Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir ekki hagkvæmt að gera gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar fullmislæg nú. Vegagerðin telur ljósastýrðu lausnina geta annað umferð vel í tuttugu ár eftir opnun, þótt bílferðum á höfuðborgarsvæðinu sé spáð að fjölga verulega. 11.9.2026 15:14
Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla hafa dregist saman á sama tíma og sífellt stærri hluti auglýsingafjár fer til erlendra fyrirtækja. Um leið er deilt um sérstöðu Rúv, sem fær milljarða úr ríkissjóði til að sinna almannaþjónustu en selur jafnframt auglýsingar í samkeppni við einkarekna miðla. Nú stígur stjórnarformaður Rúv fram og segir umræðuna um ríkismiðilinn skyggja á stærri vanda. 11.9.2026 13:11
„Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Hærri fjárhæðir eru ætlaðar til vegakerfisins og vetrarþjónustu í samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn stefnir jafnframt að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027 og undirbúa fleiri jarðgöng. 10.9.2026 19:37
Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Uppstokkun á nefndasætum Framsóknar var samþykkt samhljóða eftir samráð við alla þingmenn flokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingflokksformaður segir Höllu Hrund Logadóttur áfram njóta fulls trausts þótt hún missi sitt eina aðalmannssæti í fastanefnd. 10.9.2026 17:38
Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur líklegt að Þórður Snær Júlíusson hafi misskilið upplýsingar þegar hann sagði í mars að bankaskattur ætti að skila sex milljörðum króna. Ráðherrann segist hins vegar ekki geta skýrt hvers vegna sama fjárhæð varð síðar niðurstaðan í fjárlagafrumvarpinu. 10.9.2026 16:47
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí. Leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir boðaða skattahækkun geta leitt til þess að enn minna verði byggt. 10.9.2026 13:43
Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Ríkisstjórnin stendur mun veikar en hún gerði í vor og ósigurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni var reiðarslag, að mati Eiríks Bergmanns stjórnmálafræðiprófessors. Hann segir efnahagsmálin hafa snúist í andhverfu meginerindis stjórnarinnar. Þrátt fyrir aukinn mótvind sjái hann enn ekkert sem bendi til þess að stjórnin sé að falla. 9.9.2026 17:50
Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Vaxtabætur verða felldar niður, viðmið barnabóta látin standa óbreytt og minna lagt til húsnæðisbóta en áætlað er að greiða í ár. Hagfræðingur BSRB segir aðhaldið bitna á heimilum, einkum þeim tekjulægstu og fólki með mikla húsnæðisbyrði. 9.9.2026 14:40
Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Tæplega 6.900 manns hafa skrifað undir áskorun um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segi af sér embætti utanríkisráðherra og leiði Viðreisn úr ríkisstjórn. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir tilraunina „yfirgengilega aumkunarverða“. 9.9.2026 12:59
Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um. 8.9.2026 17:09