Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Far­þegi Nor­rænu greindist með annað af­brigði hantaveiru

Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi þar sem heilsu hans hrakaði fljótt eftir að hann steig um borð í ferjuna. Á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum var staðfest að um hantaveiru væri að ræða.

Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk

Óskað var eftir aðstoð lögreglu í nótt á skemmtistað í Reykjavík en þar voru dyraverðir búnir að taka til hliðar einstakling sem hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögregla sinnti einnig útkalli vegna líkamsárásar jafnframt því sem hún aðstoðaði starfsfólk bráðamóttökunnar vegna ölvaðs manns sem neitaði að fara.

Spáir mildu á­fram en út­lit fyrir rigningu

Búast má við rigningu í dag á Suður- og Vesturlandi en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti nær ekki tíu stigum og verður á bilinu 3 til 8 stig en veðurfræðingur spáir næturfrosti norðaustantil. Hægur vindur verður víðast hvar á landinu en á morgun leggst svo þoka yfir suðvestanvert landið með tilheyrandi rigningu og súld.

Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagna­leka

Canvas-námsumsjónarkerfið liggur niðri á ný og samkvæmt erlendum miðlum hefur hópur netþrjóta sem kallast ShinyHunters lýst yfir ábyrgð á netárásunum. Nemendur Háskóla Íslands sem voru inni á síðunni þegar hún var tekin niður segjast hafa fengið upp á skjáinn skilaboð frá netþrjótunum. 

Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Co­vid-19

Hantaveirusmit sem upp kom um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius er ekki upphaf heimsfaraldurs, að sögn heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast.

Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgar­stjóra en Björgu

Töluvert fleiri vilja sjá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins sem borgarstjóra en Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu um hug borgarbúa til þess hver oddvitanna eigi að verða borgarstjóri.

„Þetta á náttúru­lega ekki að gerast“

Í gær, verkalýðsdaginn 1. maí, voru starfsmenn starfandi við uppbyggingu íbúðarblokka vestan við Hlíðarenda, á Valsreitnum svokallaða. Íbúðirnar eru reistar á vegum Bjargs, húsnæðissjálfseignarstofnunar sem ætlað er að reisa íbúðir án hagnaðarmarkmiða. 

Guð­mundur og Erna eru gift

Fasteignasalinn Guðmundur Theódór Jónsson gekk að eiga sína heittelskuðu Ernu Guðrúnu Sigurðardóttur í dag, laugardaginn 2. maí. 

Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri

Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna.

Sjá meira