hlátur í dómssal. Virtist vitnið ekki skilja hvers vegna þetta mótorhjól var til umfjöllunar í dómsmálinu og kvaðst vona að dómurinn agnúaðist ekki of mikið út í „þessa mótorhjóladruslu“. Vitnið brýndi svo fyrir dómnum að dæma ekki bókina af kápunni.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Dómsmál Lögreglumál Smygl Tengdar fréttir „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Saksóknari og verjendur í Dettifossmálinu deila um stærðir á Absolut vodkaflöskum og liti á símum. Réttarhöldin halda áfram en þeim á að óbreyttu að ljúka í dag. 18. september 2026 11:04 „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru. 17. september 2026 11:56 Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Aftur varð uppi fótur og fit í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar dómari veitti sækjanda í Dettifossmálinu svokallaða heimild til að leggja fram viðbótargögn sem innihéldu myndir af amfetamínbasa. Uppnám varð í dómsalnum í gær þegar sækjandi gerði tilraun til þess að leggja gagnið fram. 17. september 2026 10:07 Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu. 16. september 2026 18:00 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
„Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Saksóknari og verjendur í Dettifossmálinu deila um stærðir á Absolut vodkaflöskum og liti á símum. Réttarhöldin halda áfram en þeim á að óbreyttu að ljúka í dag. 18. september 2026 11:04
„Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru. 17. september 2026 11:56
Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Aftur varð uppi fótur og fit í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar dómari veitti sækjanda í Dettifossmálinu svokallaða heimild til að leggja fram viðbótargögn sem innihéldu myndir af amfetamínbasa. Uppnám varð í dómsalnum í gær þegar sækjandi gerði tilraun til þess að leggja gagnið fram. 17. september 2026 10:07
Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu. 16. september 2026 18:00