Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Íslensk kona hefur játað fyrir að hafa stolið rúmum sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands en hún starfaði þar sem sumarstarfsmaður árið 2023. Hún hefur verið dæmd í 30 daga fangelsisvist skilorðsbundið og henni verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem og milljónirnar sjö til baka. 7.3.2026 20:53
Salurinn fylltist í þrígang á fimmtíu ára afmælistónleikum Skólakór Kársnesskóla fagnar fimmtíu ára starfsafmæli á því skólaári sem nú er að líða. Þess til heiðurs voru haldnir þrennir tónleikar í dag en alls sungu um þrjú hundruð börn á tónleikunum en einnig mátti sjá gömlum kórbörnum bregða við. 7.3.2026 19:22
Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026 Söngkonan og tónskáldið Laufey Lín er ein þeirra sem prýða lista yfir þá sem hlutu tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Alls er tilnefnt í níu mismunandi flokkum en meðal þeirra eru flokkarnir plata ársins, upptökustjórn ársins og texti ársins. 6.3.2026 09:37
Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Lokað var fyrir umferð til suðurs á Kringlumýrarbraut á mörkum Kópavogs og Fossvogs vegna áreksturs í kvöld. Þriggja bíla árekstur átti sér stað á hálum vegarkafla og var keyrt á gangandi vegfaranda. Lögregla stýrir umferð frá brautinni. 5.3.2026 22:36
Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Körfuknattleiksmaðurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, betur þekktur sem Tóti Túrbó, á von á sínu fyrsta barni ásamt ljósmóðurfræðinemanum Ósk Jóhannesdóttur. 5.3.2026 22:04
Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. 5.3.2026 19:31
Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Heyra mátti framhandlegg fyrrverandi landgönguliðans Brian McGinnis brotna í átökum sem áttu sér stað í Washington í dag. Myndskeið af atvikinu hefur verið í mikilli dreifingu síðastliðnar klukkustundir. 5.3.2026 19:25
Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. 1.3.2026 20:04
Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins. 1.3.2026 15:29
Appelsínugul viðvörun á morgun Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Austurlandi vegna norðaustan hríðar sem tekur gildi klukkan eitt á morgun, mánudaginn 2. mars. Gular viðvaranir vegna veðurs hafa sömuleiðis verið gefnar út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Suðausturland. 1.3.2026 11:32