Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunar­rými á jarð­hæð

Reykjavíkurborg ætlar að gefa uppbyggingaraðilum meira svigrúm til að ákveða stærð og herbergjafjölda íbúða og draga úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum. Samfylkingin segir breytingarnar veikja skipulagsramma borgarinnar og geta gert áætlanir um innviði ómarkvissar.

Kalla eftir á­kvörðun um milljarðaáform í Skála­felli

Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018.

Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó

Breyta á reglum Vikinglottó þannig að annar vinningur safnist ekki lengur upp milli vikna þegar enginn vinnur hann. Féð fer þess í stað í varasjóð sem er notaður til að tryggja og hækka fyrsta vinning.

Skuld fyrri eig­anda stöðvi ekki skoðun bíls

Stjórnvöld vilja breyta lögum um kílómetragjald eftir reynsluna af fyrstu átta mánuðum kerfisins. Skuld fyrri eiganda á ekki lengur að geta stöðvað aðalskoðun bíls og Skatturinn á að fá skýrari heimild til að leiðrétta rangt reiknað gjald.

Höfum setið eftir í bar­áttu við glæpa­hópa

Lögregla fengi meira svigrúm til að rannsaka skipulagða brotahópa samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum dómsmálaráðherra. Meðal annars yrði auðveldara að leita í símum, leggja hald á eignir og hefja símhlustun þegar hætta er á að mikilvæg gögn glatist. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn segir núverandi lög ekki passa við það hvernig brotahópar starfa í dag.

Stytta gjald­skyldu og opna bílahús allan sólar­hringinn

Gjaldskyldutími á bílastæðum á P1 og P2 svæðum í Reykjavík verður styttur um eina klukkustund á kvöldin samkvæmt tillögu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í dag. Ráðið samþykkti jafnframt að bílahús borgarinnar verði opin allan sólarhringinn alla daga ársins.

Tómas einn vildi halda vöxtum ó­breyttum

Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, var eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi ekki hækka stýrivexti í ágúst. Hann taldi að aðhald peningastefnunnar væri þegar töluvert og að áhrif hárra vaxta væru farin að koma skýrt fram í hagkerfinu.

Bláa lónið og Al­freð Gísla­son verð­launuð

Bláa Lónið hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026 fyrir uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis og verðmætasköpun á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari fær heiðursviðurkenningu.

Sjá meira