RIFF á lista yfir mikilvægustu kvikmyndahátíðarnar RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, var á dögunum valin ein af tuttugu mikilvægustu alþjóðlegu kvikmyndahátíðum ársins af tímaritinu The Moviemaker. Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, segir þetta mikinn heiður. 20.3.2023 10:34
Vill ekki fegra hlutina með list sinni: „Mikilvægt að segja allan sannleikann“ „Mér hefur alltaf fundist það svo mikilvægur partur af því að vera til að segja allan sannleikann,“ segir myndlistarkonan Sigga Björg Sigurðardóttir. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir sýningunni Andardráttur á glugga á Ásmundarsafni, þar sem verk Siggu Bjargar tala við verk Ásmundar Sveinssonar. Sýningin var valin ein af áhugaverðustu myndlistarsýningum Norðurlandanna árið 2023 af tísku-og lífstílstímaritinu Vogue Scandinavia. Sigga Björg er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 19.3.2023 06:00
Diljá komin á toppinn Eurovision stjarnan Diljá trónir á toppi Íslenska listans á FM aðra vikuna í röð með lagið sitt Power, sem bar eftirminnilega sigur úr býtum í Söngvakeppninni á dögunum. 18.3.2023 17:00
Labbaði á tískusýningu komin átta mánuði á leið Stílistinn og tískuskvísan Karin Arnhildardóttir hefur brennandi áhuga á klæðaburði og reynir alltaf að kaupa flíkur sem endast lengi. Stíllinn hennar hefur breyst svolítið á síðustu árum þar sem hún sækir meira í þægindi, sem hún segir ekki alltaf hafa verið í forgangi hjá sér. Karin er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 18.3.2023 11:30
Halldór Eldjárn og GDRN sameina krafta sína Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við lagið Gleymmérei, sem tónlistarfólkið Halldór Eldjárn og GDRN voru að gefa út. 17.3.2023 11:30
Þessi hlutu Íslensku myndlistarverðlaunin 2023 Íslensku myndlistarverðlaunin fóru fram í gærkvöldi við hátíðlega athöfn í Iðnó. Er þetta í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt og hafa þau skipað sér mikilvægan sess í menningarlandslaginu. 17.3.2023 07:01
Stöðugt að verða sterkari manneskja Tónlistarkonan Árný Margrét hefur spilað víða um heiminn þrátt fyrir að hafa tekið sitt fyrsta gigg fyrir einungis rúmu ári síðan á Airwaves. Með tónlistinni ögrar hún sér mikið þar sem hún er í grunnin feimin en segir gott að fara stöðugt út fyrir þægindarammann. Árný Margrét er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 16.3.2023 16:00
„Sama pæling og þegar gaurinn sem var efnilegur í þriðja flokki ákveður að fara í bumbubolta“ Hljómsveitin Ormar samanstendur af Elvari, Herði og Sólrúnu Mjöll og sérhæfir sig í grugg rokki frá tíunda áratuginum. Þau eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum í ár. 16.3.2023 08:01
Brotlenti svolítið eftir Söngvakeppnina Tónlistarmaðurinn Stefán Óli vakti athygli þegar hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Hann elskar að flytja sína eigin tónlist upp á sviði og stefnir á að gefa út plötu á komandi tímum. Stefán Óli er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. 15.3.2023 16:01
Fékk tíma til að stoppa og hafði þá þörf fyrir að tjá sig frá sínu eigin hjarta „Mér finnst ótrúlega gaman að vera búin að koma þessu út. Listin verður aldrei raunveruleg fyrr en hún fær að spegla sig á samfélagið einhvern veginn. Annars er þetta bara inni í hausnum á mér“, segir leikkonan Snæfríður Ingvarsdóttir, sem var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Lilies. Blaðamaður tók púlsinn á henni. 15.3.2023 11:30