Facebook bannar ekki forseta sem hótaði andstæðingum ofbeldi Meta, móðurfélag Facebook, ákvað að hafna áliti eigin ráðgjafanefndar um að banna fyrrverandi forsætisráðherra Kambódíu sem notaði miðillinn til þess að hóta andstæðingum sínum ofbeldi. Ráðherrann hótaði að banna Facebook í landinu ef hann yrði sjálfur settur í straff. 31.8.2023 11:42
Losun frá flugi og siglingum jókst um 95 prósent eftir faraldurinn Útblástur gróðurhúsaloftegunda vegna alþjóðasamgangna frá Íslandi jókst um 95 prósent á milli ára í fyrra þegar ferðatakmörkunum eftir heimsfaraldurinn var aflétt. Losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda stóð svo gott sem í stað á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Umhverfisstofnunar. 31.8.2023 08:59
Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik. 30.8.2023 15:49
Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit. 30.8.2023 14:04
Esjan laus við snjó í fyrsta skipti í fjögur ár Snjóskafli í Gunnlaugsskarði í Esjunni er horfinn í fyrsta skipti frá árinu 2019. Sumur eru sögð þurfa að vera óvenju hlý til þess að skaflinn bráðni alveg. 30.8.2023 12:20
Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna. 30.8.2023 12:07
Skertur opnunartími sundlauga í Árborg tekur gildi Opnunartími Sundhallar Selfoss styttist á föstudaginn þegar aðhaldsaðgerðir sveitarstjórnar Árborgar taka gildi. Sundlaugin á Stokkseyri verður lokuð frá nóvember til mars. Formaður bæjarráðs segist skilja vel að íbúar Árborgar hafi misjafnar skoðanir á aðgerðunum. 30.8.2023 11:08
Ætla ekki að rannsaka flugvélarhrap Prigozhin eftir alþjóðareglum Rússnesk yfirvöld synjuðu ósk brasilískra flugmálayfirvalda um sameiginlega rannsókn eftir alþjóðlegum reglum á því hvað grandaði flugvél Jevgeníj Prigozhin, rússneska málaliðaforingjans, að svo stöddu. Rússar eru ekki skyldugir til þess þó að alþjóðleg flugmálayfirvöld mæli með því. 30.8.2023 08:57
Ofurmáni blátt á himni skín Fullt tungl sem verður síðustu nótt ágústmánaðar verður svokallaður blár ofurmáni. Þrátt fyrir nafnið verður tunglið þó hvorki blátt á lit né búið neins konar ofurkröftum. 29.8.2023 20:01
Stjórnmálaflokkur kjörins forseta bannaður Sigur Bernarndo Arévalo í forsetakosningunum í Gvatemala var staðfestur í gær. Stjórnmálaflokkur hans var hins vegar bannaður tímabundið. Arévalo segir úrskurðinn lögleysu og að flokkurinn ætli að kæra hann. 29.8.2023 15:36