Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Þessi snillingur er náttúru­lega ó­trú­legur“

Njarðvíkingurinn Hreinn Bergmann Óskarsson gerði sér lítið fyrir og fór átta mismunandi strætóferðir þriðjudaginn síðasta, þann 21. apríl. Þá fór hann meðal annars í læknisheimsókn og með heyrnartæki í viðgerð. Hreinn er lögblindur og með skerta heyrn eftir að hafa lent í slysi en lætur það ekki stoppa sig á nokkurn hátt. Dóttir hans birti á dögunum færslu þar sem hún reifar nýjustu ferðasögu pabba síns.

„Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“

Neytendasamtökin vöktu athygli á erfiðri stöðu fyrir viðgerðarþjónustu hér á landi í ályktun í gær. Þau segja þjónustuna í hættu og kalla eftir því að stjórnvöld felli niður virðisaukaskatt á viðgerðum. 

Þjóðþekktir tón­listar­menn koma fram í heima­húsum

Síðasta föstudag í aprílmánuði ár hvert hefst tónlistarhátíðin Hljómey í Vestmannaeyjum. Þá stíga landsþekktir listamenn á stokk og spila fyrir gesti hátíðarinnar í heimahúsum. Hún er nú haldin í fjórða skipti og meðal þeirra sem koma fram eru Valdimar, Jakob Frímann og Bríet.

Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimm­tíu ár

Metþátttaka er á Andrésar Andar leikunum sem fram fara í Hlíðarfjalli um þessar mundir. Leikarnir eru fimmtíu ára en þoka hefur valdið erfiðum skíðaaðstæðum. Þrátt fyrir það skemmtu keppendur sér konunglega í gær og munu að öllum líkindum gera það áfram næstu daga.

Í­búar furða sig á horfnu lista­verki

Listaverkið Sunnudagur frá 2000 eftir Guðjón Ketilsson hefur staðið í Grafarvogi í rúm tuttugu ár, eða gerði það öllu heldur. Verkið hefur að mestu leyti verið fjarlægt en á næstu vikum mega íbúar búast við því að sjá það endurbætt og í betra ásigkomulagi á sama stað og það var. 

Glæsi­legar í Gamla Bíói

Nítján stúlkur kepptust í vikunni um titilinn Ungfrú Ísland í Gamla bíói. Þær gengu meðal annars um á sundfötunum og svöruðu spurningum um málefni líðandi stundar sem og um málefni sem brenna á þeim. Keppnin einkenndist af glamúr, glimmeri og glæsilegheitum.

Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu

Minnisvarði um eldgosið í Heimaey verður vígður þann 12. maí en á athöfninni munu Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra og listamaðurinn Ólafur Elíasson vera meðal ræðumanna. Eyjamenn töldu sumir hverjir að verkið væri röskun á svæðinu en eftir kynningu sem haldin var á íbúafundi virðist sem fólk hafi róast. Þar kom fram að hægt væri að láta verkið hverfa sporlaust.

Endur­ræsing hafin hjá Norðuráli

Endurræsing er hafin hjá Norðuráli eftir að bilun síðasta október varð til þess að framleiðsla dróst saman um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði.

Sviptur réttindunum á staðnum

Lögreglan svipti ökumann í Breiðholti ökuréttindum sínum á staðnum eftir að hann var kærður fyrir að aka á ríflega tvöföldum hámarkshraða. Á hóteli í miðborg Reykjavíkur voru aðrir kærðir fyrir fjársvik, þjófnað og fyrir að gefa lögreglunni rangar upplýsingar.

Ein af hinstu óskum Frans páfa enn ó­upp­fyllt

Það er í dag liðið eitt ár síðan Frans páfi lést en ein af hans hinstu óskum er enn óuppfyllt. Hann óskaði þess að páfabílnum, stundum þekktum sem „the Popemobile“, yrði breytt í færanlega heilsugæslustöð fyrir börn og hann sendur til stríðshrjáðs Gasasvæðisins. Bíllinn stendur í dag óhreyfður fyrir utan ísbúð á Vesturbakkanum.

Sjá meira