Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra John Healey, fyrrverandi varnarmálaráðherra, verður fjármálaráðherra í nýrri ríkisstjórn Andy Burnham og Ed Miliband, fyrrverandi formaður Verkamannaflokksins og ráðherra í ríkisstjórnum Gordon Brown og Keir Starmer, verður utanríkisráðherra. 21.7.2026 06:55
Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Usha Vance, varaforsetafrú Bandaríkjanna, fæddi barn á sunnudaginn. Um er að ræða fjórða barn hennar og JD Vance en þau eiga fyrir Ewan, níu ára, Vivek, sex ára, og Mirabel, fjögurra ára. 20.7.2026 07:09
Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Byltingavörðurinn í Íran hefur hótað því að ekki einn einasti dropi af olíu eða gasi muni komast um Hormússund ef Bandaríkjamenn halda áfram árásum sínum á landið. 20.7.2026 06:56
Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo í gærkvöldi eða nótt í tengslum við alvarlega líkamsárás þar sem eggvopni var beitt. Árásarþoli var fluttur á bráðmóttöku en árásarmennirnir vistaðir í fangageymslum. 20.7.2026 06:32
Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, er nú formlega formaður Verkamannaflokksins. Hann tekur við forsætisráðherraembættinu af Keir Starmer á mánudaginn. Burnham heitir því að verða forsætisráðherra allra Breta, hlusta á þjóðina og vinna í hennar þágu. 17.7.2026 12:20
Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Komið hefur til mótmæla í Úkraínu vegna ákvörðunar Vólódimírs Selenskís forseta um að láta varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov taka pokann sinn. Forsetinn segir valið hafa staðið á milli Fedorov og yfirherforningjans Oleksandr Syrskyi. 17.7.2026 08:04
Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Áhyggjur fara nú vaxandi af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti og stofnanir undir honum muni freista þess að hafa áhrif á úrslit þingkosninganna í haust, ef þau verða óhagstæð. Trump fór mikinn í ræðu í nótt, þar sem hann reyndi enn og aftur að færa rök fyrir því að forsetakosningunum 2020 hefði verið „stolið“. 17.7.2026 06:54
Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum „Umfangið liggur ekki fyrir en stjórn Brunavarna Árnessýslu og stjórnir sveitarfélaganna átta líta málið mjög alvarlegum augum.“ Þetta segir Sveinn Ægir Birgisson, formaður stjórnar Brunavarna Árnessýlu um mál Péturs Péturssonar, fyrrverandi slökkviliðsstjóra. 16.7.2026 12:15
R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn R. Kelly hefur formlega óskað þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti mildi 30 ára fangelsisdóm sem tónlistarmaðurinn hlaut fyrir skipulagða glæpastarfsemi og kynferðisbrot gegn börnum. 16.7.2026 08:18
Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur greint frá því að hér eftir verði staða hormónabúskapar hermanna 30 ára og eldri könnuð í árlegum heilsufarsprófunum. Ráðherrann segir tilganginn að tryggja „rétt testósterón-magn“ og að menn séu í toppformi. 16.7.2026 08:01