Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Freyja Þórisdóttir og Árni Sæberg skrifa 27. ágúst 2026 16:45 Meðal þeirra sem bregður fyrir í auglýsingu Áfram Ísland eru slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja. Skjáskot/Áfram Ísland Það vakti undrun einhverra að slökkviðliðsfólki úr röðum Brunavarna Suðurnesja skyldi bregða fyrir í auglýsingu nei-hreyfingarinnar Áfram Ísland á dögunum. Slökkviliðsstjóri segir að í beiðni sem honum barst um að taka upp kynningarefni hafa hvergi verið minnst á að það væri fyrir auglýsingu hreyfingarinnar. Áfram Ísland segir slökkviliðsmennina ekki mótfallna því að vera í auglýsingunni.
Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum, segist fyrst hafa heyrt af auglýsingunni þegar blaðamaður hringdi í hann fyrr í dag og spurðist fyrir. Auglýsinguna má sjá í spilaranum hér að neðan: „Við erum ekkert einhverjir talsmenn já eða nei. Ég held að þetta sé af því að við vorum, sem er reglulegt, beðnir um að taka þátt í auglýsingu eða kynningarefni og sá aðili kynnti sig ekkert sem Áfram Ísland. Það er eina sem mér dettur í hug nýlega. Sem var bara auglýsing um starfsemi Íslendinga, það átti að sýna allar stéttirnar, okkur fannst það sjálfsagt mál. Mér dettur í hug að þetta sé það. Ég hef ekki séð auglýsinguna en ég hef enga heimild til að taka afstöðu í neinum þjóðfélagsmálum,“ segir Eyþór Rúnar. Rýnir betur í næstu beiðni Þá segir hann að hann hafi flett upp í beiðnum um þátttöku slökkviliðsins í auglýsingum og ekki séð neina beiðni merkta Áfram Ísland. Mögulega ætti hann að athuga betur hvaðan slíkar beiðnir koma og hann skilji vel að ýmsum þyki skjóta skökku við að slökkviliðsmenn birtist í pólitískri auglýsingu. „Við megum líka ekki setja okkar merki undir eitthvað svona dæmi. Persónulegar skoðanir eru svo bara einmitt það, og ég veit ekkert persónulega skoðun starfsmannsins sem er í auglýsingunni, svo hann er kannski settur í aðstæður sem hann veit ekki af.“ Loks segir Eyþór Rúnar að hann ætli ekki að gera neitt mál úr auglýsingunni. „Ég held að það gefi henni nú bara meira vægi. Fyrir mér er þetta bara smáatriði en það væru góð vinnubrögð hjá næsta manni að rýna betur þegar svona beiðnir koma. Slökkviliðsmennirnir sagðir sáttir Vísir hafði samband við Andra Stein Hilmarsson, annan tveggja kosningastjóra Áfram Ísland, sem óskaði eftir skriflegri fyrirspurn. Vísir sendi slíka í nokkrum liðum og fékk eftirfarandi svar: „Áfram Ísland hefur haft samband við slökkviliðsmennina sem koma fyrir í auglýsingunni og þeir eru ekki mótfallnir því að vera í auglýsingunni.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Auglýsinga- og markaðsmál Slökkvilið Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira