„Bankarnir eru að pissa í skóinn sinn“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur, segist enn ekki búinn að meðtaka fyllilega aðstæðurnar sem upp eru komnar. Hann vill að því verði komið í kring að Grindvíkingar geti keypt nýbyggt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og húsnæðislán þeirra í Grindavík verði fryst að fullu. 18.11.2023 13:01
Vonast til að koma rafmagni aftur á innan nokkurra klukkustunda Vinnuflokkar frá HS Veitum hafa verið í bænum fyrir hádegið en rafmagn fór af stórum hluta bæjarins í gær. 16.11.2023 12:36
Ekkert bendir til að blaðamenn á Gasa hafi vitað af árásunum Framkvæmdastjóri HonestReporting segir samtökin aðeins hafa verið að velta upp spurningum þegar þau ýjuðu að því að palestínskir blaðaljósmyndarar hafi vitað af árás Hamas á Ísrael þann 7. október fyrir fram. Ekkert bendi til að ljósmyndararnir hafi vitað af árásinni fyrirfram. 10.11.2023 17:10
Ása krefur FBI um bætur eftir leit á heimilinu Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona hins grunaða raðmorðingja Rex Heuermann, hefur stefnt bandarísku alríkislögreglunni og krafist bóta vegna tjóns sem varð á heimili Ásu í sumar. Tjónið hlaust þegar alríkislögreglan, FBI, gerði tólf daga húsleit í tengslum við rannsóknina á Heuermann. 10.11.2023 16:03
Afhenti gjörgæslu 1,4 milljónir sem söfnuðust í Reykjavíkurmaraþoninu Anna Gunnlaugsdóttir, sem hljóp hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst til styrktar gjörgæslu Landspítalans, hefur afhent deildinni 1,4 milljónir króna sem hún safnaði. Féð verður nýtt til að efla tækjakost. 10.11.2023 15:25
Hægt verður að borga strætóferð með korti án aðkomu Klapps Stefnt er að því að innleiða þann möguleika að greiða fyrir strætóferð með snertilausu greiðslukorti á fyrrihluta næsta árs. Þannig verður möguleiki fólks á að greiða fyrir staka strætóferð ekki háður því hvort það hafi aðgang að Klappinu. 10.11.2023 14:02
Grunar að netverslun útskýri færri ferðir Íbúar í Reykjavík fara færri ferðir á dag en fyrir tuttugu árum síðan. Í febrúar 2002 fóru íbúar að meðaltali 4,1 ferð á dag en í nóvember í fyrra fóru íbúar að meðaltali 3,3 ferðir daglega. Gallup grunar að netverslun útskýri þessa fækkun ferða. 10.11.2023 13:39
Með hreina samvisku gagnvart Kvöldstund með Heiðari snyrti Talskona Stígamóta segir út í hött af Borgarleikhússtjóra að halda því fram að leikverkið Kvöldstund með Heiðari snyrti fjalli ekki um „manneskjuna Heiðar“. Höfundur verksins á fund með Stígamótum í næstu viku til að ræða neikvæð áhrif þess á brotaþola. Hann segist með hreina samvisku varðandi verkið en þykir miður að særa brotaþola. 2.11.2023 06:01
Borgin hætti við að láta reyna á blöðruboltamál fyrir Hæstarétti Borgarlögmaður féll frá áfrýjun í skaðabótamáli fyrrverandi leikskólakennara, sem slasaðist í hópefli starfsmanna, daginn áður en málflutningur átti að vera fyrir Hæstarétti. Lögmaður kennarans segir ákvörðun borgarlögmanns hafa komið sér mjög á óvart. 1.11.2023 16:58
Fær tíu miða klippikort hjá Niceair endurgreitt Þrotabúi Niceair hefur verið dæmt að endurgreiða viðskiptavini 240 þúsund krónur vegna klippikorts sem viðskiptavinurinn hafði ekki fullnýtt áður en Niceair lýsti yfir gjaldþroti. Niceair hætti skyndilega rekstri í apríl á þessu ári og lýsti yfir gjaldþroti mánuði síðar. 1.11.2023 13:27