Greta Thunberg heiðruð á sænsku frímerki Teikning af aðgerðasinnanum Gretu Thunberg prýðir nú sænskt frímerki. Um er að ræða viðurkenningu til handa Thunberg, fyrir viðleitni hennar til að „varðveita einstaka náttúru Svíþjóðar fyrir komandi kynslóðir.“ 13.1.2021 21:36
Níu þúsund börn létust á írskum heimilum fyrir ógiftar mæður Á 19. og 20. öld létust 9.000 börn á átján stofnunum á Írlandi fyrir konur og stúlkur sem urðu þungaðar utan hjónabands. Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var í dag en forsætisráðherra landsins segir um að ræða myrkan, erfiðan og skammarlegan kafla í sögu þjóðarinnar. 12.1.2021 23:04
Ógnaði starfsmönnum skyndibitastaðar með eggvopni Maður ógnaði starfsmönnum á skyndibitastað í austurhluta borgarinnar með eggvopni um kl. 19.30 en náði engum fjármunum. Hann hefur verið handtekinn. 12.1.2021 23:02
Sektuð fyrir að taka ólaðan manninn í göngutúr Par í Kanada hefur verið sektað fyrir að brjóta gegn útgöngubanni vegna Covid-19 eftir að lögregla stöðvaði þau þar sem konan leiddi manninn í ól. Konan sagðist bara vera „úti að ganga með hundinn“, sem er heimilt samkvæmt reglunum. 12.1.2021 21:52
„Óperan er alvaldur hér,“ segir formaður FÍH „Það blasir við mér að dómurinn tekur þá afstöðu að þarna hafi verksali og verkkaupi gert með sér samning en við munum skoða það í framhaldinu hvort við áfrýjum þessu,“ segir Gunnar Hrafnsson, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna, um nýfallinn dóm í máli söngkonunnar Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni. 12.1.2021 21:22
Munu ekki þrýsta á þingmenn að segja nei við ákærum á hendur Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa ákveðið að þrýsta ekki á flokksfélaga sína um að greiða atkvæði gegn því að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði ákærður fyrir embættisbrot. 12.1.2021 20:16
Biskupsemættið skoðar útfærslur á fermingum í samvinnu við sóttvarnalækni Biskupsembættið vinnur nú að því með sóttvarnalækni að útfæra leiðir til að standa að fermingum í vor. Þetta kemur fram í bréfi sem sitjandi biskup, Solveig Lára Guðmundsdóttir, sendi prestum og öðrum starfsmönnum kirkjunnar í dag. 12.1.2021 19:38
Sjúklingur á hjartadeild Landspítala greindur með Covid-19 Lokað hefur verið fyrir innlagnir á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut eftir að sjúklingur þar greindist með Covid-19. Ekki er vitað hvernig sjúklingurinn smitaðist en vitað að hann smitaðist á meðan hann lá inni. 12.1.2021 19:02
Hefur barist fyrir lífi sínu í þrjú ár: Sprelllifandi úrskurðuð látin Frönsk kona hefur freistað þess í þrjú ár að sannfæra yfirvöld um að hún sé sannarlega á lífi eftir að hún var úrskurðuð látin án þess að gögn þess efnis væru lögð fram. 12.1.2021 18:48
Börn í sóttkví með forráðamanni við komu til landsins Frá og með morgundeginum verður börnum fæddum 2005 eða síðar skylt að sæta sóttkví með foreldri eða forráðamanni við komu til landsins. Frá þessu er greint á vef stjórnarráðsins en ákvörðunin er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. 12.1.2021 17:52