Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Stofnað hefur verið nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS, LOGOS endurskoðun & ráðgjöf ehf. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Deloitte, verður forstjóri og leiðir uppbyggingu félagsins. 17.6.2026 10:40
Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Það er úr mörgu að velja í miðborg Reykjavíkur í dag, þjóðhátíðardag Íslendinga, en í Marshall-húsinu úti á Granda verður opnuð sýningin „Hæhóogjibbíjei” klukkan fimm. Að baki sýningunni standa listakonan Elísa Þóreyjardóttir, tvíeykið í Gallerí Kichin og eigendur gallerísins Kling & Bang en nammitískubylgjur á íslenskum markaði voru meðal þess sem Elísa dró innblástur af við undirbúning sýningarinnar. 17.6.2026 10:11
Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku. 17.6.2026 09:04
Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Mette-Marit krónprinsessa Noregs hefur gengist undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur undandarið sést með súrefnisgleraugu. 17.6.2026 08:22
Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Sérsveitin aðstoðaði lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt vegna tilkynningar sem þeim barst um að maður væri vopnaður hníf á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Hann á að hafa verið að ógna öðrum manni en maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. 17.6.2026 08:03
Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Búast má við hvössum vindstrengjum og varasömum aðstæðum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsvagna, við suðausturströndina. Það er lægð suður af landinu sem veldur stífri norðaustanátt og henni fylgja skúrir og svalt veður um landið austanvert en víða má reikna með 8 til 15 metrum á sekúndu. 17.6.2026 07:36
Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á Þingvöllum um næstu helgi og bera yfirskriftina Bergmál. Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að stólar, regnhlífar og veitingar yrðu ekki leyfð á svæðinu. Jakob Frímann tónleikahaldari segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu þó ekki sé gert ráð fyrir því að fólk flytji heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér. 16.6.2026 16:33
Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson birti á dögunum færslu í Facebook-hópnum Garðabær – íbúar þar sem hann greinir frá því að maður, sem hann þekki ekki né kannist við, hafi verið á vappi fyrir utan heimili hans seint um kvöld. Nú biðlar hann til fólks að koma sér í samband við manninn. 16.6.2026 11:20
„Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. 16.6.2026 07:57
Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er einn þeirra sem vakið hafa athygli á því að alþjóðlegi blóðgjafadagurinn hafi verið í gær, þann 14. júní. Blóðbankinn flutti í vetur af Snorrabraut í Reykjavík og yfir í Kringluna en aðstaðan er stórbætt og mun auðveldara fyrir blóðgjafa að koma og gefa blóð, að sögn yfirlæknis. Það sé alltaf vöntun á fleiri blóðgjöfum og hann hvetji alla til að kynna sér hvort þeir geti mögulegir orðið gjafar. 15.6.2026 15:07